19.12.1975
Sameinað þing: 37. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1579 í B-deild Alþingistíðinda. (1279)

1. mál, fjárlög 1976

Sighvatur Björgvinsson:

Virðulegi forseti. Ég vil í upphafi máls míns þakka hv. 9. landsk. þm., Sigurlaugu Bjarnadóttur, fyrir þær góðu og gildu röksemdir, sem hún færði fyrir nauðsyn þess að samþykkja nokkrar till. um byggðamál Vestfjarða sem við hv. þm. Karvel Pálmason höfum flutt, þó að ég samhryggist hv. þm. Sigurlaugu Bjarnadóttur yfir því, að flokkur hennar skuli hafa bannað henni að greiða atkv. með þessum góðu málum.

Það er liðið nokkuð langt á fundartímann og við alþfl.menn munum ekki tefja þessar umr. með löngu máli. Því mun ég aðeins lýsa í örfáum orðum þeim till., sem ég flyt við 3. umr. fjárl., og benda á í e. t. v. enn færri orðum þær aðrar brtt. sem þm. Alþfl. flytja.

Ég flyt á þskj. 278 ásamt öðrum hv. þm. þrjár brtt.

Fyrsta brtt. er rómv. II, sem ég flyt ásamt hv. þm. Helga F. Seljan. Till. sú er á þá lund að Íslenska bindindisfélagið fái vegna námskeiðahalds fyrir reykingamenn 1 millj. kr. Ég hef ásamt öðrum þm. flutt í Sþ. till. til þál. um samhæfingu starfs til áróðurs gegn tóbaksreykingum og til þess að reyna að beita læknisúrræðum við þá sem þegar hafa orðið neytendur tóbaks. Þessi till. hefur fengið góðar undirtektir hjá hv. allshn. og hefur n. mælt einróma með samþykkt hennar. Þessi till. okkar hv. þm. Helga F. Seljan er flutt í beinu framhaldi og í beinum tengslum við þetta mál, vegna þess að við viljum að ríkissjóður komi þarna nokkuð til móts við starfsemi áhugamannasamtaka, þ. e. a. s.

Íslenska bindindisfélagsins, sem hafa unnið mikið og gott starf að þessum málum. Það er Íslenska bindindisfélagið sem hefur haft með höndum reykinganámskeið þau, sem haldin hafa verið á undanförnum þremur árum víðs vegar úti um land. Hefur félagið unnið þetta í algerri sjálfboðavinnu, án nokkurs opinbers styrks, og hefur þessi starfsemi reynst mjög vel.

Nú hafa slík námskeið verið haldin í Reykjavík, á Ísafirði, Keflavík, Selfossi, Hvanneyri, Akureyri, Egilsstöðum, Dalvík, Ólafsfirði, Húsavík og í Laugaskóla. Fyrir liggur beiðni um svipuð námskeið frá Kópaskeri, Skagaströnd, Borgarnesi, Siglufirði, Blönduósi, Höfn í Hornafirði, Neskaupstað, Seyðisfirði og Eskifirði. Forráðamaður þessara námskeiða hefur tjáð mér að Íslenska bindindisfélagið muni ekki geta orðið við þessum beiðnum nema því aðeins að þær hljóti einhvern stuðning af almannafé, en félagið mun hafa sótt um 5 millj. kr. framlag til þessarar starfsemi hjá fjvn., en ekki fengið undirtektir. Á þeim námskeiðum, sem haldin hafa verið, hafa 1555 einstaklingar notið þessarar þjónustu Íslenska bindindisfélagsins. Til þess að gefa nokkra hugmynd um árangur þessara námskeiða á þeim 5 dögum, sem námskeið fyrir reykingamenn hefur staðið, hvert námskeið um sig, hefur árangurinn verið frá 82% og upp í 100%. Þegar langur tími er skoðaður eða sá tími sem Íslenska bindindisfélagið hefur rekið þessa starfsemi hefur árangurinn til langframa af þessum námskeiðum orðið 50–55%.

Ég ætla að láta þetta nægja sem rökstuðning fyrir þessari brtt. minni, en bendi aðeins á að hér er um mikilvægt verkefni að ræða og ekki gert ráð fyrir mjög umtalsverðum framlögum úr ríkissjóði til að styðja við þennan áhugamannahóp, aðeins 1 millj. kr.

