10.02.1976
Sameinað þing: 49. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1810 í B-deild Alþingistíðinda. (1490)
77. mál, jöfnun símgjalda
Páll Pétursson:
Herra forseti. Ég vil þakka fyrirspyrjanda fyrir að vekja athygli á þessu máli, hæstv. samgrh. fyrir svar hans. En þrátt fyrir það að þeir eigi þar báðir góðan hlut að máli, þá held ég að fari ekkert á milli mála að það þurfi að vinna að þessu áfram með talsvert miklum þrótti. Ég held að það kerfi, sem við búum við núna, þurfi breytinga við og það róttækra grundvallarbreytinga. Þetta kerfi hefur í för með sér óverjandi aðstöðumun fyrir landsbyggðina og þéttbýlisstaði hér á Faxaflóasvæðinu.
Það er ákaflega gamaldags aðferð að miða gjaldskrá að verulegu leyti við vegalengd. Það var eðlilegt að það væri stefnan 1906. En síðan er mikið vatn til sjávar runnið og búnaður símans allur orðinn með allt öðrum hætti. Nú er ekki handvirk afgreiðsla milli einstakra stöðva nema í litlum mæli. Nú er fjarskiptabúnaður orðinn mikilvægur þáttur í símasamskiptunum, gerð símastrengja í jörðu er orðin með mjög fullkomnum hætti þannig að rásum hefur fjölgað. Skrefatalningin er gölluð, og jafnvel þó að unnið sé að því að hafa þau mislöng milli einstakra staða og ofurlítill jöfnuður náist með því og það sé þakkarvert í sjálfu sér, þá er það engan veginn nægilegt til úrbóta. Það eru tæknilegir örðugleikar á þessum úrbótum, mér er það fullkomlega ljóst, en það verður að leita leiða til þess að sigrast á þeim.
Það er enn fremur ástæða til þess að vekja athygli á misræmi sem er á milli staða, milli notenda innan sama verslunarsvæðis t. d. Þetta er miðað við einhvern vissan radíus, vissa línulengd frá símastöð, og það vekur óánægju og erfiðleika En ég hygg að hundurinn í þessu öllu saman liggi nú grafinn í því, að Reykjavíkursíminn er í vísitölunni, en ekki síminn út á landi, og landsbyggðin er þannig með óbeinum hætti að greiða niður símaþjónustu fyrir Reykjavík.
Ég get ekki farið héðan úr ræðustólnum öðruvísi en að nota þetta tækifæri til þess að vekja athygli á sérstaklega afleitri símaþjónustu sem við verðum að búa við sem erum ekki komnir enn þá inn á þetta sjálfvirka kerfi, og það eru býsna mörg byggðarlög þó að stöðugt sé unnið að málinu. Þessi byggðarlög búa við afar mikið öryggisleysi. Þar þarf að auka stórlega næturvörslu og leita bráðabirgðaúrræða. Minn sími t. d. er lokaður frá klukkan 3 á sunnudag til klukkan 9 á mánudegi. Og ég má ekki láta brenna hjá mér og ég má ekki verða lasinn á þessum tíma.