05.02.1976
Efri deild: 50. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1739 í B-deild Alþingistíðinda. (1432)
144. mál, flokkun og mat á gærum
Landbrh. (Halldór E. Sigurðsson):
Herra forseti. Ég þarf ekki að hafa formála fyrir þessu frv. því að það er samið af sömu nefndarmönnum og sömdu frv. það sem ég talaði fyrir áðan, um mat á ull. Hér er um að ræða mat á gærum í frv. á þskj. 305 sem hér er nú til 1. umr.
Lög um gærumat eru frá árinu 1942 og fjalla þau um meðferð á gærum viðslátrun, söltun, geymslu og frágang til útflutnings. Þá var meginhluti gæranna fluttur úr landi óunninn. Af útfluttum gærum, sem voru 900 þús. á árinu 1975, fóru rúmlega 350 þús. óunnar til útflutnings, en afgangurinn með meiri og minni háttar vinnslu innanlands.
Gærusútun og skinnaiðnaður hefur farið í vöxt á síðari árum og aðferðir við slátrun og fláningu hafa breyst, frágangur á gærum einfaldast við sölu, geymslutími þeirra innanlands lengst og hráefnakröfur aukist. Iðnaðurinn óskar eftir hreinni litum í gærum og betra ullarfari. Mikill mismunur er á vöndun við fláningu og meðferð gæranna á geymslu án þess að verðið taki sérstaklega til þess. Mikil verðmæti tapast við slæma vinnslu. Flokkun og mat á gærum eru fyrirhuguð við móttöku kindarinnar í sláturhús og við afhendingu á gærunni frá sláturhúsi. Innleggjandinn, bóndinn, á ekki að bíða skaða af lökum vinnubrögðum í sláturhúsi né hagnast á því, sé hann með lakara fé til frálags við þessa framleiðslu en að meðaltali.
Gærur eru mjög viðkvæm vara í meðferð. Þörf er á lögskipuðum matsmönnum, er setji reglur um og fylgist með vinnslu á gærum í sláturhúsum, til að koma í veg fyrir meðferðargalla og skaða af þeim. Skemmd getur komið á öllum stigum framleiðslu: við slátrun, geymslu og flutning. Mjög mikil rýrnun er á gærum vegna afskurðar sem við sútun þarf að gera vegna verkunargalla. Við sláturhúsin skulu starfa gærumatsmenn, skipaðir af lögreglustjóra, en vera á launum hjá sláturhúsunum eða þeim sem taka á móti gærum af bændum. Yfirgærumatsmenn skulu vera fjórir og gærumatsformaður sé einn á landinu, launaður af ríkissjóði. Þetta er líkt og er með kjötmatið, aukakostnaður fyrir ríkissjóð er vegna yfirmatsins. Kostnaður við kjötmatið á s. l. ári var rúml. 1 millj. kr., en kostnaður af gærumatinu var sama og enginn, eins og áður hefur verið fram tekið.
Ekki orkar það tvímælis, að það mun margborga sig að koma á þessu mati á gærunum. Hér er um verðmæt hráefni í iðnaði okkar íslendinga að ræða, og auðvitað eigum við að stefna að því að vinna okkar gærur allar til fullnaðar, en selja þær ekki úr landi sem hráefni.
Ég legg til, herra forseti, að að lokinni þessari umr. verði málinn vísað til 2. umr. og hv. landbn., og það er einnig von mín, að þetta mál fái fljóta meðferð hjá n. svo að Alþ. geti afgreitt það nú þegar það hefur minna að gera en síðar verður.