19.12.1975
Sameinað þing: 37. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1546 í B-deild Alþingistíðinda. (1269)
1. mál, fjárlög 1976
Frsm. minni hl. (Geir Gunnarsson) :
Herra forseti. Varðandi þær brtt., sem fjvn. flytur við 3. umr., vil ég taka fram af hálfu okkar, sem skipum minni hl. n., að við erum óbundnir um afstöðu til einstakra till. og höfum áskilið okkur rétt til að flytja brtt. eða fylgja brtt. sem fram kunna að koma.
Við 2. umr. um fjárlagafrv. voru mörg veigamikil mál óafgreidd frá nefndinni. N. hefur nú með fundarhöldum á einum degi, þ. e. a. s. í gær, afgr. frv. til 3. umr., og hygg ég að ekki þurfi að hafa mörg orð um það, hvers kyns vinnubrögð hér er um að ræða.
Hæstv. fjmrh. gat þess í ræðu sinni við 1. umr. um fjárlagafrv. að ríkisstj. mundi í nóv. ganga frá og leggja fyrir Alþ. lánsfjáráætlun fyrir árið 1976. Um efndir á þessu fyrirheiti fór eins og svo margt annað hjá hæstv. ríkisstj. Lánsfjáráætlunin var lögð fyrir Alþ. 17. des., nú fyrir tveimur dögum, og að sjálfsögðu var enginn tími til að fjalla um hana í fjvn. Hún var alls ekki rædd á fundum nefndarinnar.
Þótt svona hafi orðið að fara að í nefndarstörfum er svo látið heita að n. hafi sameiginlega afgr. málefni allra þeirra aðila sem byggja framkvæmdir sínar á næsta ári á niðurstöðum lánsfjáráætlunarinnar. Það er óvíst hve margir nm. gátu gefið sér tíma til þess að opna bæklinginn um lánsfjáráætlunina. Vonandi líta þeir í hann í jólafríinu, því að þetta er áreiðanlega hin merkasta lesning og ekki með öllu ófróðlegt fyrir nm. að komast að því, þótt seinna verði en skyldi, hvað þeir hafa verið að samþykkja við afgreiðslu fjárlaga þessa dagana.
Hæstv. fjmrh. mun hafa látið svo um mælt við 2. umr. um fjárlagafrv., að þau vinnubrögð, sem hafa verið viðhöfð við fjárlagaafgreiðsluna nú, væru ekki svo aðfinnsluverð að orð væri á gerandi. Það er nú svo, að það hefur líklega aðeins tvisvar í sögu Alþingis gerst að 2. umr. um fjárlög færi ekki fram fyrr en 16. des., en það er einmitt við afgreiðslu beggja þeirra fjárlagafrv. sem hæstv. núv. fjmrh. hefur flutt. Aðeins einu sinni mun það hafa gerst í sögu Alþ. að einungis tveir starfsdagar væru á milli 2. og 3. umr., einmitt núna þegar verið er að afgr. annað fjárlagafrv. hæstv. ráðh. Þeir voru þó þrír dagarnir í fyrra, og jafnvel hæstv. ráðh. ætti að geta séð að það eru afar takmarkaðir möguleikar á því, hve lengi hann getur haldið áfram að stytta þennan tíma milli umr. Hann ætti því að gá að sér, þótt ekki væri nema vegna þess hve hann kemst fljótt í þrot með þá stefnu sína eins og fjármálastefnuna sjálfa. Ég lít svo á að þessi vinnubrögð séu alvarlegt mál sem ekki megi láta óátalið, þótt hæstv. ráðh. 1ýsi því yfir, að ekkert sé við þau að athuga. Alvarlegast er þó ef hæstv. fjmrh. gerir sér ekki ljóst að hér er í raun og sannleika komið í óefni. Ef hann sér ekkert athugavert við fjárlagaafgreiðsluna nú, þá er ekki mikil von um að úr verði bætt meðan hann fjallar um hana. Ég leyfi mér samt að vona, að þótt hæstv. ráðh. hafi látið þessi orð falla, þá fari það ekki fram hjá honum fremur en öðrum hv. þm. að fjárlagaafgreiðslan fer ekki fram með þeim hæti.i að við verði unað og nauðsynlegt er að allir aðilar taki höndum saman um að á annan hátt verði að þessum málum staðið á næsta þingi.
