10.02.1976
Neðri deild: 52. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1818 í B-deild Alþingistíðinda. (1503)
148. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum
Sjútvrh. (Matthías Bjarnason) :
Virðulegi forseti. Eins og kunnugt er óskuðu samninganefndir Sjómannasambands íslands og Landssambands ísl. útvegsmanna eftir því í mars s. l., að ríkisstj. skipaði n. undir forustu Þjóðhagsstofnunarinnar til að endurskoða gildandi lög og reglur um sjóði sjávarútvegsins, auk þess sem samhengi milli sjóðanna og skiptaverð sjávarafla og þar með aflahluta áhafna yrði tekið til rækilegrar endurskoðunar. Ríkisstj. fagnaði þessum tilmælum, og skipaði ég s. l. vor menn í umrædda nefnd samkv. tilnefningum Landssambands ísl. útvegsmanna, Sjómannasambands Íslands, Félags ísl. botnvörpuskipaeigenda, Farmanna- og fiskimannasambands Íslands, Alþýðusambands Austfjarða og Alþýðusambands Vestfjarða, en hagrannsóknastjóri var skipaður formaður nefndarinnar.
Hlutverk n., auk fyrrgreinds verkefnis, var að gera grein fyrir hugsanlegum samræmdum breytingum á starfsemi sjóðanna og gildandi hlutaskiptareglum. N. hefur lokið störfum og sent frá sér ítarlega skýrslu ásamt viðaukum og er þar gerð grein fyrir margvíslegum athugunum sem Þjóðhagsstofnun hefur unnið fyrir n. Vil ég þakka öllum þeim, sem hlut eiga í hinu mikla starfi sem liggur að baki skýrslunnar, og þá alveg sérstaklega Jóni Sigurðssyni hagrannsóknastjóra. Umrædd skýrsla hefur verið afhent öllum þm. og mun ég því ekki fjölyrða um hana nú, en vitna í bréf n. frá 19. f. m. og till. um sérstakt samkomulag aðila fyrir hönd sjómanna og útvegsmanna um breytingar á kjarasamningum í framhaldi af breytingum á lögum um útflutningsgjöld og sjóði sjávarútvegsins. Forsenda þessa samkomulags var yfirlýsing ríkisstj. um breytingar á lögum um útflutningsgjöld og sjóði sjávarútvegsins. Ríkisstj. hefur gefið út slíka yfirlýsingu og jafnframt óskað þess að n. starfi áfram til að auðvelda framgang þessa flókna máls.
Í framhaldi af því, sem ég hef sagt, leyfi ég mér að leggja fram þetta frv. til l. um útflutningsgjald af sjávarafurðum sem er óbreytt drög tillagna n. um sjóði sjávarútvegs og hlutaskipti, að viðbættu ákvæði til bráðabirgða, sem sett er til leiðréttingar á villu í lögum um Framleiðslueftirlit sjávarafurða.
Með frv. þessu eru öll ákvæði um útflutningsgjöld af sjávarafurðum numin úr núgildandi lögum og felld í ein lög, en frv. gerir ráð fyrir að lagt verði eitt útflutningsgjald á sjávarafurðir, þ. e. 6% af fob.- verði þeirra. Undantekningar frá þessari reglu eru selafurðir, en útflutningsgjald greiðist ekki af þeim, og sama gildir um niðursoðnar og niðurlagðar afurðir og söltuð grásleppuhrogn, en samkv. 6. gr. l. um
Sölustofnun lagmetisiðnaðarins eru þessar afurðir undanþegnar almennum ákvæðum um útflutningsgjöld í fimm ár frá árinu 1972 að telja, en mynda þess í stað sérstakan sjóð til eflingar lagmetisiðnaðinum. Þegar þessi tími er liðinn er reiknað með því að þessi gjöld renni til Iðnlánasjóðs. Um þessi ákvæði eru auðvitað mjög skiptar skoðanir, og að mínum dómi var rangt að skilja þessa starfsemi frá sjávarútvegi. Það er ákaflega erfitt í framkvæmd að undanþiggja lagmetisiðnaðinn öllum útflutningsgjöldum, en það er ekki hægt að öllu leyti í framkvæmd að undanþiggja hann frá því að njóta þessara sjóða. Því er álit þessarar sjóðanefndar að mínum dómi réttlátt. En það er erfitt að breyta þessari ákvörðun, þó að eftir séu tvö ár í sambandi við framlagið til Lagmetisstofnunarinnar. Hins vegar tel ég rétt að það verði athugað nánar og þó alveg sérstaklega að þeir, sem ekkert greiða til þessara sjóða, eigi þar af leiðandi ekkert að fá frá þeim.
