10.02.1976
Sameinað þing: 49. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1803 í B-deild Alþingistíðinda. (1480)

50. mál, framkvæmd á lögum um ráðstafanir í sjávarútvegi

Sjútvrh, (Matthías Bjarnason) :

Herra forseti. Ég vil aðeins út af síðustu orðum hv. fyrirspyrjanda taka fram, að ég get ekki lofað því að gefa upp hvernig bankarnir hafa lánað þessar upphæðir eða til hvaða aðila. Það hef ég ekki í mínum höndum og hef ekki heyrt eða séð. Ég geri ráð fyrir að bankarnir verði erfiðir viðureignar að gefa upp hvernig þeir lána. Þeir hafa aðeins skuldbundið sig til þess að endurgreiða þetta fé á 2–3 árum, eftir því sem bætur til þeirra, sem keypt hafa erlend skip, falla, og byrja að greiða nú í vor. Framkvæmdastjóri Byggðasjóðs hefur lýst því yfir að bankarnir hafi haft með meginhluta úthlutunar á þessum 300 millj. kr. að gera, og því hygg ég að verði erfitt fyrir sjútvrn. að fá það upp hjá Byggðasjóði eða bönkunum. Það er eins með þessi lán og öll önnur, sem bankarnir taka að sér, að þeir hafa ekki og telja sig ekki hafa þær skyldur að veita um þau upplýsingar. Það hef ég orðið var við á ýmsum öðrum sviðum að hefur gengið erfiðlega, og ég hygg að fyrrv. bankamálaráðh. þekki þessa sögu mjög vel, að það verður erfitt verk. En bankarnir heyra ekki, eins og hann veit, undir sjútvrh., heldur undir viðskrh., og ég veit ekki hvort hann treystir sér að ná betri árangri til þess að birta hvernig bankarnir verja umræddu fé. Bankarnir eru í ábyrgð fyrir endurgreiðslu að hluta og Framkvæmdasjóður fyrir þeim hluta sem hann tók að láni. En eins og ég sagði hér margoft við umr. um þetta frv., þá ætlaði ég sem sjútvrh. aldrei að fara að deila einni krónu af þessari upphæð. Við það hef ég staðið og meira að segja ekki notað heimildina að öllu leyti, enda er það ekki fært, því að lán Fiskveiðasjóðs falla það ört að nú eftir nokkrar vikur er komin 84 millj. kr. skuld við Fiskveiðasjóð, svo að við höfum teflt á tæpasta vað með þessi lán til þess að greiða fyrir í sjávarútvegi almennt með þessum hætti.