Ég vil láta það koma fram, að ástæðurnar fyrir því, hve afgreiðslan er seint á ferðinni að þessu sinni og hve lítill tími gefst til ákvarðanatöku, er ekki fyrst og fremst að leita hjá fjvn., meiri hl. hennar eða formanni n., heldur er orsökin einkum sú, hve það hefur dregist af hálfu ríkisstj. að leggja fram frv. sín, till. og ákvarðanir.
Ég ræddi fjárlagafrv. og þá stefnu, sem í því felst, allítarlega bæði við 1. og 2. umr. og sé því ekki ástæðu til að halda um það langa ræðu nú. Veigamestu málefnin, sem biðu 3. umr., hafa verið rædd mjög ítarlega í báðum deildum þingsins við afgreiðslu þeirra frv. sem hafa verið flutt í tengslum við fjárlagafrv. Þar hefur mjög rækilega komið fram afstaða stjórnarandstöðuflokkanna og því ekki ástæða til að rifja þau sjónarmið upp við lokaafgreiðslu fjárlaganna. Hér er um að ræða álagningu vörugjalds, innheimtu sérstaks gjalds til almannatrygginga á útsvarsgreiðendur, hækkun á greiðsluhluta einstaklinga vegna sjúkratrygginga, breytta verkefnaskiptingu ríkis og sveitarfélaga og tilfærslu á hluta söluskatts af þeim sökum. Öll þessi mál hafa verið krufin til mergjar við umr. um þessi lagafrv. og skoðanir allra flokka á þeim komið rækilega fram á undanförnum dögum. Sá naumi tími, sem gafst til afgreiðslu fjárlagafrv. sem aðlagað er að afgreiðslu þessara frv., gefur ekki tilefni til að bæta neinu við umr. um þau mál sem þegar hafa verið afgreidd.
Niðurstöður fjárlagafrv. eftir afgreiðslu n. til 3. umr. liggja nú fyrir. Til þess að útgjaldahliðin sé sambærileg við útgjaldaþætti núgildandi fjárlaga og fjárlaga ársins 1974 þarf að bæta við útgjaldatölu þessara væntanlegu fjárlaga þeim 1150 millj. kr. útgjöldum sjúkratrygginga sem nú á að greiða með aukaálagningu á útsvarsgjaldendur og sveitarfélögin eiga að innheimta í staðinn fyrir ríkið. Einnig þarf að bæta við útgjöldin, til að réttur samanburður fáist þeim útgjaldaþáttum sem nú hafa verið færðir til sveitarfélaga, en þeir nema 400 millj. kr. eða nálægt því. Með þessari leiðréttingu til að um samanburð geti verið að ræða nema hliðstæð útgjöld og áður 60.9 milljörðum kr. í væntanlegum fjárlögum og eru 13.7 milljörðum kr. eða 29% hærri en útgjöld núgildandi fjárlaga. Með sama grundvelli hafa útgjöld ríkissjóðs hækkað um 29.4 milljarða kr. frá fjárl. ársins 1974 eða um 107.1%, eða í fyrsta skipti í sögunni hækkað um meira en 100% á tveimur árum. Skv. þessum tölum, sem eru sambærilegar við útgjaldahlið núgildandi fjárl., og miðað við áætlaða þjóðarframleiðslu, 203 milljarða kr., á næsta ári nema áætluð útgjöld ríkisins nákvæmlega 30% af þjóðarframleiðslu á næsta ári, en þegar fjárlagafrv. var lagt fram var reiknað með að þetta hlutfall yrði 29% á þessu ári. Hefur því ekki tekist að minnka umsvif ríkisins eða ríkisbúskaparins. En útþensla rekstrarliða veldur því að þrátt fyrir óbreytt umsvif ríkisins stórlækkar raungildi framlaga til verklegra framkvæmda.