Þá flyt ég á sama þskj., þskj. 278, brtt. IV ásamt hv. þm. Karvel Pálmasyni. Till. er á þá lund, að framlag til ferjubryggna verði hækkað um 2 millj. kr. frá því sem er í till. meiri hl. fjvn. og að inn komi 2 millj. kr. framlag til bryggjunnar á Brjánslæk á Barðaströnd, sem er ferjubryggja. Eins og þeir þm. munu vita sem hafa einhvern tíma átt leið um þessar slóðir, leggur flóabáturinn Baldur að þessari bryggju og hefur a. m. k. yfir sumartímann með mikla fólksbílaflutninga þar að gera. Bryggjan er hins vegar orðin mjög úrelt og raunar allt of stutt fyrir þá starfsemi sem þarna fer fram, þannig að flóabáturinn Baldur á oft mjög erfitt með að athafna sig við þessa bryggju. Enn fremur vantar á hana ýmis tæki, svo sem lýsingu o. fl. Þessi till. um sérstakt framlag til þessarar ferjubryggju er flutt í því skyni — ekki að það verði farið að ráðast í umtalsverðar framkvæmdir til að lengja bryggjuna, heldur fremur til þess að farið verði að bæta þarna aðstöðu sem brýn nauðsyn er að fáist bætt.

Þá flyt ég á þessu sama þskj., þskj. 278, V till. ásamt hv. þm. Karvel Pálmasyni, Steingrími Hermannsyni og Sigurlaugu Bjarnadóttur. Till. þessi er við 6. gr. fjárl., þ. e. a. s. við heimildagr., og hljóðar svo, með leyfi forseta:

Ríkisstj. er heimilt að fella niður eða endurgreiða aðflutningsgjöld og söluskatt af snjótroðara fyrir Íþróttabandalag ísfirðinga.“

Á s. l. ári hefur Íþróttabandalag ísfirðinga hafið undirbúning að því að kaupa á staðinn snjótroðara, sem án aðflutningsgjalda og söluskatts mundi kosta um 8.4 millj. kr. Íþróttabandalagið hefur þegar hafið fjársöfnun til kaupa á þessu verkfæri og hefur leitað eftir lánsfjárfyrirgreiðslu í trausti þess að fáist að fella niður aðflutningsgjöld og söluskatt af þessu tæki. Fyrir því mun vera fordæmi, að það hafi verið leyft að fella niður aðflutningsgjöld og söluskatt, a. m. k. aðflutningsgjöldin ein, af tæki eins og hér um ræðir.

Þessi snjótroðari, sem Íþróttabandalag ísfirðinga hefur hafið undirbúning að kaupum á, er keyptur í tvennum tilgangi. Í fyrsta lagi er hann keyptur til að auka öryggi í skíðalandi ísfirðinga, en þar hefur Íþróttabandalagið og ísfirðingar með miklu og myndarlegu átaki byggt upp mikið og glæsilegt skíðaland og komið upp góðri aðstöðu. Hins vegar hefur komið í ljós, sem raunar lá öllum í augum uppi, að með tilkomu ýmiss nýs tækjabúnaðar, svo sem eins og skíðalyftu o. fl., eykst mjög slysahætta í skíðalandinu ef snjórinn er ekki vel þjappaður, og hefur orðið töluvert mikið um fótbrot og önnur meiðsli sem hafa hlotist af því að þarna vantar inn í öryggisbúnað skíðalandsins. Til þess að megi draga úr þessari slysahættu, sem er bæði fyrir keppnisfólk og eins áhugafólk um skíði sem þarna kemur saman til skíðaiðkana, ætlar Íþróttabandalagið að ráðast í kaup á þessum snjótroðara, sem eins og ég sagði áðan er alger forsenda fyrir kaupum á að aðflutningsgjöld fáist felld niður. Auk þess að vera öryggistæki við eitt af helstu skíðalöndum íslendinga er þessi snjótroðari þannig gerður að hann á greiðara með að komast um ófærar leiðir heldur en önnur slík tæki, t. d. eins og snjókettir eða snjósleðar, og Íþróttabandalagið mun hafa í hyggju að hægt verði að nota þennan snjótroðara til þess að halda uppi samgöngum að einhverju leyti, e. t. v. í sambandi við slysa- eða öryggismál, — halda uppi samgöngum að vetrarlagi milli Ísafjarðar og nálægra fjarða, en þar eru yfirleitt, eins og hv. þm. er kunnugt, lokaðir allir vegir vetrarmánuðina. Þessi snjótroðari mun henta vel til slíkra hluta, mun betur en barði snjóbílar og snjósleðar.