Eins og kunnugt er hafa útflutningsgjöld verið mjög mishá af hinum ýmsu afurðum. Með þessu frv. eru gjaldskylduákvæðin samræmd og undanþágur og ívilnanir einstakra afurða felldar niður og í staðinn sett ein almenn regla varðandi afurðir.
Samkv. 3. gr. frv. er lagt til að sjútvrh. sé heimilt að lækka útflutningsgjaldið um allt að 0.3% fyrir hvert 1% sem hlutfall hráefniskostnaðar er lægra en 30% af fob.-verði hinnar útfluttu vöru, enda sanni útflytjandi að hráefniskostnaður sé lægri. Þó skal útflutningsgjald aldrei vera lægra en 1% af fob.-verði. Með frv. þessu er Olíusjóður fiskiskipa lagður niður, sömuleiðis sérstakt síldargjald. Aflatryggingasjóður mun starfa áfram með svipuðum tekjum, en Tryggingasjóður fiskiskipa er skertur um nálægt helming frá gildandi gjaldskrá útflutningsgjalda og verða greiðslur iðgjaldsstyrkja því skertar að sama skapi. Þá er gert ráð fyrir að tekjur af útflutningsgjöldum til Fiskveiðasjóðs og Fiskimálasjóðs verði sameinaðar, en ákveðnu hlutfalli af þeim tekjum verði varið til styrkveitinga, rannsókna, tilrauna og markaðseflingar.
Samkvæmt 4. gr. frv. er gert ráð fyrir að innheimta útflutningsgjaldsins verði í höndum ríkissjóðs, eins og verið hefur, og skilgreind skipting gjaldsins. Er miðað við áætlun um útflutningsverðmæti sjávarafurða á ári. Miðað við að gengi og verðlag í okt. 1915 er áætlað að skipting tekna af 6% útflutningsgjaldinu verði með eftirfarandi hætti, og til hliðsjónar fylgja tölur um tekjur samkv. núgildandi reglum í aths. með frv. Það er gert ráð fyrir því, að af þessu gjaldi fari 22% til almennu deildar Aflatryggingasjóðs og muni nema um 500 millj. kr., en miðað við núgildandi reglur er þetta 7.7% og þá áætlaðar 461 millj. Áhafnadeild er ætlað að fá 26% eða 590 millj., en hefur nú 9.3%, 554 millj. Tryggingasjóði fiskiskipa er ætlað að fá 27% af tekjunum, sem eru áætluð 613 millj. kr., en hann hefur nú 19.8% eða 1182 millj. kr. Fiskveiðasjóði og Fiskimálasjóði er ætlað að fá 21.9% samtals eða 497 millj. kr. Þar af eru 0.9% til styrkveitinga til rannsókna, tilrauna og markaðseflingar, eða um 20 millj. kr. Miðað við núgildandi reglur hafa þessir sjóðir 8.4% eða 497 millj. kr. Þeir fá eiginlega alveg það sama og er í núgildandi reglum. Til sjávarrannsókna og Framleiðslueftirlits sjávarafurða eru áætlaðar samkv. þessu frv. 2.3% eða 53 millj. kr., en er núna 62 millj. kr. Til samtaka sjómanna og útvegsmanna er áætlað 0.8% eða 18 millj. kr., en er í núgildandi reglum 0.2% eða 13 millj. kr. Hins vegar eru till. uppi um það að skiptingin á því, sem samtök sjómanna fá eða launþega, renni eingöngu til Sjómannasambandsins, Farmanna- og fiskimannasambands Íslands og Alþýðusambands Austfjarða og Alþýðusambands Vestfjarða, en ekki til Alþýðusambands Íslands. Það er sameiginleg till. fulltrúa aðildarfélaga sjómanna að þessi breyting verði gerð með þessum hætti.
