26.01.1976
Sameinað þing: 39. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1604 í B-deild Alþingistíðinda. (1321)
Jarðskjálftar í Þingeyjarsýslum
Forseti (Ásgeir Bjarnason):
Frá því að við vorum hér samankomin síðast, 20. des. s. l., hafa gerst stórviðburðir. Laugardaginn 20. des. hófst eldgos í Leirhnúk í Suður-Þingeyjarsýslu, en samfara eldgosinu voru jarðskjálftar miklir alltaf annað slagið og er þeirra vart enn þá, en þeir reyndust mestir þriðjudaginn 13. jan. s. l. Fundust þeir þá mjög víða og hafa valdið miklum skaða. Á Kópaskeri í Presthólahreppi voru 130 íbúar og þótti öruggast að flytja flesta þeirra burtu þegar verst lét og hafa þeir ekki allir komið aftur, enda mikil eyðilegging á staðnum. Vatnsleiðslan varð meira og minna ónýt. Rafmagnslaust og símasambandslaust var um skeið. Hafnarmannvirki staðarins sundurklofin og sprungin. Mörg íbúðarhús eru sprungin og sum ónýt og allt innanhúss meira og minna eyðilagt. Í Núpasveit, Öxarfirði og Kelduhverfi hafa einnig orðið allmiklar skemmdir á mannvirkjum, íbúðarhúsum og öllu því er þeim fylgir, peningshúsum, ræktun, jarðvegi og fleiru.
Jarðskjálftar þessir hafa valdið verulegum óþægindum og eyðileggingu á allstóru svæði. Hundruð manna hafa orðið að þola meiri eða minni óþægindi vegna jarðskjálftanna. Málefni þessa fólks hafa þegar verið rædd í ríkisstj. og sjálfsagt mun Alþ. nú sem jafnan áður undir svipuðum kringumstæðum taka með fullum skilningi, samhug og stórhug á vandamálum þessum, svo að öllum þeim, sem eiga í erfiðleikum vegna jarðskjálftanna, megi auðnast að búa um sig á nýjan leik, treysta heimili sín þegar náttúruhamförum linnir, sem við vonum og óskum að megi verða sem allra fyrst.
Það er skammt stórra högga á milli. Það eru þrjú ár liðin síðan eldgos hófst í Vestmannaeyjum og rúmt ár síðan snjóflóð og manntjón af þess völdum varð í Neskaupstað. Auk þess hefur á sama tímabili orðið vart mikilla jarðskjálfta bæði í Borgarfirði og á Reykjanesi.
Við lifum í landi eldfjalla og ísa og getum því búist við að þessi gamalkunnu, kraftmiklu náttúruöfl minni á sig alltaf annað slagið. Íslenska þjóðin hefur jafnan sýnt þrautseigju og festu þegar á hefur bjátað, og hún hefur mætt hverri raun með dugnaði og samstilltum vilja til að leysa þann vanda sem hún stendur frammi fyrir, og ekki efast ég um að svo muni einnig verða að þessu sinni.
Það er ósk mín og von að alþm. megi nú sem jafnan áður auðnast að standa saman þegar leysa ber vandamál þau sem ég hef minnst hér á.