04.02.1976
Sameinað þing: 46. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1734 í B-deild Alþingistíðinda. (1427)

Skyrsla forsrh. um viðræður við breta um fiskveiðideiluna og umr. um hana (útvarpsumr.)

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Ég skal ekki lengja þessar umr. mikið, það eru aðeins örfá orð, að því er virðist í lok þessara umr.

Hæstv. dómsmrh. flutti hér ræðu í dag sem þegar hefur verið gerð að umtalsefni að hluta a. m. k. og ég vil aðeins víkja að.

Ég vil í fyrsta lagi taka undir þau orð hæstv. dómsmrh., að að mínu áliti hefur hæstv. forsrh. staðið við umboðsleysið sem hann lýsti yfir að hann færi með til London, og það er meira en hægt er að segja um suma aðra sem fóru á svipaðan hátt og undir svipuðum kringumstæðum fyrir um röskum tveim árum, þegar menn gáfu sams konar yfirlýsingar og núv. hæstv. forsrh. um umboðsleysi til samningsgerðar eða samningsdraga, en komu til baka með ófrávíkjanleg skilyrði einmitt í því máli sem hér er nú verið að fjalla um. Hér er að mínu viti tvennu ólíku saman að jafna. Og það má núv. hæstv. forsrh. eiga, að hann hefur að mínu áliti staðið við þetta, að hér hefur aðeins verið um könnunarviðræður að ræða. Hitt stendur svo að sjálfsögðu óbreytt, að vilji hans til samninga er eftir sem áður fyrir hendi. Það er annað mál.

Ég tel ástæðu til þess að vekja hér sérstaka athygli á þeim skilningi sem hæstv. dómsmrh. lagði í það tilboð — segja menn, það skiptir ekki máli hvað það er kallað — sem hæstv. ríkisstj. hefur nú ákveðið að gera í áframhaldi af því að hafnað hefur verið kröfum breta, þ. e. a. s. að hún tjáir sig reiðubúna til viðræðna um samninga til stutts tíma. Það var um það rætt hér í gær, að menn vildu fá um það upplýsingar með hvaða hætti yrði framfylgt löggæslu á miðunum þann hugsanlega tíma sem þessar viðræður kæmu til með að standa. Það fór að mínu viti ekkert á milli mála hver meining hæstv. dómsmrh. er í þessu efni, og það er ástæða til þess að undirstrika það sérstaklega hér. Hann lýsti því yfir ótvírætt að mínu áliti að ekki yrði um neitt vopnahlé að ræða, nema því aðeins að bretar annaðhvort kölluðu togarana út fyrir 200 mílur meðan á þessum viðræðum stæði eða í öðru lagi að breskir togarar settu ekki veiðarfæri í sjó meðan þessar viðræður færu fram. Ef hvorugt þetta ætti sér stað, þá yrði haldið uppi fullri löggæslu á miðunum, þ. á m. klippingum. Þetta er að mínu viti mjög athyglisverð yfirlýsing hjá hæstv. dómsmrh. sem ástæða er til að vekja sérstaka athygli á, ekki síst vegna þess að fregnir herma að utanrrh. breta hafi lýst því yfir, eftir að hann hafði móttekið svar íslensku ríkisstj., að þeir mundu að sjálfsögðu taka þessu boði, eins og þeir kalla það, um viðræður, en breskar freigátur mundu sendar inn fyrir 200 mílna mörkin strax við fyrstu klippingu. Það er full ástæða til þess að hafa þetta í huga. Og ég vil mjög gjarnan spyrja bæði hæstv. utanrrh. og hæstv. forsrh. hvort það sé ekki sami skilningur ríkjandi af þeirra hálfu á þessu atriði málsins og hæstv, dómsmrh. lýsti hér að ég tel alveg ótvírætt yfir í ræðu áðan, þ. e. a. s. hvort það sé ekki alveg ótvíræður skilningur þeirra, eins og hæstv. dómsmrh., að því aðeins geti verið um vopnahlé að ræða að breskir togarar verði kallaðir út fyrir 200 milna fiskveiðilögsöguna eða þá að þeir láti veiðarfæri ekki í sjó á meðan samningaviðræður hugsanlega standa yfir, ella verði landhelgisgæslunni beitt af fullri hörku.

Það var í raun og veru fyrst og fremst þetta sem ég vildi gjarnan koma hér á framfæri og óska mjög eindregið eftir því að fá að heyra álit bæði hæstv. utanrrh. og hæstv. forsrh. á þessu atriði sérstaklega. Ég tek það fram, að komi ekkert fram af þeirra hálfu í þessum umr. hér á eftir, þá lít ég svo á að þeir séu í alla staði samþykkir því sem hæstv. dómsmrh. sagði hér í dag að því er þetta atriði málsins varðar.