19.12.1975
Sameinað þing: 37. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1576 í B-deild Alþingistíðinda. (1278)

1. mál, fjárlög 1976

Ragnar Arnalds:

Herra forseti. Á þskj. 288 flyt ég tvær brtt. Efni þessara brtt. er annars vegar að tekjuskattur félaga hækki sem nemur 2000 millj. kr. eftir að ákvæði tekjuskattslaga um fyrningar hafa verið endurskoðuð og hins vegar að framlög úr ríkissjóði til lífeyristrygginga hækki um 1009 millj. kr., þar af verði varið 200 millj. kr. til að hækka barnalífeyri í 12 000 kr. á mánuði og 600 millj. kr. til þess að greiða öldruðu fólki og öryrkjum uppbót á tekjutryggingu, og skulu allar lífeyrisgreiðslur síðan breytast í samræmi við vísitölu vöru og þjónustu, eins og segir í tillögunni.

Efni þessara till. varðar tvo þjóðfélagshópa sem sérstaklega stendur á um og báðir hafa sérstöðu meðal skjólstæðinga ríkisstj., hvor með sínum hætti. Annars vegar eru þeir sem njóta þeirra einstæðu forréttinda að hafa miklar tekjur, en greiða lítinn eða engan tekjuskatt, og á ég þar við atvinnufyrirtækin í landinu eða eigendur þeirra. Hins vegar eru þeir sem hafa hvað minnstar tekjur af öllum þjóðfélagshópum, þeir sem ekki hafa annað til að lifa af en tekjutrygginguna eina, en þessi hópur hefur farið verr út úr viðskiptum sínum við núv. ríkisstj. en nokkur annar þjóðfélagshópur. Þeir hafa að vísu fengið hækkanir á lífeyrisgreiðslum, hækkanir á tekjum sínum, eins og ýmsir aðrir, en þó ekki hækkanir í neinu samræmi við þær hækkanir á nauðsynjavörum sem orðið hafa á seinustu 18–20 mánuðum. Og þetta er sá hópurinn sem hafði minnst og mátti við minnstu.

Um fyrri hópinn, svo að ég víki nú nánar að þessum till. tveimur sem eru samtengdar, — um fyrri hópinn er ástæðulaust að fjölyrða. Ég hef leyft mér að flytja sem þáltill. þá till. að tekjuskattur og tekjuskattsreglur félaga og fyrirtækja hvað snertir fyrningar verði tekin til endurskoðunar með það fyrir augum að flýtifyrning verði afnumin svo og fyrningarstuðullinn. Ég hef sýnt fram á það, hvernig hundruð fyrirtækja um allt land, þ. á m. 430 fyrirtæki í Reykjavík, sleppa við að greiða nokkurn tekjuskatt, og fært rök að því, hvers vegna þau sleppa og hverju þurfi að breyta til þess að kippa þessu í lag. Það er erfitt að áætla nákvæmlega hvað breytingar á fyrningarreglum mundu hafa í för með sér mikinn tekjuauka fyrir ríkissjóð. En varlega áætlað hefur mér virst að ekki mundi vera um minni fjárhæð að ræða en 2000 millj. kr. Þar til viðbótar koma svo áhrif af breytingum fyrningarreglna á tekjuskatt einstaklinga. Kannske er þar um aðra eins upphæð að ræða. Ég hef hins vegar aðeins gert hér till. um tekjuskatt félaga, að sú upphæð hækki um 2000 millj. kr., vegna þess að ég hef tekið einmitt það atriði til sérstakrar rannsóknar og þykist vita að ekki muni vera um minni fjárhæð að ræða. Hins vegar hefur alls ekki verið fjallað sérstaklega um áhrif afnáms hinna sérstöku fyrningarívilnana á tekjuskatt einstaklinganna og af þeirri ástæðu er hér ekki gerð tilraun til að setja fram ákveðnar tölur um hvað hækkunin yrði mikil vegna breytinga á fyrningarreglum þeirra einstaklinga sem reka fyrirtæki á eigin reikning. Þetta kemur sem sagt á daginn ef fyrningarákvæðum verður breytt, og yrðu vafalaust full not fyrir þá viðbótarfjárhæð, enda er vitað að ýmsar tölur í fjárl. og í heimildagreinum þeirra eru gervitölur og sýndarheimildir og mun ríkissjóði því vafalaust ekki veita af auknum tekjum.

