10.02.1976
Sameinað þing: 49. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1798 í B-deild Alþingistíðinda. (1476)
50. mál, framkvæmd á lögum um ráðstafanir í sjávarútvegi
Fyrirspyrjandi (Lúðvík Jósepsson):
Herra forseli. Fyrirspurn mín er á þskj. 54 og er á þessa leið :
„1. Hvaða aðilar hafa fengið styrki og lán samkv. heimildum laga nr. 106 31. des. 1974 og nr. 55 27. maí 1975, um ráðstafanir í sjávarútvegi og ráðstöfun gengismunar? a) Hver var styrkur hvers nafngreinds aðila og hver var lánsupphæð hvers aðila? b) Hvaða reglur giltu um veitingu lána og styrkja? c) Hver voru lánskjör, þ. e. vextir, lánstími og tryggingar?
2. Hverjar reyndust eftirstöðvar samkv. g- og j- liðum laganna og hvernig hefur þeim verið ráðstafað?
3. Hverjir hafa fengið styrki samkv. d-lið laganna frá 1975? Fjárhæð tilgreind á nöfn hvers aðila.“
Það er nú orðið æðilangt síðan þessi fyrirspurn var lögð fram hér á Alþ. Ástæður eru ýmsar til þess að það hefur dregist að svara fyrirspurninni endanlega. Í fyrsta lagi kom til fjarvera hæstv. sjútvrh. og veikindi hans, síðan miklar annir rétt fyrir jól og svo alllangt þinghlé, og sakast ég ekki um það við neinn þó að þessi dráttur hafi orðið.
Ég hef líka í millitíðinni fengið frá hæstv. sjútvrh. við meginefni af mínum fyrirspurnum skriflegt svar, sem hann afhenti mér nokkru fyrir jólaleyfi, og er það að mínum dómi fullnægjandi um meginatriði málsins. En vegna þess að hér er um margþættar spurningar að ræða og býsna viðamikið mál, þá hef ég talið eðlilegast, úr því sem komið er, að hæstv. sjútvrh. hefði viljað dreifa meðal þm. skriflegu svari sínu við þessum fyrirspurnum, Hins vegar óska ég eftir því, að til viðbótar því, sem fram kemur í hinu skriflega svari hans og hann kemur til með að gera grein fyrir eflaust á eftir, þá verði einnig því svarað sem um er spurt í mínum fyrirspurnum, þ. e. a. s. hvaða nafngreindir aðilar, einstaklingar og fyrirtæki, hafa fengið styrki samkv. þeim lögum, sem hér er um rætt, eða fengið lánsfyrirgreiðslu samkv. lögunum. Ég tel eðlilegt að þetta sé upplýst, og í fullu samræmi við það sem áður hefur verið hér ger t, og ég vænti þess að hæstv. ráðh. sjái sér a. m. k. fært að láta það fylgja með í skriflegu svari sínu eða grg. sem útbýtt yrði til þm. um málið. Hér er um miklar fjárhæðir að ræða sem ráðstafað hefur verið eftir þar til settum reglum til útgerðaraðila í landinu og með þeim hætti, sem kannski var eðlilegt, að sumir útgerðaraðilar hafa fengið mikla lánsfyrirgreiðslu á sama tíma sem aðrir gátu ekki fengið þá fyrirgreiðslu, og enn aðrir hafa hlotið styrki eða óafturkræf framlög. Ég tel að það eigi einnig að koma skýrt fram, hvaða útgerðaraðilar það eru og hvað mikið hver þeirra hefur fengið.
Ég þarf ekki að gera frekari grein fyrir þessum fyrirspurnum, þær lýsa sér sjálfar. Ég vænti þess að hæstv. ráðh. sjái sér fært að verða við óskum mínum um það, hvernig þessu máli verði svarað.