27.10.1975
Efri deild: 9. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 180 í B-deild Alþingistíðinda. (137)

21. mál, Olíusjóður

Stefán Jónsson:

Herra forseti. Ég tel fullkomna ástæðu til þess að fagna þáltill. sem hér um ræðir. Ég tel hana ekki síður tímabæra vegna þess að sjómenn gripu til þeirra ráða, sem þeim vafalaust voru þó ekki kær, að hætta vinnu og sigla í land til þess að undirstrika kröfur sínar um úrbætur á ófremdarástandi sem nú ríkir í kjaramálum sjómanna.

Það er e. t. v. þarflaust að deila hér um meginatriðin sem því ollu nú að sjómenn urðu að grípa til þessara ráða. Eftir því sem ég kemst næst og hef best fylgst með, þá voru það ekki síst vandkvæðin sem af sjóðakerfinu stafa sem þessu olli, þ. e. a. s. hið óheyrilega, óréttláta skiptaverð sjómanna.

Ég get tekið undir með 2. þm. Vestf. um þann grun hans, að þm. hafi ekki vitað til hlítar hvert horfa mundi með samþykktinni á myndun Olíusjóðsins á sínum tíma. Þeir voru sér mjög vel meðvitandi um nauðsyn þess að gera sérstakar ráðstafanir á þessum tíma til þess að bægja frá aðkallandi vanda vegna hækkunar á olíuverði. En ég hef staðfastan grun um að í heild hafi þeir ekki gert sér grein fyrir því með hvaða hætti stofnun þessa sjóðs mundi koma af stað algerlega óviðunandi ranglæti í útveginum hjá okkur, með hvaða hætti gjöldin til Olíusjóðsins mundu mismuna einstökum útgerðarmönnum og einstökum greinum útgerðarinnar og með hvaða hætti stofnun þessa sjóðs og gjöldin til hans mundu leggjast af ofurþunga á smábátaútveginn á Íslandi. Hefðu þeir gert sér grein fyrir því, þá hefði verið öðruvísi að unnið, ætla ég, við ákvarðanir varðandi Olíusjóðinn.

Það má vera að erfitt reynist að taka nú Olíusjóðinn einn út úr sjóðakerfi útvegsins á svipstundu. Þar af leiðandi má rétt vera að fjallað verði um alla sjóðina og tilvist þeirra í heild. En ég tel ekki fráleitt af hv. Alþ., sem samþykkti Olíusjóðinn, fjalli einnig um þessa þáltill. sem varðar nauðsyn þess að afnema hann eða koma á breyttri skipan frá því sem þar er ráð fyrir gert. Ég tel ekki óeðlilegt að hv. Alþ. geri það, og ég tel ýmislegt benda til þess að þessi þáltill. geti veitt hæstv. ríkisstj. eðlilegt aðhald og orðið nokkurt keyri á hana að láta nú vinna vasklega að þessum málum, áður en óréttlæti sjóðakerfis sjávarútvegsins stefnir fiskiskipaflotanum í land öðru sinni.