Þá er lagt til að Olíusjóður verði lagður niður, en miðað við núgildandi reglur hefur hann einn fengið 53.6% af heildarútflutningssjóðsgjaldi, sem nemur 3196 millj. kr. Olíusjóðurinn er því langstærsta og veigamesta breytingin og róttækasta breytingin. En þar fylgir að með því að leggja Olíusjóð niður, þótt fiskverð hækkaði verulega, mundi það raska mjög verulega hlutfalli á milli útgerðar og sjómanna. Því hefur þetta mál verið rætt mjög ítarlega í sjóðanefndinni, og allir aðilar viðurkenna að hér þurfi að gera breytingu á þann veg að sjómenn eða launþegar taki á einhvern hátt þátt í því að útgerðin tekur á sig þennan útgjaldakostnað allan. Þeir leggja, bæði fulltrúar sjómanna og útvegsmanna, áherslu á að þeir fái sérstaka aðild að ákvörðun verðlagsnefndar á olíuverði til íslenskra fiskiskipa, en eins og nú er eiga þessir aðilar ekki aðild að verðlagsnefndinni. Ég hef rætt þessa ósk við hæstv. viðskrh. eða komið henni á framfæri, og ég vil taka það fram að ég tel eðlilegt og sjálfsagt að fulltrúar útvegsmanna og sjómanna fái aðild að verðlagsnefnd, þegar tekin er til athugunar og ákvörðunar tillaga um olíuverð til íslenskra fiskiskipa. Nm. eru sammála um að vegna þeirra breytinga, sem till. eru gerðar um, þurfi að taka afstöðu í samningum til allra hlutaskipta- og aflaverðlaunaákvæða kjarasamninga sjómanna og útvegsmanna, bæði þeirra, sem nú eru lausir, og annarra. Annað kemur auðvitað ekki til greina, sjómönnum verði ekki mismunað á þann hátt.
Hins vegar greinir sérstaklega fulltrúa sjómanna á um það, hvaða leið eigi að fara, hvort eigi að taka inn sérstakan lið vegna breytingarinnar á Olíusjóðnum, sérstakan olíufrádrátt. Það hefur helst verið till. fulltrúa Farmanna- og fiskimannasambands Íslands, en aftur fulltrúar undirmanna hafa verið á þeirri skoðun að breyta fremur hlutaskiptaákvæðum. En þetta eru mál sem aðilar vinnumarkaðarins verða að koma sér saman um. Þegar n. lauk sínum störfum, sendi hún sitt nál. til mín sem sjútvrh. og óskaði jafnframt eftir yfirlýsingu ríkisstj. um það, að hún beitti sér fyrir því að hraða afgreiðslu þessa máls. Við töldum rétt að n. starfaði áfram á meðan verið er að vinna að kjarasamningum, og nú fyrir tveimur dögum náðist það samkomulag, að Sjómannasamband Íslands, Alþýðusamband Vestfjarða, Alþýðusamband Austurlands og Farmanna- og fiskimannasamband Íslands fyrir hönd sjómanna og Landssamband ísl. útvegsmanna og Félag ísl. botnvörpuskipaeigenda fyrir hönd útvegsmanna gera með sér samkomulag um eftirfarandi greind atriði:
„1. Þar sem ríkisstj. hefur lýst því yfir, að hún muni beita sér fyrir setningu laga og reglugerða í samræmi við till. og ábendingar tillögunefndar um sjóði sjávarútvegs og hlutaskipti, lýsa aðilar því yfir að þeir munu gera þá samninga sín á milli, sem nú eru lausir um kjör sjómanna, á grundvelli till. og ábendinga sem fram koma í skýrslu n., dags. 19. jan. 1976.
2. Aðilar lýsa því enn fremur yfir, að þeir munu beita sér fyrir því að heimildir verði veittar til þess að taka þegar upp samninga á þessum grundvelli um breytingar á þeim kjarasamningum aðila, sem ekki hefur verið sagt upp, með sama hætti og væru þeir lausir.
3. Aðilar þessa samkomulags gera ráð fyrir að ríkisstj. láti fara fram sérstaka athugun á kjörum áhafna og afkomu útgerðar á stærri togurum, þ. e. 500 brúttólestir og yfir, við þessar breytingar. Athugun þessi verði gerð í samráði við samtök sjómanna og útvegsmanna og fulltrúa þeirra byggðarlaga, sem sérstakra hagsmuna eiga að gæta, með það fyrir augum að tryggja atvinnu sjómanna og rekstur sjávarútvegsfyrirtækja á þessum stöðum sbr. og bréf sjútvrn. til Félags ísl. botnvörpuskipaeigenda, dags. 3. júlí 1975.“
Undir þetta bréf rita fulltrúar þessara samtaka allra.
