10.02.1976
Sameinað þing: 49. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1807 í B-deild Alþingistíðinda. (1488)

77. mál, jöfnun símgjalda

Fyrirspyrjandi (Helgi F. Seljan) :

Herra forseti. Á þskj. 82 höfum við hv. þm. Jónas Árnason leyft okkur að bera fram fsp. til hæstv. samgrh. sem er svo hljóðandi:

„Hvað líður framkvæmd þál. um jöfnun símgjalda samkv. samþykkt Alþ. frá 28. mars 1974?“ Það er rétt að rifja upp tildrögin að þessari till. og hvernig till. sjálf hljóðaði. Þessi till. var flutt af svokallaðri byggðanefnd. Þar voru þingmenn allra flokka á ferð og till. var einróma samþykkt og viljayfirlýsingin alveg ótvíræð. En þál. hljóðaði svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Alþ. ályktar að fela ríkisstj. að haga endurskoðun gjaldskrár Landssímans þannig, að sem fyrst verði náð sem mestum jöfnuði með landsmönnum í kostnaði við notkun símans og dreifbýli og höfuðborgarsvæðið beri hlutfallslega sömu byrði hinna sameiginlegu heildarsímaútgjalda. Sérstaklega ber að stefna að því að: 1) símgjöld innan eins svæðisnúmers eða landshluta verði hin sömu um land allt, 2) gjöld fyrir símtöl úr dreifbýli til höfuðborgarsvæðisins lækki verulega.“

Ég þykist vita að gamla viðkvæðið um slæman fjárhag muni koma hér inn í umr. eins og ævinlega. Það mun að einhverju leyti vera rétt og mætti þá um leið athuga hvort í einhverju væri þá ekki um ofþenslu að ræða einnig. Hitt er annað mál, að ég álit að jöfnun símgjaldanna almennt eigi ekki að koma inn í almenna fjárhagsmynd Landssímans sem slík nema að litlu leyti. Ég held að það sé rétt munað hjá mér, að ein gjaldskrárbreyting hafi nokkuð gengið í þessa átt, mjög óverulega að vísu, og ég held að stofnunin hafi staðið jafnrétt eftir sem áður. Við starfið í byggðanefnd fengum við að kynnast skýrslu þar sem aðstöðumunurinn endurspeglaðist í umframgjöldunum fyrst og fremst, og hann var hreint ótrúlegur. Ég man ekki hlutföllin nákvæmlega, en ætli fimmfalt gjald hafi ekki verið næst sanni?

Nýlega fengu þm. — það mun sennilega hafa verið fyrir áramót — ítarlegt yfirlit yfir þetta stórmál frá Fjórðungssambandi norðlendinga, þar sem segir m. a. orðrétt, með leyfi hæstv. forseta:

„Tífaldur munur á símaþjónustu“. Og þá er miðað við Akureyri sem er þó betur í sveit sett en t. d. útkjálkar Austurlands og Vestfjarða, en þar segir, að sé hringt frá Akureyri eða fjarlægari svæðum til Reykjavíkur, telur teljari sjálfvirku stöðvanna tífalt miðað við skref innansvæðis í Reykjavík. Það er hægt að hringja í 10 númer í Reykjavík fyrir eina mínútu eða 10 skref frá Akureyri. Og sé tekið dæmi af fyrirtæki á Akureyri, sem mundi hringja 5 símtöl á dag til Reykjavíkur, miðað við 3 mínútur hvert, þarf að greiða fyrir það 274 þús. kr. á ári. Ef sama fyrirtæki er í Reykjavík og hringir sama símtalafjölda innansvæðis, er kostnaður 9–10 þús. kr. Fyrir sömu gjaldtöku má hringja 150 umframsímtöl á dag innan Reykjavíkur.

Ég skal ekki fara nánar út í þessa samþykkt Fjórðungssambands norðlendinga. En við vitum að miðstöð ríkisvalds og miðstöð ýmissar opinberrar þjónustu er hér í Reykjavík, og íbúar landsins alls þurfa á þessari þjónustu að halda og notkun símans í því efni fer mjög í vöxt. Því er eðlilegt að þetta mál sé brýnt og brenni á íbúum landsbyggðarinnar almennt.

Ég held að framkvæmd till. sé jafnbrýn í dag og við samþykkt hennar, og því er von að spurt sé hvernig mál standi nú, hvar framkvæmdum í þessa átt sé komið og í raun og veru hvort eitthvað miði í jafnaðarátt.