27.10.1975
Neðri deild: 10. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 199 í B-deild Alþingistíðinda. (149)

8. mál, námsgagnastofnun

Menntmrh. (Vilhjálmur Hjálmarsson):

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð út af ábendingum hv. þm. sem hér hafa tekið til máls.

Hv. 8. landsk. þm. talaði nú seinast og vék að því að kennarar í ýmsum skólum höfuðborgarinnar á grunnskólastigi virtust vera nokkuð sjálfráðir um það hvaða bækur þeir notuðu og þeir gætu eða a. m. k. gerðu foreldrunum að kaupa aðrar bækur en þær sem Ríkisútgáfan hefur með höndum. Hann drap á það að æskilegt væri og nauðsynlegt að ábendingar kæmu frá skólarannsóknadeildinni eða þeim hópum, sem undirbúa námsskrár, um það hvaða bækur séu notaðar.

Nú hef ég ekki texta þeirra orðsendinga eða ábendinga sem þessir aðilar senda út frá sér, en hins vegar gefur auga leið að fyrst hér er starfandi Ríkisútgáfa námsbóka og „skólarannsóknir“, sem eru deild í menntmrn., vinna á vegum ríkisins, þá er að sjálfsögðu til þess ætlast þegar framkvæma skal þá starfsáætlun, sem skólarannsóknirnar leggja skólastjórum og kennurum í hendur, að þar séu notaðar á grunnskólastigi bækur þær sem Ríkisútgáfan gefur út og afhendir ýmist ókeypis ellegar þá með sérstökum kostakjörum. En það er að sjálfsögðu ástæða til að gefa þessum þætti alveg sérstaklega gaum og athuga hversu mikil brögð eru að vinnubrögðum af þessu tagi.

Nú er það auðvitað ekki gallalaust að ein útgáfa segi alveg fyrir um það hvaða bækur skuli notaðar, og mönnum finnst það kannske nokkuð bundið. En án þess næst þó varla sá tilgangur ágætur sem lá til grundvallar því að lögin um Ríkisútgáfu námsbóka voru sett, svo að í meginatriðum verða menn sjálfsagt að reyna að halda sig að því að nota bækur útgáfunnar á skyldunámsstiginu eða á þeim skólastigum sem hún nær til.

Hv. 5. þm. Vesturl. gerði hér nokkrar athugasemdir og kom með nokkrar ábendingar. Hann minntist á allar kannanirnar sem stöðugt eru í gangi og fersentimetrareikninginn varðandi rúm það sem börn þyrftu í skólum. Mér dettur nú líka í hug mínútureikningurinn, því að til eru um það töflur í íslenskri löggjöf hvað vikustarfstíminn hjá viðkomandi starfsstétt skuli vera margar mínútur. Og það er vorkunnarmál þó að okkur, sem kenndu þarna fyrir austan, þetta langt frá miðstöðvarvaldinu hérna syðra, gangi dálítið illa að átta okkur á nauðsyn alls þessa. En eftir þessu kerfi er nú unnið og kannanir hafa verið margar, þó að eftir sé að setja upp þessa allsherjarkönnun á því til hvers þessar síðustu kannanir hafi leitt enda held ég að það sé varla tímabært enn þá.

Hann minntist á það, hv. þm., að það væri nánast hneyksli hversu tíð umskipti væru á kennslubókum, t. d. á framhaldsskólastiginu, nýjar útgáfur væru komnar áður en menn vissu. Þetta er náttúrlega ekki alveg nýtt kannske. Mig minnir ég hafa þrjár útgáfur af landafræði, þegar ég var í barnaskóla: Morten Hansen, Karl Finnbogason og Steingrím Arason. En þetta er ekki betra fyrir það þó að það hafi áður tíðkast. Þetta er þvert á móti mjög óæskilegt, að umskiptin séu svo tíð að þau hafi mikinn kostnað í för með sér og einnig mikil óþægindi fyrir nemandann. Ég er því alveg sammála að að þessu þurfi mjög að gæta.

Hv. 9. þm. Reykv. minntist alveg sérstaklega á það ósamræmi sem væri í kennslubókanotkun á milli skóla á sama stigi, t. d. innan menntaskólanna, og það er vitanlega einnig mjög óheppilegt, veldur miklum óþægindum og kostnaði, og er auðvitað fullkomin ástæða til þess að reyna, eftir því sem mögulegt er, að koma þar á sem mestu samræmi.

Ríkisútgáfa námsbóka, sem mun hafa verið stofnuð eða lögin sett 1936, var náttúrlega gífurlegt spor í jöfnunarátt, stuðlaði að því að þeir efnaminni hefðu sömu aðstöðu og þeir efnameiri til öflunar kennslubóka. Ég vil meina að þetta frv. feli fyrst og fremst í sér kerfisbreytingu fremur en gagngera breytingu á einstökum þáttum þeirra ákvæða sem nú gilda, t. d. um Ríkisútgáfu námsbóka og Fræðslumyndasafnið. En enda þótt svo sé, þá gefur flutningur þessa frv. og meðferð þess hér á hv. Alþ. tækifæri til þess að koma að athugasemdum og ábendingum um efnisatriði lík og þau, sem hér hefur verið drepið á, og vafalaust ýmis fleiri. Mun þá sjálfsagt koma í ljós að betur sjá augu en auga og ber að fagna því að menn leggi hér af mörkum, hv. þm. hver eftir því sem hann hefur þekkingu til á hinum ýmsu sviðum.

Hv. þm. Jónas Arnason minntist aðeins á Fræðslumyndasafnið og hvaða gagn muni af því hlotist hafa. Ég hygg að Fræðslumyndasafnið hafi gert mjög mikið gagn. Starfsemi þess er kannske fyrst og fremst tvíþætt. Annars vegar hefur það gefið út myndaflokk, skuggamyndaflokk, tók fyrst fyrir héraðsmyndir, en svo margar aðrar greinar. Og hins vegar hefur það aflað ýmiss efnis á kvikmyndasviðinu til útlána til skólana. Myndaflokkarnir eru hins vegar seldir skólunum á kostnaðarverði. Ég held að starfsemi Fræðslumyndasafnsins hafi þegar gefið ágæta raun og verið mjög til bóta. Hitt er svo annað mál, að það hefur aldrei haft svo mikil fjárráð sem æskilegt hefði verið að það hefði, t. d. til þess að sinna dýrari þættinum, kvikmyndahliðinni.

Hv. þm. minntist einnig á nauðsyn þess að taka sjónvarpið til kennslu. Þar er ég honum alveg sammála og það erum við sjálfsagt öll hér í hv. deild. Þetta hefur dregist til þessa, en hins vegar get ég fullvissað hv. þm. um að það mál er í könnun. Það var sett í það n. á sínum tíma, en ég hef ekki á þessari stundu upplýsingar um hvað þeirri könnun líður. En ég er fyllilega samþykkur þeirri ábendingu hans að á því ríður að taka þetta stórkostlega tæki til meiri nota fyrir skólana og fyrir beina kennslu heldur en átt hefur sér stað til þessa og það er okkur raunar til vansa hversu dregist hefur að koma því í kring.