03.02.1976
Sameinað þing: 46. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1703 í B-deild Alþingistíðinda. (1417)
Skyrsla forsrh. um viðræður við breta um fiskveiðideiluna og umr. um hana (útvarpsumr.)
Forsrh. (Geir Hallgrímsson):
Herra forseti. Gagnrýnd hefur verið leynd sem hvílt hefur yfir niðurstöðum eða innihaldi þeirra viðræðna sem fram fóru í Lundúnum um síðustu helgi og hve langan tíma viðræðurnar og athugun þeirra hefur tekið. Þetta hefur komið fram sérstaklega hjá hv. þm. Lúðvík Jósepssyni og Karvel Pálmasyni.
Varðandi tímalengdina eru 7 eða 11 dagar alls ekki langur tími. Ef við erum í langri baráttu, eins og allt bendir til, er þetta ákaflega stuttur tími. Mér finnst það bera vitni nokkurrar taugaveiklunar hjá þessum hv. þm. að gerast óþolinmóðir þótt þessi tími sé tekinn til þess að kanna þennan þátt málsins og þann áfanga sem við höfum náð eða stöndum á.
Þessa daga hafa breskir togarar áreiðanlega veitt í algjöru lágmarki, eins og sýnir sig best, að togarasjómennirnir voru teknir á taugum engu síður en hv. þm. Lúðvík Jósepsson og Karvel Pálmason. Bresku sjómennirnir kröfðust þess af sinni ríkisstjórn að fá skaðabætur greiddar vegna þess að þeir gátu ekkert veitt. Er það ekki einhvers virði, ef þetta er taugastríð öðrum þræði, að reyna þannig á taugar andstæðingsins? En þá mega bara taugar okkar sjálfra ekki bila um leið eða á undan, eins og virðist vera hjá þessum hv. þm.
Varðandi leyndina er því til að svara, að ég hef gefið formönnum stjórnarandstöðunnar, utanríkis- og landhelgisnefnd ítarlega skýrslu um viðræðurnar, og í þingflokkunum hafa verið gefnar skýrslur um gang viðræðna. Það er venja í alþjóðlegum samskiptum að samkomulag sé um upplýsingar hvað snertir innihald slíkra viðræðna og ekki venja að þær upplýsingar séu gefnar fyrr en niðurstaða er fengin. Og nú hefur niðurstaða fengist, upplýsingar eru gefnar, og ég sé ekki að leyndin hafi á nokkurn hátt skaðað okkar málstað nema síður væri.
Það er rætt hér um að aðstaða okkar til samninga sé engin, og vissulega er það rétt, að ef við eigum að hlíta ráðleggingum fiskifræðinga okkar um hámarksafla þorsks á þessu og næsta ári, þá er ekkert til skiptanna. Þess vegna er e. t. v. mjög einfalt að afgreiða þessa deilu við breta eða aðrar þjóðir á þann veg, að við höfum ekkert að láta og getum því ekki um neitt samið. Þetta er stefna stjórnarandstöðunnar. Allir flokkar stjórnarandstöðunnar hafa lýst þessu yfir nema fulltrúi Alþfl. nú áðan, sem sagði að rétt væri að ræða við aðrar þjóðir þótt þessi væri staðreyndin. Þarna er um nokkra breytingu að ræða á stefnumörkun þess flokks, sem ég fagna. En hvað snertir þá stefnumörkun Alþb. og Samtaka frjálslyndra og vinstri manna, að við eigum ekki að ræða við aðrar þjóðir og að við eigum ekki að leita samkomulags til lausnar deilu við aðrar þjóðir, þá vil ég segja það, að menn stinga höfðinu í sandinn.
Kostirnir eru ekki þeir að við getum einir tekið allan afla af Íslandsmiðum án þess að horfast í augu við að aðrar þjóðir taki svo og svo mikið í óleyfi. Þetta er reynsla okkar í þrem þorskastríðum. Þetta er reynsla okkar í þessu þorskastríði. Þess vegna eru valkostirnir annars vegar samningar og hvaða magn við getum látið aðrar þjóðir fá með samningum — eða engir samningar og hvað aðrar þjóðir taka upp af Íslandsmiðum án leyfis.
Ég vil bregða því upp, að fiskifræðingar okkar segja að með ótakmarkaðri veiðisókn sé unnt að veiða hér 330–340 þús. tonn af þorski. Ég hygg að við séum meira og minna sammála um að veita öðrum þjóðum en bretum allt að 20 þús. tonna veiðikvóta. Þá eru eftir um 310 þús. tonn. Þá er spurningin hvað bretar geta tekið í leyfisleysi. Ég skal ekki leiða getum að því, en þeir segja sjálfir a. m. k. 100 þús. tonn af þorski. Þá eru eftir fyrir okkur 210 þús. tonn, en þorskafli okkar var að lágmarki til á síðasta ári 240 þús. tonn. En þessi leið hefur í för með sér hrun þorskstofnsins að áliti fiskifræðinga. Þess vegna held ég að við séum öll sammála um að þessi leið er ófær.
