10.02.1976
Sameinað þing: 49. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1817 í B-deild Alþingistíðinda. (1500)

77. mál, jöfnun símgjalda

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Vel má það vera að hugarfarsbreyting hafi átt sér stað hjá hv. 9. landsk. þm. frá því sem var þegar hún var hér í borgarstjórn Reykjavíkur. En ég fagna því þó, að hugarfarsbreytingin hefur orðið á þann veg sem mér virtist koma fram áðan. Sama verður ekki sagt um hv. 12. þm. Reykv. Hann er við sama heygarðshornið enn og ætlar sér að vera þar áfram greinilega.

Nýjar hugmyndir, sagði hann við okkur. Vissulega eru til nýjar hugmyndir. Það væri hugsanlegt að fara sömu leið og var gert með t. d. með olíustyrkinn, láta okkur dreifbýlisbúa borga fyrst í sameiginlegan sjóð, svo fáum við einhvern örlítinn hluta af því til baka aftur. Þetta er ekki sú leið sem við viljum. Við viljum láta reykvíkinga ásamt öðrum þéttbýlisbúum borga eitthvað til jafns við okkur, sem við erum búin að borga um áratugi. Það er auðvitað hægt að taka upp nýjan skatt, leggja hann á alla landsmenn, sem við borgum svo og svo stóran hluta af og fáum svo eitthvað lítið brot til baka. Það er ekki þetta sem við erum að biðja um. Við erum að biðja um að jafnaður verði sá mikil aðstöðumunur sem er í því fólginn í þessu tilviki og ótalmörgum öðrum að búa úti á landi miðað við þá sem búa hér í Reykjavík. Ef þetta er ekki réttlætissjónarmið, þá veit ég ekki hvað er réttlæti í þessu landi.

Ég skal ekki hafa þessi orð öllu fleiri, herra forseti. Þetta er allt í tímaþröng komið. En ég fagna því sérstaklega að hv. 9. landsk. þm. hefur tekið hugarfarsbreytingum frá því að vera í borgarstjórn í Reykjavík. Það er þakkarvert.