Á þskj. 275 flytja þm. Alþfl. nokkrar brtt. sem ég vil aðeins 1ýsa í örfáum orðum.

Fyrsta brtt. á þessu þskj. er frá hv. þm. Benedikt Gröndal og Jóni Árm. Héðinssyni. Till. fjallar um það, að varið verði 15 millj. kr. til sérstakrar frétta- og upplýsingaþjónustu í sambandi við útfærslu landhelginnar og baráttu við landhelgisbrjóta. Ég þarf ekki að fara mörgum orðum um nauðsyn þess að auka upplýsingastreymið frá Íslandi til annarra landa og frá atburðunum, sem verða á miðunum við Ísland, til þjóðarinnar sjálfrar. Hefur komið glögglega í ljós að þarna skortir töluvert á að vel sé. M. a. hafa forráðamenn okkar erlendis, sendiherrar Íslands, t. d. sendiherra Íslands í London og hæstv. utanrrh., látið í ljós þá skoðun að betur megi gera en gert er til þess að tryggja góða og öfluga upplýsingaþjónustu sem segi fréttir og veiti upplýsingar er skýri okkar afstöðu, stefnu og stöðu í landhelgismálinu. Ég held að það sé bráðnauðsynlegt að auka athafnir landhelgisgæslunnar og ríkisvaldsins á þessu sviði. Í þeim tilgangi er þessi till. flutt, að 15 millj. kr. verði varið til sérstakrar frétta- og upplýsingaþjónustu í sambandi við útfærslu landhelginnar. Þegar nauðsyn þessa máls er skoðuð fer ekki hjá því að þessi upphæð, þó há virðist vera í tölum talið, er ekki ýkjahá.

Í öðru lagi er á sama þskj. lögð fram till. frá hv. þm. Jóni Árm. Héðinssyni sem 1. flm. og ég er 2. flm. að þessari till. Till. er um það að varið verði 1 millj. kr. til umferðarfræðslu fyrir aldrað fólk, en eins og komið hefur fram frá umferðaryfirvöldum, einkum og sér í lagi hér í Reykjavik, ber mjög á því að það séu aldraðir vegfarendur sem verði jafnvel fyrst og fremst fyrir slysum í umferðinni. Annars vegar eru í mestri slysahættu í umferðinni, hér í Reykjavik a. m. k., böru. Fyrir þau er ákveðinni umferðarfræðslu haldið uppi, bæði í skólum og á vegum Umferðarráðs. Sá annar hópur fólks af vegfarendum, sem er í mestri slysahættu, er aldraða fólkið. Lítið sem ekkert er gert til þess að fræða það um umferðarmál. Því er þessi till. flutt, að 1 millj. kr. verði varið í því skyni.

Þá flytjum við hv. þm. Benedikt Gröndal till. á þessu sama þskj., III, þess efnis að framlög til ýmissa stofnana og þjónustufyrirtækja, er annast félagslega þjónustu, verði hækkuð nokkuð. Hér er um að ræða stofnanir eins og barnaheimilið Sólheima í Grímsnesi, fávitahælið í Skálatúni, Geðverndarfélag Íslands, Tjaldanesheimilið, Sjálfsbjörg, Styrktarfélag vangefinna, Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra, Neytendasamtökin, Foreldra- og styrktarfélag heyrnardaufra og Foreldrafélag fjölfatlaðra barna. Hér er ekki um háar upphæðir að ræða sem við leggjum til að varið verði til þessara félagasamtaka og stofnana, en það eru ekki heldur háar upphæðir sem hv. fjvn. gerir ráð fyrir að til þeirra sé varið. Í fjárl., sem nema alls 60 þú s. millj. kr., getur það ekki talist há upphæð að verja t. d. 300 þús. kr. í styrkveitingu til barnaheimilisins Sólheima, 300 þús. kr. í styrkveitingu til fávitahælisins í Skálatúni, 100 þús. kr. til styrkveitingar við Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra, og svo má lengi telja. Ég held að það sé varla vansalaust fyrir Alþingi íslendinga að afgreiða til þessara félaga og stofnana öllu minni fjárhæðir til styrkveitinga en við hv. þm. Benedikt Gröndal leggjum til á þskj. 273 að gert verði.

Þá flyt ég enn fremur ásamt hv. þm. Benedikt Gröndal brtt. á þessu sama þskj., IV, við 6. gr. frv., þ. e. a. s. við heimildaákvæði. Till. þessar eru sex.