Við skulum gera því skóna að við förum í þá hámarkstölu þorskafla sem fiskifræðingar hafa nefnt, 280 þús. tonn á ári, og drögum frá 20 þús. tonn fyrir aðrar þjóðir en breta. Þá eru eftir 260 þús. tonn og við gerum því skóna að bretar nái upp 100 þús. tonnum í leyfisleysi. Þá eru eftir 160 þús. tonn fyrir okkur. Þetta er óviðunandi.
Ég ætla mér ekki að gera tölur breta að mínum, og ég vona að tölur þeirra séu allt of hátt metnar. En við skulum hugsa hver fyrir sig hve mikinn afla bretar mega taka í óleyfi til þess að það borgi sig að semja við þá, vegna þess að við erum að færa út fiskveiðilögsöguna til þess að vernda þorskstofninn, og það er ekki eingöngu magn þorskaflans, sem þarna er um að ræða, heldur líka samsetning þorskaflans. Taka bretar meira upp í óleyfi af smáfiski þegar þeir sinna hvorki friðunarsvæðum né kröfum okkar um gerð veiðarfæra? Það er mjög sennilegt, og má raunar afdráttarlaust svara þeirri spurningu játandi. Þetta mælir með samningunum.
En hvers vegna er ég að ræða um þetta núna þegar við erum í raun og veru að hafna þeim hugmyndum breta sem þeir hafa sett fram? Ég segi þetta núna og ítreka það sem ég raunar hef áður sagt, að við íslendingar eigum fremstir allra þjóða að vilja leysa okkar deilumál með samningum. Við eigum ekki eingöngu að hrósa okkur af því í orði að við séum friðelskandi þjóð, við eigum að sýna það í verki. Hitt er svo annað mál, að okkur geta verið settir svo erfiðir samningskostir að það sé ekki unnt að ná samningum. Þá tökum við upp þá baráttu sem nauðsynleg er. En hún verður að vera háð með öðrum hætti en þeim sem sumir talsmenn stjórnarandstöðunnar hafa látið í veðri vaka hér á þessum þingfundi og endranær. Við verðum að sýna jafnvægi og rósemi. Við sigrum ekki andstæðinginn með afli eða valdbeitingu. Við höfum ekki afl til þess eða vald, við skulum gera okkur grein fyrir því, en við höfum rök og rétt okkar megin, og þótt við séum minni máttar getum við einmitt leikið á þá strengi að við sigrum að lokum. Það gerum við auðvitað ekki með því að hóta öðrum vestrænum ríkjum að við segjum okkur úr lögum eða félagsskap þeirra sem við um leið erum að leita skilnings og stuðnings hjá.
Það er alveg rétt, að auðvitað er það ekki ótakmarkaður skilningur eða stuðningur sem við njótum hjá öðrum þjóðum. Við skulum gera okkur grein fyrir því, að í alþjóðlegum samskiptum hugsar hver þjóð fyrst og fremst um sjálfa sig og hvaða hagsmuni hún hefur á hverjum tíma. Við erum að þessu leyti ekkert betri eða verri en aðrar þjóðir. Ég býst við því að við gerum okkur litla grein fyrir efni og innihaldi ýmissa alþjóðlegra deilna sem við heyrum þó mikið rætt í útvarpi og frásögnum þegar þessi deilumál eru til meðferðar hjá Sameinuðu þjóðunum eða öðrum alþjóðlegum stofnunum. Við skulum því gera okkur grein fyrir því, að við þetta takmarkast stuðningur og skilningur annarra þjóða við okkar málstað.
Við erum sjálfstæð þjóð og verðum að standa á eigin fótum. Það vinnur enginn þessa baráttu fyrir okkur nema við sjálf. Það er hlálegt að heyra þá menn, sem hafa barist á móti því að varnarliðið væri í landinu og öryggi landsins tryggt og að við séum í varnarsamtökum vestrænna ríkja, segja, að eina sem dugar sé að notfæra okkur þátttöku okkar í þessum samtökum og veru varnarliðsins til þess að vinna sigur í þessu máli. Það mætti spyrja þessa menn, ef það færi eftir sem þeir segja: Vilja þeir þá skuldbinda Ísland og íslendinga til þess að vera um aldur og ævi í þessum varnarsamtökum eða hafa varnarlið hér á landi? Ég vil það ekki. Ég vil að við íslendingar vinnum þetta stríð einir með skilningi og samúð annarra þjóða og stuðningi. Ég á ekki við það, að nein þjóð geti í raun og veru staðið ein í þessum heimi, þótt við verðum fyrst og fremst að treysta á mátt okkar og megin, og þá skiptir öllu máli að halda sálarró okkar og kjarki og þolinmæði á hverju sem gengur. Við skulum aldrei slá á útrétta hönd til samninga og skoða alla þá kosti sem fyrir hendi eru til þess að ná fram friðsamlegri lausn deilumála okkar. Í því eru hagsmunir okkar fólgnir.