Önnur höfuðbreytingin með þessu frv. er framlagið til Tryggingasjóðs fiskiskipa. Sjóðanefndin leggur til að tekjur sjóðsins verði skertar um nálega helming og verði um 600 millj. kr. á ári, greiðslur verði skertar þannig að tekjur nægi fyrir gjöldum. Til þess þarf að skerða greiðslureglur um meira en helming, þar sem útgjöld vegna ársins 1976 mundu að óbreyttum greiðslureglum nema um 1700 millj. kr.
Við samdrátt í veltu Tryggingasjóðs kemur upp vandamál sem felst í skuld sjóðsins vegna fyrra árs. Sjóðurinn hefur frá upphafi verið rekinn þannig, að liðlega helmingur af tekjum hans hvert ár hefur verið notaður til greiðslu iðgjalda ársins á undan og í árslok hefur jafnan verið í skuld liðlega helmingur af iðgjöldum ársins. Þetta mætti orða svo, að sjóðurinn hafi jafnan velt á undan sér skuld að upphæð um helming ársveltu. Skuld sjóðsins við tryggingafélög í árslok 1975 er áætluð um 600 millj. kr. af um 1500 millj. kr. greiðslum vegna ársins 1975. Þar við bætist yfirdráttur í Seðlabanka, 84 millj. kr. Á móti þessu mun sjóðurinn fá sinn hlut í útflutningsgjöldum af birgðum sjávarvöru í árslok 1975, lauslega áætlað um 200 millj. kr. Þegar það hefur verið dregið frá er skuld sjóðsins tæplega 500 millj. kr. Auk þess er gert ráð fyrir að sjóðurinn njóti tekna vegna framleiðslu í jan. 1976 og til miðs febrúar, því að það var framlengt, og greiði iðgjöld fyrir þennan 11/2 mánuð á þessu ári með sama hætti og áður. Á því verður áreiðanlega halli, líklega á milli 50 og 100 millj. kr., sennilega um 100 millj. kr. Þegar sá halli er tekinn með, þá getur skuld sjóðsins að frádregnum óinnheimtum tekjum orðið nálægt 550–600 millj. kr. eða svipuð upphæð og ráðgerðar árstekjur í þessu frv. Verði till. n. fylgt og engar sérstakar ráðstafanir gerðar til að mæta greiðslubyrði sjóðsins er útlit fyrir að greiðsludráttur hans lengist skyndilega úr nálega 6 mánuðum í 12 mánuði.
Þetta er afar fráhrindandi útlit og fær auðvitað engan veginn staðist. Sjóðanefndin bendir á nauðsyn þess, að Tryggingasjóður geri fyrir hönd ríkisstj. sérstakt samkomulag við tryggingafélögin um endanlegt uppgjör iðgjaldastyrkja vegna ársins 1975 og til 15. febr. á þessu ári. Enn fremur segir í nál. að fulltrúar útvegsmanna leggi sérstaka áherslu á þetta atriði og bendi á að reynst geti nauðsynlegt að gera sérstakar ráðstafanir á umþóttunartíma til þess að greiða fyrir breytingum sem feli í sér röskun á fyrirkomulagi sem staðið hefur lengi. Í áliti sjóðanefndarinnar felst þannig óbeinlínis ábending um að með einhverjum hætti þurfi að útvega fjármagn til að laga stöðu sjóðsins svo að breytingin verði möguleg, enda virðist ekki unnt að gera samkomulag við tryggingafélögin um greiðslu eftirstöðva iðgjaldsstyrkja frá árinu 1975 nema tryggt sé fjármagn til að standa við slíkt samkomulag.
Það fer ekki á milli mála að þessi skuldbinding hvílir á ríkissjóði, að gera upp iðgjaldastyrkina til þess tíma að nýjar reglur ganga í gildi. Sjútvrn. hefur árlega ákveðið snemma á hverju ári með hvaða hætti iðgjöld skuli greidd úr iðgjaldasjóði og því hvílir sú skuldbinding á ríkisstj. að gera upp við tryggingafélögin samkv. þeim yfirlýsingum.
