05.02.1976
Neðri deild: 50. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1748 í B-deild Alþingistíðinda. (1441)
120. mál, umferðarlög
Gils Guðmundsson:
Herra forseti. Það eru aðeins nokkur orð til þess að þakka flm. þessa frv. fyrir að flytja það og lýsa yfir stuðningi mínum við meginatriði frv.
Ég held að það þurfi ekki að fara um það mörgum orðum, að umferðarmál okkar eru með þeim hætti að þar þarf að verða veruleg breyting á til bóta. Eftir því sem bílum fjölgar, eftir því sem hraðbrautum fjölgar og umferðarþungi og umferðarhraði vex, eftir því koma upp meiri og alvarlegri vandamál í sambandi við umferðina. Og ég er sannfærður um það af viðræðum, sem ég hef átt við þm. frá öðrum Norðurlöndum, að það er aðeins tímaspursmál þangað til verður talið sjálfsagt og algjörlega nauðsynlegt að koma hér á notkun bílbelta. Og ég vil aðeins undirstrika það, að hér er um alvörumál að ræða sem ég vona að sú hv. n., sem fær það til meðferðar, taki það fullkomlega alvarlega, kanni til hlítar, að hún afli sér þeirra upplýsinga sem þegar eru fyrir hendi um reynslu af þessu aðalatriði frv. annars staðar á Norðurlöndum. Svíar eru þegar komnir með meira en eins árs reynslu í þessu efni, og ég held að ég geti staðfest það, sem hv. fyrri flm. sagði áðan, að jafnvel margir þeir, sem töldu hæpið að lögfesta þetta atriði fyrir rúmu ári, telja nú að það hafi verið rétt og sjálfsagt að gera það og það muni alls ekki verða úr lögum numið.
Þetta eru aðeins örfá orð til þess að leggja áherslu á það, eins og hv. flm. hefur raunar gert bæði í mjög greinargóðri ræðu hér fyrir jól og svo aftur nú, að hér er hreyft mjög mikilvægu alvörumáli sem ástæða er til að leggja fulla rækt við. Ég treysti hv. allshn. til þess að gera það, kanna þetta mál niður í kjölinn og afgr. það síðan að þeirri könnun lokinni.