04.02.1976
Sameinað þing: 46. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1730 í B-deild Alþingistíðinda. (1426)

Skyrsla forsrh. um viðræður við breta um fiskveiðideiluna og umr. um hana (útvarpsumr.)

Jón Árm. Héðinsson:

Herra forseti. Ég verð að láta það álit í ljós, að það sé ekki hægt að halda áfram þessum viðræðum ef enginn ráðh. sýnir okkur í stjórnarandstöðunni þann sóma að vera viðstaddur. Ég vil mælast til þess að annaðhvort forsrh. eða dómsmrh. virði stjórnarandstöðuna þess, þegar beðið er um samstöðu í málinu, að vera viðstaddur. (Forseti: Ég skal athuga hvort ráðh. eru í húsinu og láta ná í þá.) Annars mætti doka við í fáeinar mínútur. (Forseti: Já, það er allt í lagi á meðan. —- Ráðh. eru væntanlegir innan stundar.) — Já, herra forseti. Hæstv, utanrrh. heiðrar okkur í stjórnarandstöðunni með nærveru sinni og vil ég þakka honum fyrir þann sóma.

Ég vil athuga málið lítils háttar. Í ljósi þeirra staðreynda nú, að tilboði breta hefur verið hafnað, er þetta ljóst: 1) Meiri hl. þm. vill að áfram sé haldið að ræða málið við breta. 2) Ítrekuð yfirlýsing frá dómsmrh. og forsrh. um að landhelgin verði varin af fullri getu og einurð. 3) Utanrrh. breta segir skipun vera til skipherra herskipa þeirra um að sigla þegar inn fyrir 200 mílurnar og hindra varðskip okkar við réttmæta löggæslu við næstu klippingu. 4) Eftir þessar umr. í tvo daga á hv. Alþ. liggur ekkert fyrir enn um efni þeirra viðræðna sem ríkisstj. vor er að biðja um eða að hverju skal stefnt. Því spyr ég: Hvað á að bjóða nú? Það er kjarni málsins. Afstaða manna hér á Alþ. hlýtur að byggjast á því að vita hvað á að ræða nákvæmlega um. Svo mikill tími hefur farið í umr. áður að menn hljóta að hafa gert sér grein fyrir því, hve langt hægt er að ganga þegar semja á um málið. Héðan er boðið upp á viðræður, og mér finnst það réttmæt og eðlileg krafa að efnislega sé skýrt frá hvað hæstv. ríkisstj. hefur í huga. Auðvitað munu þeir segja að þetta sé viðkvæmt mál og það sé ekki rétt að spila öllu út. En svo mikill tími hefur farið í almennan undirbúning að málinu og svo mikið hafa menn sagt, að menn hljóta að gera sér grein fyrir því, hvað von er um að náist með samningum. Hvað á öll þessi þögn að þýða? Ef beðið er um samstöðu alþm. og samstöðu með þjóðinni, þá eigum við réttmæta kröfu á að vita hvað menn vilja ganga langt í samningsleiðinni. Ég legg á þetta mikla áherslu, ef hægt er að sýna fram á að aukinni vernd og minna aflamagni, þessu markmiði sé eina leiðin að ná í gegnum samninga.

Við í Alþfl. höfum lýst því yfir að við séum andvígir samningum, þar sem krafa breta hefur verið svo óbilgjörn að ekki er að sjá að sú leið hafi með nokkru móti getað tryggt það að við væri unandi. Við höfum heldur viljað berjast og taka á okkur það ok að verja fiskveiðilögsögu okkar og sætta okkur þá við þau úrslit sem verða með þeim hætti. Mér sýnist staðan jafnvel vera svo slæm í dag að það mætti líkja í svipinn við það að tveir andstæðingar stæðu saman — jafnvel skólastrákar — og segðu: Ég slæ þig ef þú slærð mig. — Það er ekki vænleg staða. Annars vegar er ljónslöppin fræga, þó að máttlaus sé orðin, og hinum megin spörfuglsfótur eða eitthvað ámóta. Ekki er nú líku saman að jafna, eins og hér hefur verið bent á, varðandi mátt og getu, og því er kannske samningsaðstaða okkar ekki sterk og því síður varnaraðstaða.