Um síðari hópinn, lífeyrisþega, er það að segja, að sá sem hafði 18 900 kr. í tekjutryggingu í aprílmánuði 1974 og hafði ekki aðrar tekjur að lifa af, fær í dag 29 200 kr. Það er hámark tekjutryggingar í dag, Hins vegar ættu tekjutryggingar þegar að fá 35–38 þús. kr., eftir því við hvaða vísitölu og hvaða dagsetningu miðað er, því að skýringin á þessu atriði er sú, að þessi upphæð, 18 900 kr., var reidd ef höndum 1. apríl 1974, en vísitala vöru og þjónustu var hins vegar mæld 1. febr. og svo aftur ekki fyrr en 1. maí, og því getur verið erfitt að vita nákvæmlega við hvað miða skal. Eins kemur dæmið mismunandi út eftir því við hvaða vísitölu er miðað. En í grófum dráttum má segja, að miðað við þær verðlagsbreytingar, sem átt hafa sér stað, er það einhvers staðar á milli 35 og 38 þús. kr. sem lífeyrisþegi ætti að hafa í dag ef hann hefur ekki aðrar tekjur.

Fjöldi tekjutryggingarþega er 8800 einstaklingar og 1250 hjón. Hér er gerð till. um 600 millj. kr. hækkun til þessa hóps, og lauslega áætlað má gera ráð fyrir því að um sé þá að ræða um 60 þús. kr. á einstakling á ári eða 5000 kr. hækkun á mánuði. Það geta áreiðanlega flestir verið sammála um að ekki er ofgert við lífeyrisþega þó að um yrði að ræða hækkun um 5000 kr. til viðbótar þeirri hækkun sem vafalaust felst í till. meiri hl. fjvn. Samanlagt mundi þetta þá leiða til þess að mánaðarlaun tekjutryggingarþega næmu milli 35 og 40 þús. kr. á næsta ári.

Um barnalífeyrinn er það að segja, að hann nemur 8459 kr. á mánuði um þessar mundir, en það er sama upphæð og lágmarksmeðlag nemur. Hins vegar kostar dvöl á barnaheimili um þessar mundir 9 þús. kr. á mánuði og áætlað er að sú fjárhæð hækki í 10 þús. kr. nú um áramótin. Það er í fyrsta sinn nú á síðari hluta þessa árs að barnalífeyrir dugir ekki fyrir dvöl á dagvistunarheimili og dugir þeim mun verr eftir því sem lengra líður. Sá barnafjöldi, sem hér er um að ræða, mun vera um 4200, og ef gert er ráð fyrir að barnalífeyririnn hækki í 12 þús. kr. eða um 3541 kr. á barn á mánuði, þá er um að ræða 170 millj. kr. aukaútgjöld fyrir ríkissjóð á næsta ári, þ. e. um 16 millj. á mánuði. Þessu til viðbótar koma svo einhver útgjöld ríkisins vegna meðlagsgreiðslna sem endanlega lenda á ríkinu, þó að þar sé áreiðanlega um tiltölulega miklu, miklu lægri upphæð að ræða. Ég hef leitað upplýsinga um það hjá Tryggingastofnun ríkisins, hvað gæti hugsanlega verið um mörg börn að ræða í því sambandi. Ekki var hægt að fá nýjustu upplýsingar um það, en viðurkennt hins vegar að þar væri um margfalt minni upphæð að ræða, og því hefur hún verið áætluð 30 millj. eða samtals 200 millj. til að hækka barnalífeyri í 12 þús. kr. á mánuði, en það er sú hækkun sem samsvarar því að barnalífeyrir hækki í hlutfalli við vísitölu vöru og þjónustu frá því í aprílmánuði 1974, sem sagt eins og hann var á síðustu mánuðum vinstri stjórnar.

