27.10.1975
Efri deild: 9. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 173 í B-deild Alþingistíðinda. (132)

26. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Axel Jónsson:

Herra forseti. Ég vil fagna þessu fram komna frv. Það hefur verið, eins og hæstv. ráðh. drap á, áhugamál sveitarstjórnarmanna að fá fram þessa breytingu. Það var stórt skref stigið þegar Jöfnunarsjóður var myndaður. Á yfirstandandi ári munu tekjur sveitarfélaganna af framlagi Jöfnunarsjóðs vera á bilinu frá 12–18% af hinum almennu tekjum sveitarfélaganna. Af því sést að þetta er þýðingarmikill tekjustofn fyrir sveitarfélögin og þar af leiðandi til mikilla hagsbóta fyrir þau að það sé greitt mánaðarlega, en ekki eins og verið hefur, á 4 mánaða fresti.

Ég endurtek, herra forseti, ég fagna fram komnu frv.