Séu tekjur færðar til samræmis á hliðstæðan hátt, þ. e. a. s. 1150 millj. kr. gjaldi til almannatrygginga og söluskattshlut sveitarfélaga, 527 millj. kr., bætt við tekjur væntanlegra fjárl., nema þær alls 62.6 milljörðum kr. og eru 13 milljörðum eða 31.5% hærri en á núgildandi fjárl., og skattheimtan verður 33.4 milljörðum eða 114.4% hærri en á fjárl. ársins 1974. Er þó í tekjum ríkisins 1976 ekki reiknað með þeim lið sem raunverulega er vanreiknaður í tekjuhlið, þ. e. a. s. 400–440 millj. kr. tekjum af þeim söluskatti sem leggst á vörugjaldið. Áætlað er að vörugjaldið nemi 2200 millj. kr. á næsta ári, en ákvörðun um álagningu þessa hafði ekki verið tekin þegar tekjuáætlun var gerð. Meiri hl. fjvn. sá ekki ástæðu til að leiðrétta tekjuáætlunina að þessu leyti þótt forsendur um áætlun söluskattsins hafi óumdeilanlega breyst.
Nú við lokaafgreiðslu fjárlagafrv. er upphæð áætlaðra vaxtagreiðslna í A-hluta breytt til hækkunar um hvorki meira né minna en 483 millj. kr., til viðbótar þeirri 458 millj. kr. hækkun frá núgildandi fjárl. sem gert var ráð fyrir í frv. Við þetta hækka vextir úr 714 millj. kr. 1975 í 1656 millj. kr. 1976 eða um 131.9% á einu ári. Þar hefur hæstv. fjmrh. sett enn eitt metið í útþenslu á fjárl. Og frá fjárl. ársins 1974 hafa vextir í A-hluta hækkað úr 413 millj. kr. í 1656 millj. eða um ríflega 300%, ríflega fjórfaldast á tveimur árum. Vextir í A- og B-hluta nema samkvæmt þessu 4564 millj. kr. og hafa hækkað um 2903 millj. kr. frá 1974. Hækkunin ein nemur um 150 millj. kr. hærri upphæð en allt samanlagt framlag ríkissjóðs á næsta ári til almennra hafnargerða, grunnskólabygginga, framkvæmda í flugvallagerð og til byggingar sjúkrahúsa sveitarfélaga, heilsugæslustöðva, læknamiðstöðva og læknisbústaða.
Í fjárlagafrv., sem lagt var fram í okt., var gert ráð fyrir að verklegar framkvæmdir í A-og B-hluta yrðu fjármagnaðar með lántökum svo að nam 9600 millj. kr. Nú hefur fjárlagafrv. verið fært til samræmis við lánsfjáráætlun og þessi tala verið hækkuð um 46%. Mun þá lánsfé til verklegra framkvæmda nema rúmlega 14 milljörðum kr., en hliðstæð tala í núgildandi fjárl. tæplega 5.3 milljörðum, en eftir breyt. með lögum um ráðstafanir í efnahagsmálum s. l. vor nam þessi notkun lánsfjár ríflega 7.2 milljörðum. Nú er gert ráð fyrir að hrín nálega tvöfaldist frá þessari tölu á næsta ári, svo að enn er haldið áfram á þeirri braut að verklegar framkvæmdir eru fjármagnaðar í vaxandi mæli með lánsfé. Það hefur síðan þau áhrif á vaxtagjöldin sem ég greindi frá áðan. Þau hafa hækkað um rúmlega 300% á tveimur árum.
Vaxandi skattheimta fer ekki til að auka framlög til verklegra framkvæmda. Framkvæmdir eru í síauknum mæli fjármagnaðar með lánsfé. Það er útþensla rekstrarliðanna sem gleypir jafnóðum það sem hirt er af landsmönnum í aukinni skattheimtu.
Ég gat þess við 2. umr. um fjárlagafrv. að skv. frv. yrðu erlendar lántökur vegna ríkissjóðs og ríkisstofnana tólf sinnum hærri en í fjárl. ársins 1974. Þetta átti við um fjárlagafrv. við 2. umr. En það eru nú 3 dagar síðan og á þessu hafa orðið talsverðar breyt. þegar frv. kemur nú til lokaafgreiðslu. Upphæð erlendra lána í lánahreyfingum var í frv. áætluð 3805 millj. kr., en er nú áætluð í samræmi við lánsfjáráætlun 6850 millj. kr., en var í fjárl. ársins 1974 320 millj., þ. e. a. s. erlendar lántökur verða á fjár. ársins 1976 21.4 sinnum hærri en á fjárl. 1974. Þar er verið vel að í skuldasöfnuninni.
