09.02.1976
Sameinað þing: 48. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1777 í B-deild Alþingistíðinda. (1464)

Yfirlýsing varðandi landhelgismálið

Forsrh. (Geir Hallgrímsson) :

Herra forseti. Rétt fyrir hádegi tjáði skrifstofustjóri Alþingis mér að þm. stjórnarandstöðunnar hefðu spurst fyrir um það hvort þess væri að vænta, að ríkisstj. gæfi hér yfirlýsingu varðandi landhelgismálið, en þá mundi það gefa þeim tækifæri til þess að fjalla um þætti þess, ella óskuðu þeir eftir því að kveðja sér hljóðs utan dagskrár um málið í deildum. Af hagkvæmnisástæðum hef ég óskað eftir því, að forseti Sþ. boðaði til þessa fundar, og á þessum fundi vil ég láta koma fram og lýsa yfir á þessu stigi málsins fyrir hönd ríkisstj. eftirfarandi:

Ákvörðun um stjórnmálaslit við breta verður tekin að höfðu samráði við þingflokka og utanrmn., en kunnugt er að aðalritari Atlantshafsbandalagsins og ýmsar þjóðir innan þess leggja áherslu á að vinna að lausn málsins þessa dagana.

Ég þarf í sjálfu sér ekki að láta mörg orð fylgja þessari yfirlýsingu að svo stöddu, en vil aðeins rifja það upp með örfáum orðum, að ákveðið var að taka mál þetta upp á vettvangi Atlantshafsbandalagsins, í fastaráðinu, og sömuleiðis var ráðuneytisstjóra utanrrn. falið að fara sem fulltrúi ríkisstj. til höfuðborga Atlantshafsbandalagsríkjanna í Evrópu til þess að leita eftir stuðningi þessara ríkja á vettvangi Atlantshafsbandalagsins, krafist var fundar í fastaráði Atlantshafsbandalagsins og stofnað var til samræðna við aðalritara þess.

Ég skal ekki rekja gang mála frá því að þetta gerðist. Eins og öllum er kunnugt var hér til umræðu í síðustu viku sú ákvörðun ríkisstj. að hafna viðræðum við breta á grundvelli þeirra hugmynda er fram höfðu komið af þeirra hálfu í viðræðunum í London, en um leið að tilkynna að við værum reiðubúnir til viðræðna við breta um samkomulag til skamms tíma. Þótt í upphafi væri jákvætt undir það tekið af bretum og þeir tjáð sig reiðubúna til slíkra viðræðna, þá fylgdu aðrar athafnir í kjölfar þeirrar yfirlýsingar þeirra og þeir rufu allar samkomulagstilraunir með því að senda herskip sín enn á ný inn í 200 mílna fiskveiðilögsögu okkar. Eftir það eru ekki skilyrði til viðræðna við breta. Um það hefur verið gefin afdráttarlaus yfirlýsing.

Eftir þessa endurteknu flotaíhlutun breta s. l. föstudag tók fastaráð Norður-Atlantshafsbandalagsins málið upp að fyrra bragði, einkum fyrir frumkvæði vestur-þjóðverja, án þess að við færum fram á það. Þannig hafa þjóðir í Atlantshafsbandalaginu, sem við höfðum áður haft samband við og leitað eftir stuðningi hjá, haft frumkvæði um að taka málið til meðferðar og leita lausnar á því. Við teljum ekki rétt að torvelda þeim það starf sem þær sjálfar hafa tekist á hendur og munum fylgjast með frá degi til dags hvaða árangur verður af því starfi. En ríkisstj. mun vitaskuld hafa mál þetta áfram til meðferðar og gera sínar ráðstafanir þegar tími er til kominn.