03.02.1976
Sameinað þing: 44. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1674 í B-deild Alþingistíðinda. (1399)
44. mál, frestun framkvæmda við Grundartangaverksmiðjuna
Iðnrh. (Gunnar Thoroddsen) :
Hv. þm. spurði hvort eitthvað mundi hæft í því, sem sagt hefur verið í blaði, að nýir menn væru komnir til valda í félaginu Union Carbide og þeir vildu breyta aðild þannig að Union Carbide eignaðist meiri hluta í verksmiðjunni. Ég hef ekki heyrt á þetta minnst og veit ekki til þess að nokkur fótur sé fyrir þessari fregn.
Varðandi hina spurninguna, um það hvað liði fyrirætlunum um framkvæmdir, þá var eins og kunnugt er, ákveðið af stjórn félagsins að endurskoða áætlanir um framkvæmdakostnað og rekstrarkostnað og þeirri endurskoðun er að mestu lokið. Stjórn félagsins mun halda fund nú á næstunni þar sem sú endurskoðun verður rædd og þá teknar frekari ákvarðanir.