09.02.1976
Sameinað þing: 48. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1790 í B-deild Alþingistíðinda. (1471)
Yfirlýsing varðandi landhelgismálið
Forsrh. (Geir Hallgrímsson):
Herra forseti. Ég vil fyrst taka það fram, að ég álít það ekki virðingu Alþingis samboðið né hv. þm., þ. á m. mér, að eiga orðastað við hv. 5. hm. Norðurl. e. Ég vil hins vegar með mikilli ánægju svara þeim fsp. og aths. sem aðrir hv. þm. hafa varpað fram. Málflutningur þeirra var eðlilegur, virðulegur og samboðinn stjórnarandstöðu og að mínu viti sjálfsagt að ræða málin á þeim grundvelli er þeir gerðu.
Ég vil þá fyrst svara fsp. hv. 5. þm. Vestf. Karvel Pálmason spurði hvaða undirtektir till. hæstv. dómsmrh. um eflingu landhelgisgæslu hefðu fengið í ríkisstj. Það er óhætt að svara að þær fengu jákvæðar undirtektir. Landhelgisgæslan hefur tekið á leigu eftir atvikum og þörfum flugvél frá Flugfélagi Íslands til þess að sinna gæslustörfum, og tillögur að öðru leyti eru til úrvinnslu innan ríkisstj. og meðal embættismanna Landhelgisgæslunnar sjálfrar.
Þá var það spurning frá hv. 2. þm. Austurl. og 5. þm. Vestf. um hvað þessar þjóðir væru að ræða, þ. e. a. s. þjóðir Atlantshafsbandalagsins. Svarið er: Þær eru að ræða um það, með hvaða hætti unnt er að fá breta ofan af herskipaíhlutun sinni. Það er mergur málsins. Spurt var: Hvað ætla forráðamenn Atlantshafsbandalagsins sér langan tíma? Er hér um ótakmarkaðan tíma að ræða? varpaði hv. þm. Karvel Pálmason fram fsp. um. Ríkisstj. Íslands hefur ekki skuldbundið sig til þess að bíða einn dag eða fleiri daga. Hún mun ekki skuldbinda sig að einu eða neinu leyti að þessu leyti, ekki gefa neinn ákveðinn frest, heldur fylgjast með framvindu mála eftir því sem þróunin verður og miða aðgerðir sínar við það. En þessum mönnum til upplýsingar má segja, að Atlantshafsbandalagið lagði á það áherslu að aðalritari þess léti málið til sín taka og ræddi við forráðamenn ýmissa þátttökuríkja. Það er upplýst í fréttum, að Luns hefur átt viðræður við aðstoðarutanrrh. Bandaríkjanna og á víðræður við forseta og utanrrh. Bandaríkjanna í dag, og hann mun halda til Englands á morgun og eiga viðræður við forsrh. Bretlands á miðvikudaginn. Aðalatriðið er fyrir okkur að koma því til leiðar, að herskipin og þoturnar verði dregin til baka. Það skiptir mestu máli. Og stjórnmálaslitin við Bretland eru tæki í þá átt. Stjórnmálaslit eru fyrst og fremst vopn að þessu leyti. Ef bretum finnst nokkuð verra að úr þeim verði, þá hugsa þeir sig e. t. v. tvisvar um. Spurningin í þessu sambandi er sú: Með hvaða hætti getum við beitt þessu tæki á sem áhrifamestan hátt? Nú er þrýstingur á breta, spennan er þeirra megin, og við skulum láta næstu daga leiða í ljós hvort þeir láta af aðgerðum sínum á Íslandsmiðum, hernaðaríhlutun. Við eigum þess vegna að halda taugum okkar og jafnvægi og ganga úr skugga um hvort unnt er að ná markmiði okkar og áfanga að þessu leyti eða það tekst ekki.
Ég held þess vegna að það sé síður en svo og alveg fjarri lagi að tala um hik af hálfu íslensku ríkisstj. Hún hefur haldið fast á þessum málum. Hún hefur notað þá möguleika sem unnt er til þess að vinna að sigri málstaðar Íslands, og svo getur farið að enn á ný eigi sér stað vopnahlé á Íslandsmiðum. Við skulum engu spá um það. Það getur vel verið að þær tilraunir, sem nú er verið að gera til þess, fari út um þúfur. Þá er að taka því og þá er tæki eins og stjórnmálaslit ekki hlaupið frá okkur. Við höfum það í hendi okkar hvenær sem er að beita því og munum gera það þegar málstað Íslands kemur það best.