Í fjárlagafrv. í fyrra var gert ráð fyrir að yfirdráttarskuld ríkissjóðs við Seðlabankann yrði 1 milljarður kr. um áramótin 1974 og 1975. Hæstv. fjmrh. tókst samt á þessum stutta tíma að hafa upphæðina um áramótin fjórum sinnum hærri en áætlað var, og til viðbótar hefur hann síðan safnað 3–4 milljarða kr. yfirdráttarskuld þrátt fyrir stöðugar aðgerðir með aukinni skattheimtu sem aldrei hafa dugað til að mæta afleiðingunum af stjórnleysinu í útgjöldum. Þrátt fyrir að í fjárlagafrv., sem lagt var fram í okt. sl., væri spáð 770 millj. kr. greiðsluhalla ríkissjóðs á þessu ári, verður hann allt að 5 sinnum hærri í árslok.
Á s. l. þingi, í vor, voru samþ. lög þess efnis að ekki megi stofna til skulda hjá ríki eða ríkisstofnunum án heimilda. Væntanlega hafa forstöðumenn ríkisstofnana farið að þessum lögum, að undanteknum þeim sem hefur verið langstórvirkastur og stórvirkari en nokkur hefur áður verið, þ. e. a. s. hæstv. fjmrh. sjálfur. Nú á að bæta úr þessu og í brtt. meiri hl. fjvn. er gert ráð fyrir að hæstv. ráðh. fái nú fyrir fram heimild til að safna yfirdráttarskuldum á næsta ári. Er þess að vænta að þá linni þessum hugsanlegum lögbrotum að þessu leyti, þótt naumast sé hægt að gera séu vonir um að skuldasöfnuninni linni ef höfð er hliðsjón af stjórn ríkisfjármálanna á þessu ári.
Spádómar í fjárlagafrv. bæði í fyrra og nú, þar sem skuld ríkissjóðs við Seðlabankann reyndist fjórum sinnum hærri um s. l. áramót en reiknað var með og greiðsluhalli ríkissjóðs í ár verður um fimm sinnum hærri en spáð er í fjárlagafrv. sem lagt er fram tæpum 3 mánuðum fyrir árslok, skýra æðivel að það er ekki mikils að vænta um festu og stjórnsemi í ríkisfjármálum, þegar þeir, sem um fjalla, eru svo algerlega utangátta og óvitandi um hvað er að gerast um þau málefni sem þeir eiga að annast. Enda hefur árangurinn verið í samræmi við það, algert stjórnleysi um útgjöld og síðan stöðugur hallarekstur sem reynt er að bæta úr með fálmkenndum aðgerðum, vitlaust reiknuðum dæmum, ráðstöfunum sem aldrei duga og þó fálmað eftir enn nýjum, en lokaárangurinn birtist síðan í árslok með stórfelldum yfirdráttarskuldum.
Við afgreiðslu fjvn. milli 2. og 3. umr. voru afgreiddir nokkrir mikilvægir málaflokkar sem ekki fengu þá meðferð hjá meiri hl. n. sem ýmsir höfðu vænst.
Bein fjárveiting til Lánasjóðs námsmanna hækkar ekki frá frv. nema um 32.5 millj. kr., eingöngu til að bæta úr fyrir þeim sem hljóta svokölluð K-lán, en á því var brýn þörf. Við þessa afgreiðslu var á hinn bóginn gert ráð fyrir aukinni lántöku Lánasjóðs námsmanna um 500 millj. kr. til viðbótar ráðgerðri 100 millj. kr. lántöku í fjárlagafrv. Öllum er í fersku minni hve erfiðlega gekk á þessu ári að nýta lántökuheimildir sjóðsins og hverjum vandræðum það olli. Fulltrúar frá öllum stjórnarandstöðuflokkunum munu flytja sérstaka brtt. um þetta mál við 3. umr. og gera sérstaka grein fyrir henni og stöðu þessa máls nú við afgreiðslu fjárl.
