03.02.1976
Sameinað þing: 44. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1674 í B-deild Alþingistíðinda. (1400)
44. mál, frestun framkvæmda við Grundartangaverksmiðjuna
Eyjólfur K. Jónsson:
Herra forseti. Í tilefni af ummælum hv. 5. þm. Vesturl. um eignaraðild að Grundartangaverksmiðjunni, þá vildi ég gjarnan nota þetta tækifæri til að lýsa því yfir, að ég mundi telja — ég persónulega, eins og menn segja nú á dögum, — að eðlilegast væri að útlendingarnir ættu hana einir, ég held að það væri heppilegast, og við hefðum góða og trygga orkusölusamninga við þá. Ég hafði ekki heyrt það áður, að til greina kæmi að Union Carbide óskaði eftir meirihlutaaðild að verksmiðjunni eða jafnvel að það ætti hana eitt.
Það vildi svo til að hv. 5. þm. Vesturl. flutti hér till. um frestun á framkvæmdum sama daginn, held ég, og þeir hjá Union Carbide fóru fram á eitt og hið sama. Hann virðist hafa góð tengsl við þessa menn — eða einhvern veginn hugartengsl alla vega, svo að ég vona að hann hafi rétt fyrir sér í því að þeir vilji eiga meira í verksmiðjunni en áður hefur komið fram og helst alla.