10.02.1976
Sameinað þing: 49. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1806 í B-deild Alþingistíðinda. (1485)

305. mál, ráðgjafarþjónusta

Fyrirspyrjandi (Vílborg Harðardóttir):

Herra forseti. Fsp. mín er svo hljóðandi:

„l) Hvað líður framkvæmd I. kafla núgildandi fóstureyðingarlöggjafar um ráðgjöf og fræðslu varðandi kynlíf og barneignir?

2) Hve víða er vísir að slíkri ráðgjöf nú?“

Fsp. er borin fram þar sem þess hefur ekki orðið vart að neinar ráðstafanir hafi verið gerðar af hálfu heilbrrn, til framkvæmdar þessa lagakafla, þar sem gert er ráð fyrir að veita aðstoð sem hér segir, með leyfi forseta:

„l) Fræðsla og ráðgjöf um notkun getnaðarvarna og útvegun þeirra.

2) Ráðgjöf fyrir fólk, sem íhugar að fara fram á fóstureyðingu eða ófrjósemisaðgerð.

3) Kynlífsfræðsla og ráðgjöf og fræðsla um ábyrgð foreldrahlutverks.

4) Ráðgjöf og fræðsla varðandi þá aðstoð, sem konunni stendur til boða í sambandi við meðgöngu og barnsburð.“

Þá á að veita fólki, sem íbugar fóstureyðingu eða ófrjósemisaðgerð, ráðgjöf um læknishjálp, þungunarprófanir, ráðgjafar- og stuðningsviðtöl, félagslega aðstoð og aðstoð við umsókn og tilvísun til sjúkrahúss.

Enn fremur skulu viðurkenndar getnaðarvarnir fást hjá ráðgjafarþjónustunni. Ráðgjöfina skal veita á heilsugæslustöðvum og sjúkrahúsum. Hún á að vera í starfstengslum við mæðranefnd, kvensjúkdómadeild, geðvernd, fjölskylduráðgjöf og félagsráðgjafaþjónustu, og að henni skulu starfa læknar, félagsráðgjafar, ljósmæður, hjúkrunarfólk og kennarar, eftir því sem þörf krefur.

Ég hef ekki orðið þess vör að þess sjáist nein dæmi að unnið sé að framkvæmd þessara laga. En þótt rn. virðist ekki hafa unnið að því, tók Reykjavíkurborg í febrúar í fyrra upp slíka þjónustu í tilraunaskyni og var hún opin tvisvar í viku fram í júlí, síðan lokað vegna sumarleyfa og opnuð aftur í haust, en þá aðeins opið einu sinni í viku í sparnaðarskyni, enda þurfti þá að borga starfsfólki. Starfsfólkið tók hins vegar ekki laun fyrsta hálfa árið sem þjónustan fór fram í tilraunaskyni. Þarna vinna nú tvær hjúkrunarkonur, einn félagsfræðingur, tveir læknar, sem skiptast á, og ljósmóðir tvær stundir í viku.

Sú ráðgjöf, sem nú er veitt, nær enn ekki því sem gert er ráð fyrir í lögunum, en veitt eru ráð, eftir því sem hægt er, um t. d. allar tiltækar getnaðarvarnir og notkun þeirra. Hins vegar hefur veist erfiðara að hjálpa þessu fólki til að ráða fram úr því sem flokka má til kynlífsvandamála, og vantar tilfinnanlega menntað starfslið í þessa þjónustu. Hefur komið í ljós að æskilegt væri að koma á námskeiðum fyrir þá sem ætla að starfa við þessa ráðgjöf í heilsugæslustöðvunum framvegis, eins og reyndar er gert ráð fyrir í lögunum, en framkvæmdaraðilar þessara mála hafa sjálfsagt ekki hugsað um þá hlið málsins frekar en aðrar.

Ég vænti þess að fá skýr svör frá hæstv. ráðh.