Sama er að segja um liðinn til jöfnunar á námskostnaði, en þar er um að ræða styrki til þeirra nemenda í framhaldsskólum sem þurfa að sækja skólanám utan heimabyggðar sinnar. Þetta málefni fékk ekki þá afgreiðslu hjá meiri hl. n. að upphæðin haldi raungildi sínu og því lagt til að styrkirnir verði í raun lækkaðir. Um þetta mál mun verða fjallað af frsm. fyrir brtt. sem fulltrúar stjórnarandstöðuflokkanna flytja um hækkun á þessum líðum. En ég vil aðeins minna á orð hins mæta manns, Sigurvins Einarssonar alþm., sem kom á fund fjvn. vegna þessa máls. Lagði hann þar áherslu á að tómt mál væri að tala um að gera ráðstafanir til að sporna við því að fjárhagsaðstaða nemenda réði úrslitum um möguleika þeirra til háskólanáms eða annars langskólanáms ef þannig væri staðið að málum í þessu efni varðandi jöfnun námskostnaðar á framhaldsskólastigi að þeir efnaminni heltust þar úr lestinni. Hann lagði áherslu á að væri þannig að þessum málum staðið að ríkið sker:i framlög til að tryggja þessa jöfnun á námskostnaði á framhaldsskólastigi yrðu hinir efnaminnstu að hætta námi í menntaskólum og öðrum hliðstæðum skólum og gætu þá af sjálfu sér ekki notið viðleitni þjóðfélagsins til að tryggja að fjárhagur nemenda ráði ekki úrslitum um möguleika þeirra til frekara náms. Ég á bágt með að trúa því að fulltrúar dreifbýlisins á Alþ. tryggi ekki að nemendur úti á landsbyggðinni búi við óskertan stuðning í þessu efni, en vegna undangenginnar kjaraskerðingar hjá almenningi er þörfin enn brýnni en áður.
Á þeim fjárlögum, sem hér er verið að afgreiða, er gert ráð fyrir að gjaldfærður stofnkostnaður hjá Vegagerð ríkisins nemi á næsta ári 1604 millj. kr. Þar af er lánsfjáröflun til vegagerðar áætluð 1050 millj. Gjaldfærður stofnkostnaður hjá Vegagerðinni er á núgildandi fjárl. 1824 millj. kr. og er því hér um 220 millj. kr. beina lækkun að ræða í krónutölu. Ef miðað er við hækkun vísitölu byggingarkostnaðar um 45.7% frá í fyrra ætti gjaldfærður stofnkostnaður Vegagerðarinnar að vera 2658 millj. kr. á næsta ári til að halda raungildi frá árinu í ár, eða 1054 millj. kr. hærri en gert er ráð fyrir í væntanlegum fjárlögum. Fjárlagatalan vegna vegaframkvæmda þyrfti því að hækka um 65.7% til að framkvæmdir gætu verið að magni til hinar sömu á næsta ári og nú í ár. Þetta sýnir, hversu hrikalegt vandamál bíður við afgreiðslu vegáætlunar á Alþ. á næsta vori. En þetta er einn þáttur hins mikla vanda sem í sambandi við framkvæmdir er óleystur, er velt áfram, en kemur til afgreiðslu með vaxandi þunga síðar. Þrátt fyrir allar skattahækkanir í sambandi við fjárlagaafgreiðsluna er þetta árangurinn varðandi brýnustu framkvæmdir á öllum sviðum.
Endanleg afgreiðsla fjárlagafrv. og þær breytingar, sem gerðar eru á tekjuöflun, stóraukning skattheimtu og lánsfjár frá því, sem ráðgert er í frv., er enn eitt dæmið um fálmið og stefnuleysi hæstv. ríkisstj. og hversu fyrirmunað þeim, sem fjalla um fjármál ríkisins, er að gera sér grein fyrir stöðu mála hverju sinni. Þetta sannar dæmið um áætlanir í fjárlagafrv. í fyrra um stöðu ríkissjóðs í árslok þá og hliðstæðir spádómar í fjárlagafrv. nú, þar sem staðan reyndist 4–5 sinnum lakari í árslok en spáð var í okt. Er þó ljóst að rétt stöðumat er grundvöllur að réttum leikjum í efnahagsskákinni hverju sinni.