Mér finnst það síður en svo veikleikamerki að halda svo á málum að andstæðingurinn verði að svara fyrir sig, og það verður andstæðingur okkar í þessari deilu að gera nú. Hér er ekki um það að ræða að gefast upp fyrir bretum eða einum eða neinum. En það skiptir miklu máli, þegar til lengdar lætur og raunar einnig til skemmri tíma, að við eflum þá samúð og þann skilning sem ríkir með málstað okkar, bæði á vettvangi Atlantshafsbandalagsins og annars staðar í heiminum, með því að gefa þeim mönnum tækifæri, sem vilja leggjast á sveif með okkur, að ná árangri. Það er ekkert víst að þeim takist það sem þeir ætlast fyrir. Þá er að taka því, eins og ég sagði áðan, og þá heyjum við okkar baráttu áfram í þeirri trú að tíminn vinni með okkur. Við skulum þess vegna halda jafnvægi okkar umfram allt. Mér finnst sannast best að segja að bráðræði geti aldrei orðið okkur til gæfu og við glötum engu tækifæri með því að skoða framvindu mála frá einum degi til annars meðan þrýstingur er á andstæðinga okkar að láta af ofríki þeirra.
Ég skal svo ekki endurtaka það sem ég hef sagt hér áður í umr., fyrir tæpri viku. Ég tel að greina beri á milli aðildar okkar að Atlantshafsbandalaginu og dvalar varnarliðs á Íslandi og landhelgismálsins. Það er allt annað mál þótt við nýtum þann vettvang sem Atlantshafsbandalagið er til þess að efla skilning á málstað okkar í landhelgismálinu. Aðild okkar að Atlantshafsbandalaginu og varnarstöðin á Íslandi eiga sér aðrar skýringar sem hæstv. utanrrh. gerði grein fyrir áðan og ég þarf út af fyrir sig ekki að ítreka. Það eru sjálfstæðir hagsmunir að varnarstöðinni og aðild okkar að Atlantshafsbandalaginu sem við ætlum okkur ekki að versla með í sambandi við landhelgismálið. Og það kemur úr hörðustu átt þegar málsvarar Alþb. tala þannig, að ekki verður á þeim annað skilið en ef þessir aðilar gætu tryggt okkur 200 mílna fiskveiðilögsögu, þá væri allt gott og blessað með bæði aðild að Atlantshafsbandalaginu og þá staðreynd að varnarstöð er á Íslandi. Þetta er ekki hugsunarháttur að mínu skapi.
Ég vil svo ítreka það einnig, að afstaða okkar í fyrri þorskastríðum hefur verið með öðrum blæ en nú hvað snertir sérstaklega forsvarsmenn Alþb. Má þar til nefna að í landhelgisbaráttunni 1958–1961 kom ekki til róttækari aðgerða á stjórnartíma Alþb. en að sendiherra Íslands í Bretlandi var kallaður heim. Og sömuleiðis liðu margir mánuðir án þess að til sterkari eða róttækari aðgerða kæmi í landhelgisbaráttunni 1972–1973, og alþb.-menn luku þeirri baráttu með samningum við breta, sem ég áfellist þá ekki fyrir þar sem ég greiddi atkv. með þeim samningum.
Við höfum, eins og fram hefur komið í þessum umr., ástæðu til að ætla að línurnar skýrist í þessu máli, annars vegar hvað snertir næstu viðbrögð okkar gagnvart bretum á næstu dögum, allra næstu dögum, og hins vegar hvað snertir langtímamarkmið, að tryggja okkur 200 mílna fiskveiðilögsögu, þá muni viðhorfin skýrast jafnvel á næstu mánuðum og væntanlega á þessu ári. Við skulum þess vegna umfram allt halda þannig á málum að virðingu okkar sem sjálfstæðrar ábyrgrar þjóðar sé borgið og hagsmunum okkar í bráð og lengd.