Grundvallarsjónarmið okkar hlýtur sú staðreynd að vera og á það hefur örugglega verið bent í öllum ræðum manna, að það þarf að vernda þorskinn, að hann gangi ekki til þurrðar. En hvað vilja bretar í því efni?

Það hefur komið fram hér í umr. að bretar sætti sig ekki við annað mark á fiski en 43 cm móti því sem við viljum, 50 cm í möskva 120 mm, þó kannske eitthvað stærra með löngu aðlögunartímabili, en við stefnum að 150 mm möskva þegar 1. ágúst og 135 mm möskva 16. maí n. k. Hér er því verulega breitt bil á milli bara verndunarsjónarmiða.

Því hefur verið haldið fram að það mætti taka meiri afla af Íslandsmiðum en 330 þús. tonn. Það kann að takast með þeirri tækni og þeirri sóknaraukningu sem fyrir hendi gæti verið. En hvað þýðir þessi aukning í samsetningu? Hún þýðir það, að við sækjum heldur í fiskstofninn varðandi stærð og tökum yngri fisk en nokkurt vit er í að gera, við sækjum þessa aukningu eingöngu í smáfisk og í stofninn frá 1973 sem er lífsspursmál að vernda. Um það held ég að enginn deili. Íslenskir fiskifræðingar hafa lagt fram óyggjandi rök máli sínu til stuðnings, að það sé ekki vit í því að auka sóknina frá því sem verið hefur, öllu fremur verði að draga úr sókninni. Við höfum fengið afla sem er kringum 330–350 þús. tonn undanfarin ár, og það er afar óskynsamlegt að taka meira. Við munum ekki geta ávaxtað okkar pund betur með nokkrum hætti en að varðveita þennan stofn, því að eftir 2–3 ár margfaldast hann að magni til og mun þá geta gefið okkur aukna sókn þegar á þriðja og fjórða ári frá þessu tímabili. Og þá munum við hafa sannanlega getu til þess að veiða allt sem leyfilegt er með fullum sóknarþunga frá okkur sjálfum.

Hér varð atvik á dögunum á miðunum sem hæstv. dómsmrh. túlkaði svo, að það mál væri það eina er bretar skildu. Nú hefur hann sagt hér í ræðu í dag að orð utanrrh. breta væru hótun ein. Það getur vel verið að báðum hæstv. ráðh. finnist hinn tala digurbarkalega, hvor á sínum stað, og vera með hótanir. Ég ætla ekki að dæma neitt um það. En þegar menn eru að reyna að ná samstöðu eða niðurstöðu með samningum, þá ættu menn að spara gífuryrði á báða bóga.

Mér virðist að ef nokkur leið eigi að vera að ná samstöðu hér á hv. Alþ. til skamms tíma um þetta viðkvæma mál, þá verðum við í stjórnarandstöðunni að fá að vita eitthvað hvað er í pokahorninu hjá hæstv. ríkisstj. Og það er útilokað að almenningur í landinu, eins og hann hefur tekið afstöðu til málsins undanfarið, sætti sig við neitt sem líklegt er að bretar geti fallist á, nema það sé rætt opinskátt og af hreinskilni við hinn almenna mann, sem á allt undir því að vel bakist til í raun og veru. Það er ekki nóg að halda því fram og segja að samningaleiðin tryggi okkur hagkvæmari niðurstöðu varðandi aflamagn en að berjast á móti því ofbeldi sem við höfum orðið að berjast gegn undanfarin ár. Það er ekki nóg, meðan við vitum ekkert hvað hæstv. ríkisstj. vill fallast á. Hún getur ekki heldur beðið okkur um stuðning við það sem við vitum ekki hvað er.

