04.02.1976
Sameinað þing: 46. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1729 í B-deild Alþingistíðinda. (1425)

Skyrsla forsrh. um viðræður við breta um fiskveiðideiluna og umr. um hana (útvarpsumr.)

Soffía Guðmundsdóttir:

Herra forseti. Í þeirri fiskveiðideilu, sem nú hefur staðið um skeið, hafa bretar að venju sýnt fádæma óbilgirni og hafa haft uppi ránskap og ofbeldi. Er óþarft að rekja þá sögu frekar. En nú síðustu dagana hafa alþm. og þjóðin öll beðið þess í ofvæni að fregna af því sem gerðist á samningafundum í London fyrir skömmu, en þangað var stefnt forsrh. Íslands, Geir Hallgrímssyni, til fundar við breska forsrh. Wilson, og aðra breska ráðamenn. Leið nú vika eftir heimkomu íslensku sendinefndarinnar og ekkert fréttist af því sem fram fór í London. En í gær rauf hæstv. forsrh. þögnina og greindi að nokkru frá samningaviðræðunum í London. Kom þá m. a. fram, að ríkisstj. var með samningstilboð til breta í fórum sínum, að vísu til skamms tíma eða þriggja mánaða og hafði þá þegar verið sent áleiðis til réttra aðila.

Um hvað er eiginlega verið að semja, þegar það er haft í huga, sem fram hefur komið skv. áliti færustu vísindamanna okkar, að þorskstofninn er í bráðri hættu ef ekki verður spyrnt við fótum og stöðvuð sú ofveiði sem ástunduð hefur verið á Íslandsmiðum? Það aflamagn, sem veiða má ef ekki á illa að fara, svarar til afla okkar íslendinga einna. Við höfum því ekki um neitt að semja. Ef við ljáum máls á fiskveiðiheimild til handa bretum hér við land, þá er um tvennt að velja: þ. e. a. s. hvert tonn af fiski sem við ráðstöfum til breta eða annarra, þýðir að við verðum að skera niður afla okkar sjálfra sem því nemur og verðum að nokkru marki að leggja fiskiskipum okkar, sem hefði aftur í för með sér versnandi atvinnuástand í meira eða minna mæli, ellegar við brygðum á það óráð að taka þátt í því ásamt bretum að ganga af þorskinum dauðum og kipptum þar með grundvellinum undan okkar eigin tilveru í öllum skilningi.

Fiskveiðar breta hér við land skipta ekki sköpum fyrir þeirra þjóðarbúskap. En varla þarf að minna á það, að íslendingar eru háðari sjávarafla en nokkur önnur þjóð. Það er sjávarútvegurinn sem stendur undir allri framþróun hér á landi síðustu áratugina. Ella byggjum við hér við þröngan kost. Það mættu þeir gjarnan hugleiða sem nú lifa góðu lífi út á þau verðmæti sem fiskimenn okkar færa að landi. Fiskveiðar eru efnahagslegur grundvöllur fyrir tilvist okkar í þessu landi sem sjálfstæðrar menningarþjóðar. Það er m. ö. o. sjálfstæðisbarátta sem við heyjum þessa stundina, og sakar ekki að minna á þá hlið málsins nú þegar ríkisstj. Íslands hefur kunngert áform sín um samninga við breta, þótt aldrei nema svo heiti sem þeir eigi aðeins að standa um skamma hríð.

Það kom fram í gær í ræðu hæstv. forsrh. og raunar einnig hæstv. utanrrh. að við séum lítils megnug og fáum vart rönd við reist þegar stórþjóð beitir ofbeldishótunum, betra sé að semja, því að ella taki bretar og þá vísast með ránskap og yfirgangi meira aflamagn en semja mætti um að öðrum kosti. Þetta virðist ekki vera amalegur samningsgrundvöllur sem hæstv. ríkisstj. sættir sig við að standa á andspænis bretum. Slíkt tal er vitaskuld einkum til þess fallið að draga kjark úr þjóðinni þegar mest á ríður að sýna af sér einbeitni og manndóm.

Við höfum ýmis vopn í höndum, sem bíta mundu ef beita mætti, svo sem stjórnmálaslit við breta fari þeir með herskip inn í íslenska landhelgi, lokun herstöðvarinnar í Keflavík og endurskoðun á veru okkar í NATO með tilliti til úrsagnar.

Það er kunnara en frá þurfi að segja, að fram hafa komið fjölmargar samþykktir og ályktanir frá félagasamtökum, sveitarstjórnum og ýmsum hópum fólks með ólíkar stjórnmálaskoðanir. Þar er komið það sem nefnt hefur verið „svokallað almenningsálit“. Almenningur í landinu hefur tekið af skarið í þá veru að ekki komi til mála að ljá máls á samningum af neinu tagi við breta. Þarna kynni hæstv. ríkisstj. að standa frammi fyrir a. m. k. broti af lýðræðislegum veruleika sem taka verður tillit til, að skepnan rís gegn skapara sínum. Dæmi eru um það, að þeir, sem um langt skeið hafa haft málflutning Morgunblaðsins að leiðarljósi og lotið andlegri forsjá hernáms- og NATO-sinna, einnig þeir tóku að ýfast og vefengdu réttmæti fyrri viðhorfa.

Þau mótmæli gegn hugsanlegum samningum sem fram hafa komið af hálfu fjölmargra samtaka, eru nokkur dæmi um það virka lýðræði sem er meira en nafnið tómt og þrátt fyrir allt býr með þessari þjóð. Slíkt lýðræði birtist ekki aðeins á fjögurra ára fresti, heldur með virkum athöfnum stjórnvöldum til aðhalds þegar um lífshagsmunamál er að tefla. En betur má ef duga skal, og nú reynir á það hvort lýðræðið er nægjanlega virkt til þess að hafa úrslitaáhrif á gang þessa máls. Til þess þarf öll alþýða manna að bindast öflugum samtökum þvert á öll flokksbönd og hindra að samið verði við breta. Nóg er þegar að gert með samningi við vestur-þjóðverja þó að ekki verði enn vegið í sama knérunn.

Herra forseti. Ég nefndi áðan að við hefðum ýmis vopn í höndum. Þar kemur fyrst og síðast til manndómur okkar sjálfra, sá manndómur sem ekki bognar fyrir hótunum og ofbeldi, en stendur fast á réttinum án undanlátssemi. Þessa baráttu verðum við íslendingar að heyja einir, og það er stefnufesta og reisn okkar sjálfra sem getur tryggt okkur sigurinn. — [Fundarhlé.]