Sama fálmið, ráðleysið og skortur á yfirsýn hefur einkennt efnahagsaðgerðir og stjórn ríkisfjármála á öllu þessu ári. Sífellt hefur verið gripið til nýrra aðgerða þar sem allt reynist misreiknað og þá gripið til enn nýrra. Síðasta ráðstöfunin, álagning vörugjalds til áramóta, átti að tryggja greiðsluhallalausan rekstur ríkissjóðs, en útgjöldin fóru svo úr böndunum að yfirdráttarskuld ríkissjóðs vex um 3–4.5 milljarða kr. á ári. Í fjárlagafrv. var við það miðað að vörugjald félli niður, en niðurgreiðslur lækkuðu um 1425 millj. kr. og útgjöld almannatrygginga lækkuðu um 2000 millj. kr. Fyrir öllu þessu voru flutt hin hjartnæmustu rök af hálfu hæstv. ríkisstj. um það hversu hagkvæmt allt þetta væri launafólki. Nú við lokaafgreiðslu frv., eftir að ekkert hefur fengist af ákvörðunum frá hæstv. ríkisstj. fyrr en afgreiðsla fjárl. er komin í eindaga og óefni, er niðurstaðan sú, að álagning vörugjalds er haldið að mjög verulegu leyti áfram á næsta ári þrátt fyrir öll fyrirheit um afnám þess, og áætlað er að með þeirri skattlagningu náist 2200 millj. kr. í ríkissjóð auk 400 millj. kr. aukagetu vegna söluskatts á vörugjaldið. Nú er auk þess gert ráð fyrir að lækka niðurgreiðslur um 725 millj. kr. og leggja 480 millj. kr. skatt á sjúklinga sérstaklega og 1200 millj. kr. nýjan skatt á útsvarsgreiðendur. Þegar öllum ráðagerðum frá í okt. hefur þannig verið snúið við er enn útmálað fyrir skattgreiðendum, almenningi í landinu, hve allt sé þetta miklu hagkvæmara fyrir þá, þótt skattheimtan sé stóraukin frá því sem áður var ráðgert.
Endanleg afgreiðsla fjárlagafrv. nú við 3. umr. staðfestir það, sem ég lýsti við fyrri umr. sem megineinkennum væntanlegra fjárlaga næsta árs. Þau fela í sér fyllilega jafnmikil umsvif ríkisbúskaparins á næsta ári og nú í ár, en eins og í núgildandi fjárl. verður veruleg breyting á vægi einstakra útgjaldaþátta á þann veg að rekstrarliðir stóraukast, en raungildi framlaga til verklegra framkvæmda minnkar. Þau fela í sér áframhald stórfelldrar skuldasöfnunar og mjög mikla hækkun vaxtakostnaðar, svo verulega að hækkunin ein á næsta ári nemur álíka fjárhæð og varið er til meginhluta þeirra framkvæmda sem Alþ. veitir fé til í hinum ýmsu sveitarfélögum á landinu, — hækkun vaxtanna ein.
Afgreiðsla fjárl. nú felur í sér að stórfelldum óleystum vanda í sambandi við hinar brýnustu samfélagslegu framkvæmdir er veit yfir á framtíðina. Fjárlagaafgreiðslan felur í sér þá ákveðnu stefnumörkun að allri þeirri auknu skattheimtu, sem stjórnleysið í fjármálum ríkisins og gjaldeyrismálum kallar á, skuli beint að launafólki og nú að þessu sinni að nokkrum hluta jafnvel sérstaklega að sjúklingum, á sama tíma og hundruð stórfyrirtækja, sem veita tugum millj. kr., skuli með öllu sleppa við tekjuskattsgreiðslur til ríkisins. Þetta er sú stefna sem Sjálfstfl. og Framsfl. sameinuðust um við afgreiðslu fjárl. í fyrra og af enn meiri eindrægni nú. Á sama tíma og þessari stefnu er beitt við fjárlagaafgreiðsluna og við allar aðrar ráðstafanir hæstv. ríkisstj. hrópar hún til launafólks í landinu, sem tekið hefur á sig stórfellda kjaraskerðingu að undanförnu, að það fallist á óbreytt stjórnleysi í gjaldeyrismálum, óbreytta stefnu um að almenningur einn beri skattana. Þess er nú krafist að verkalýðssamtökin leggi niður kjarabaráttu og tryggi framgang þessarar stefnu.
Almenningur í landinu hefur fengið að kenna á stefnu stjórnarinnar í rúmt ár og gróðaliðið fengið að njóta hennar. Sú breyting, sem gerð er á fjáröflun ríkisins við 3. umr. frá því sem frv. fól í sér, getur naumast orðið til þess að launafólk í landinu telji það samrýmast hagsmunum sínum að tryggja að slík kjaraskerðingarstefna nái fram að ganga.