Ég held mér enn við það, að ég er á móti samningum meðan ég veit ekkert um hvað á að felast í þeim samningum. Það er ekki hægt að biðja menn um stuðning við það sem þeir vita ekki hvað er. Ég vil heldur sætta mig við að veru kúgaður til að láta fisk af hendi en að segja já gagnvart því sem ég veit ekkert hvað er og ekkert hvað kann að fela í sér. Ef hæstv. ráðh., hafa það þrek að segja okkur hvað þeir telja mögulegt að ná í gegnum skammtímasamninga, þá eiga þeir að gera það og leita eftir stuðningi a. m. k. um sinn varðandi þá hugmynd, þannig að þjóðin geti staðið saman um þá lausn sem þeir eru að reyna að finna á skammtímagrundvelli. Þetta er mín skoðun á málinu.

Ég held að það væri miklu hreinna að koma fram með þetta hugsanlega samningstilboð og segja þjóðinni það hreinskilningslega og standa og falla með því. Ef bretar hafna öllu, þá eigum við ekki annars úrkosta en að efla okkar landhelgisgæslu og takast á við þann vanda sem er í því fólginn að verja hana. Það hefur þegar verið sagt og margyfirlýst að hún verði varin. Ef á að framfylgja þessum orðum, þá stendur hin ógnunin af hendi breta, að herskipin komi inn fyrir strax. Hver er þá samningsaðstaðan, miðað við fyrri orð hæstv. ráðh? Hún er engin. Hún er fallin að sjálfsögðu á augabragði ef menn ætla að standa við orð sín. Þess vegna er, eins og ég sagði áðan, skynsamlegt að hafa ekki of hátt í þessu efni.

Málið er viðkvæmt, það eru allir sammála um það, og málið er erfitt, og við skulum ekki vera að hóta hinu og þessu á einn eða annan veg. Við skulum reyna að yfirvega málið af rósemi, eins og hæstv. forsrh. lagði áherslu á. En vilji hann fá okkur hina í lið með sér, þá er það lágmarkskurteisi að okkur sé sagt frá því hverju sé hægt að ná. Annars er ekki hægt að fara fram á það. Ef mér er ekki treyst fyrir því að fá að ræða í yfirveguðu máli hvað hægt er að ná með samningum, þá er tilgangslaust að biðja mig um stuðning í því efni. Það verður að koma fram, hvort við njótum þessa stuðnings og trausts — aðallega trausts — eða ekki í stjórnarandstöðunni.

Við í Alþfl, höfum verið á því, að það væri rétt að ræða við allar þjóðir og heyra, hvað hægt væri að komast langt, og taka síðan efnislega afstöðu til málsins eftir á, en ekki vera með neina fordóma fyrir fram. En við höfum lýst því yfir, að við séum ekki spenntir fyrir neinum samningum, og ég hef verið mjög ákveðinn í því að telja samningsleiðina ekki færa. Það hefur verið eytt mjög mikilli orku í að reyna að ná samningum og kanna samningsleiðina, svo mikilli orku að mér virðist að öll efnahagsmál okkar séu í hnút af því að ekki er um annað hugsað en landhelgismálið, og það er afsökun fyrir öllu, önnur frv. eru ekki einu sinni sýnd hér í þinginu. Það er jafnvel gengið svo langt að við sjálfir erum ekki búnir að afgr. þá löggjöf til fiskverndar okkar eigin skipa og fyrirkomulag við hagnýtingu okkar fiskveiðilögsögu, vegna þess að öll orkan fer í landhelgismálið gagnvart bretum, þó að daglega séu fregnir af því að við veiðum of mikið af smáfiski sjálfir. Þetta harma ég.

Herra forseti. Ég skal ekki lengja þessar umr. um of, en ég undirstrika það, að grundvöllur samkomulags hlýtur að byggjast á því einu að við tryggjum minni afla til handa bretum og jafnframt aukna vernd. Afstaða mín — ég ítreka það — mun byggjast á efni þess samnings sem hugsanlegt er að ná, og ég vil og fer fram á það að stjórnarandstöðunni sé sýndur sá trúnaður að hæst.v. ríkisstj, gefi okkur það til kynna hvað hún vilji ganga lengst til að ná samkomulagi. Annars er tómt mál um að tala að fá fylgi frá okkur.