Ég vil leggja á það áherslu í þessu sambandi, að sá hluti meðlagsgreiðslna, sem fellur á ríkið, er að sjálfsögðu aðeins örlítið brot af meðlagsgreiðslum í þjóðfélaginu í heild, — greiðslum sem ganga milli einstaklinga. Ég vil skjóta því hér inn að barnalífeyrir og þar með meðlagsgreiðslur hafa ekki lækkað í hlutfalli við tekjutrygginguna, heldur hafa þessar upphæðir hækkað í hlutfalli við almennan ellilífeyri, sem eins og menn vita hefur hækkað miklu minna en tekjutryggingin. Þetta hefur haft þær afleiðingar að meðlagsgreiðslur manna á milli í þjóðfélaginu hafa ákaflega lítið hækkað á sama tíma. Sem sagt, afleiðingin er sú, að ríkisvaldið hefur óbein áhrif á fjárhagsleg samskipti þúsunda einstaklinga í þjóðfélaginu, yfirleitt á kostnað þeirra aðila í þessum samskiptum sem minna mega sín, einstæðra foreldra sem hafa með uppeldi og framfærslu barna að gera og verða að láta sér nægja meðlagsgreiðslur sem eru langt undir eðlilegum kostnaði við framfærslu barns.

Ég vil að lokum taka það fram, að þessar till., sem ég hef lagt hér fram, eru vafalaust of hógværar ef litið er á þörfina og ef litið er á þetta sem almennt sanngirnismál. Með því að verja 800 millj. af þessum 1000 millj. til hækkunar á tekjutryggingu og barnalífeyri verður ekki mikið afgangs til hækkunar á almennum ellilífeyri og örorkulífeyri, mæðralaunum, fæðingarstyrk, ekkjubótum og ekkjulífeyri. En þó mundi þar vera um nokkra hækkun að ræða. Hækkunin yrði hins vegar langmest á tekjutryggingunni og barnalífeyrinum. Ég vil sem sagt undirstrika það hér, að sjálfsagt hefði verið sanngjarnast að hækka framlagið til Tryggingastofnunar ríkisins í 1500 millj. eða 2000 millj. En miðað við það, hvað meiri hl. Alþ. er tregur í þessum efnum, að fallast á sanngjarnar hækkanir, þá hefur þótt eðlilegast að hafa nokkurt hóf á þessari hækkunartill. og binda hana við 1000 millj.

Ég vil í þessu sambandi minna á það, að greiðslur almannatrygginga til aldraðra og öryrkja eru smánarlega lágar og til skammar fyrir okkur hina, sem höfum heilsu og aldur til að vinna. Það var fyrsta verk vinstri stjórnarinnar í samræmi við málefnasamning stjórnarflokkanna að hækka þessar greiðslur mjög verulega frá því sem þær höfðu verið í tíð fyrri stjórnar, og get ég nefnt til upprifjunar fyrir menn að þessar greiðslur hækkuðu frá minnst 32% og upp í 104% á fyrsta hálfa ári vinstri stjórnar.

Hér er sem sagt aðeins gerð till. um 1000 millj. kr. hækkun almannatrygginga. Aftur á móti er gerð till. um tekjuöflun sem nemur 2000 millj., og eins líklegt að sú till. hefði í för með sér hækkun sem næmi 3–4 þús. millj. Það er því ljóst að ef fallist yrði á þá stefnu sem fólgin er í þessari tillögugerð, þá gæfist hæstv. fjmrh. gott ráðrúm til þess að falla frá fyrirhugaðri 2% söluskattshækkun sem mun nema 2500 millj. kr.