Í fyrsta lagi leggjum við til, að ríkisstj. verði heimilað að fengnu samþykki fjvn. að lækka um allt að 10% liðina önnur rekstrargjöld hjá aðilum sem fjárlög fjalla um. Þessa heimild teljum við eðlilegt að veita ríkisstj. og vísum til þess að slíka heimild hefur ríkisstj. áður fengið. Mun það hafa verið hæstv. fyrrv. fjmrh. sem þá heimild fékk. Við teljum eðlilegt að reynt sé að beita aðhaldi, ekki aðeins í sambandi við framkvæmdir á vegum hins opinbera, heldur einnig varðandi önnur rekstrargjöld, og sjálfsagt sé að Alþ. veiti ríkisstj. heimild til slíks sparnaðar sem hér um ræðir.

Í öðru lagi leggjum við til, að ríkisstj. verði heimilað að ákveða hærra birtingargjald fyrir auglýsingar í sjónvarpi ef þær hafa að meginstofni til verið framleiddar erlendis.

Í þriðja lagi leggjum við til, að ríkisstj. verði heimilað að afla lánsfjár til þess að búa a. m. k. alla áætlunarflugvelli á landinu þeim tækjum sem atvinnuflugmenn telja nauðsynleg fyrir öryggi farþegaflugs. Ég vil í þessu sambandi vekja sérstaka athygli á ummælum flugmálastjóra, sem eftir honum hafa verið höfð í dagblöðum og öðrum fjölmiðlum nýlega, þar sem hann varar mjög eindregið við ástandi öryggismála á áætlunarflugvöllum landsins og hefur jafnvel haft við orð að ef ekki komi til mjög skjótra úrbóta í þeim efnum, þá kunni svo að fara að það verði að loka fyrir flug til þessara áætlunarflugvalla.

Fjórða till. um viðbót við heimildaákvæði, sem við flytjum, er að greiða skuli 10/00 af rekstrarhagnaði ÁTVR í sérstakan sjóð til að vinna gegn áfengisbölinu með nútíma áróðurstækni undir stjórn þriggja manna er ríkisstj. velur. Hér er um að ræða svipað fyrirkomulag og gildir um áróður gegn tóbaksreykingum og gilt hefur, að mig minnir, frá árinu 1973. Upphæð sú, sem hér um ræðir, mun vera 5.9 millj. kr., en það er svipuð upphæð og samstarfsnefnd gegn reykingum hafði til ráðstöfunar í þessu skyni á s. l. ári.

Þá er fimmta till. sem er á þá lund að heimila Ríkisútvarpinu að taka upp í fjáröflunarskyni hljóðvarps- eða sjónvarpsbingó samkv. reglugerð er menntmrn. setur. Í þessu sambandi vil ég vekja sérstaka athygli á því, að hér er ekki um nýtt mál að ræða. Sjónvarpsbingó hefur verið framkvæmt í sjónvarpinu, að vísu í auglýsingatíma þess, í fjáröflunarskyni fyrir ákveðin félagssamtök. Hér er um að ræða svipaða fjáröflunaraðferð og tíðkast viða erlendis. Í þriðja lagi er hér um að ræða mál, sem hefur m. a. verið rætt innan sjónvarpsins sjálfs og er töluverður áhugi hjá aðilum þar að upp verði tekið. Þar sem hér er um að ræða framkvæmd sem gæti aukið mjög tekjur Ríkisútvarpsins, án þess þó að ný skattgjöld í einu eða öðru formi væru lögð á almenning í landinu eða notendur útvarps, þá teljum við flm. sjálfsagt að veita ríkisstj. heimild til að láta framkvæma þetta, en við nánari athugun kynni að koma í ljós að hér væri um mál að ræða sem mundi geta haft eitthvað gott í för með sér fyrir aðstöðu Ríkisútvarpsins.

Í sjötta og síðasta lagi leggjum við svo til, að ríkisstj. verði heimilað að sameina heimildir fjárveitingar og styrki ríkisstofnana til kvikmyndagerðar undir eina stjórn til að tryggja sem hagkvæmasta notkun fjármuna, og vinni slík stjórn að tillögugerð um íslenska kvikmynda stofnun.

Herra forseti. Þá hef ég lokið við að fara örfáum orðum um þær brtt. við frv. til fjárl. sem ýmist ég stend að með öðrum þm. eða þm. Alþfl. að mér undanskildum hafa flutt.