03.02.1976
Sameinað þing: 43. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1669 í B-deild Alþingistíðinda. (1382)
27. mál, atvinnuleysistryggingar
Guðmundur H. Garðarsson:
Herra forseti. Ég vil fyrir hönd þeirra kvenna í stéttarfélögum, sem nutu áður aðeins 2–3 vikna greiðslna vegna fæðingarorlofs, mótmæla því, að það sé ekki um kjarabót að ræða þegar þær eiga að fá samkv. núgildandi lögum þriggja mánaða greiðslur. Það er hægt að framkalla og biðja um alls konar samþykktir, en þegar þær samþykktir stríða gegn því að konur njóti réttarbóta, þá hlýt ég að mótmæla því hér á þingi. Það er ekkert sérfag alþb.-manna að mega flytja hér frv. til laga um réttarbætur öðrum til handa. En hins vegar skal það undirstrikað, að alþb.- menn börðust sérstaklega hart gegn því að þetta mál næði fram að ganga. Þó vil ég geta þess vegna fjarstadds þm., Magnúsar Kjartanssonar, að hann sagði þó við mig í einkaviðræðum þegar málið var til meðferðar á síðasta þingi, að þetta væri þó spor í áttina fyrir þær konur sem ekki hefðu notið þeirra kjara sem hér um ræðir. Ég vil að það komi fram, að sá ágæti maður Magnús Kjartansson skildi hvað hér var á ferðinni og hefði örugglega tekið þátt í og greitt atkv. með þessu máli svo sem það náði fram að ganga ef hann hefði verið hér í þingsölum.
En ég vil að gefnu tilefni, vegna þess að hér hefur verið talað um eignarréttinn að Atvinnuleysistryggingasjóði, óska eftir því við hæstv. trmrh., að 1. gr. laga um atvinnuleysistryggingar verði framkvæmd, en í 1. gr. segir svo m. a.: „Árlegar tekjur Atvinnuleysistryggingasjóðs skulu færðar á sérreikning verkalýðsfélaganna við sjóðinn.“ Ég óska hér með eftir því, að þetta lagaákvæði verði framkvæmt þannig að í ljós komi hverjir þeir aðilar eru sem leggja sjóðnum til tekjur.