Nú kunna einhverjir að spyrja: Hvernig stendur á því að þessi mikli halli er á vátryggingunum? Er þetta nýtt fyrirbrigði eða hefur þetta verið frá því að þessi starfræksla hófst? Það má segja að þegar núgildandi fyrirkomulag var tekið upp, þá tók það gildi 1. ágúst það ár sem það var sett á hvað snertir tekjur til sjóðsins, en hins vegar voru lögð á sjóðinn útgjöld frá 1. jan. það ár, m. ö. o. að sjóðurinn byrjaði starfrækslu sína með því að taka skuldbindingar 7 mánuði áður en var farið að afla tekna til hans. Það hefur leikið á 6–9 mánuðum sem sjóðurinn hefur verið eftir með greiðslur allan þann tíma sem hann hefur starfað, og þrátt fyrir það að varið var 100 millj. kr. af gengishagnaði við síðustu gengisbreytingu, þá er nú staða sjóðsins með þessum hætti.
Þetta vandamál verður ríkisvaldið að taka á sig. Hvernig það verður leyst get ég ekki fullyrt á þessari stundu, en það verður að leysa það á þann hátt að tryggingafélögin fá með eðlilegum hætti þessar greiðslur, en þær bitni ekki á þeim hluta sem verður framvegis, ef þessi frv. verða að lögum, ráðstafað til sjóðsins. Enn fremur er nauðsyn við þessa kerfisbreytingu að gera þá breytingu, að tekinn verði ákveðinn hundraðshluti af fiskverði og þá af bönkum hverju sinni til þess að greiða inn á reikninga viðkomandi skips hjá vátryggingafélögunum, því að ef það verður ekki gert, þá er hætta á því að þá myndist strax sá hali að það verði stöðvun hjá skipum þegar þau þurfa að fara í tjónaviðgerðir. Mér er kunnugt um það, að bæði fulltrúar útvegsins og fulltrúar sjómanna hafa mikinn hug á því að þetta fyrirkomulag verði tekið upp og ef til kemur, sem ég býst við, þurfi að leita aðstoðar ríkisvaldsins og þá sennilega Alþingis til þess að taka upp þetta nýja form. En það er í sjálfu sér laust við þetta frv. sem hér liggur fyrir, en þó í beinum og óbeinum tengslum við það.
Með þessu frv. er lagt til að færðir verði 4 milljarðar kr. úr fjárráðstöfun sjóða sjávarútvegsins yfir í fiskverð til sjómanna og útvegsmanna, og er gert ráð fyrir að ákvæði frv. taki til útflutnings sjávarafurða sem framleiddar verða eftir 15. febr.
Ég taldi rétt að dreifa öllum þeim gögnum, sem sjóðanefndin vann að, í fyrsta lagi til nm. í sjútvn. beggja d. og til allra alþm., til þess að þeir gætu kynnt sér þessi mál áður en frv. kæmi inn á Alþ. Enn fremur hafa sjútvn. beggja d. haldið fund með fulltrúum sjóðanefndarinnar til þess að spyrja þá um nál. Þess vegna má segja, að áður en þetta frv. kemur til umr. hér á hv. Alþ. og í þessari hv. þd. hafi verið búið að kynna málið rækilega fyrir öllum alþm. sem hafa fengið öll þessi gögn í hendurnar, og sömuleiðis hafa sjútvn. beggja d. unnið að málinu, svo að það ætti að vera tryggt að málið fái fljóta afgreiðslu í gegnum þingið.
Ég vænti þess, að hv. sjútvn. haldi fljótt fund um málið og afgreiði það og helst sameiginlegan fund með sjútvn. hv. Ed. En ég tek það fram, að það er forsenda þessa máls að samningar náist á milli aðila vinnumarkaðarins um þessa róttæku breytingu, því að náist þeir ekki, þá er auðvitað með samþykkt þessa frv. séð að útgerðin heldur ekki áfram. Þess vegna er það forsenda þess, að þessi breyting verði gerð, að aðilar vinnumarkaðarins nái samkomulagi. En það er hvergi með flutningi þessa frv. gripið inn í þá samninga, enda er það mál sem þessir aðilar eiga að koma sér saman um. Ég vona það, að þótt nú séu uppi nokkuð skiptar skoðanir og þá einkum meðal aðildarfélaga sjómanna um hvaða leiðir eigi að fara í þessum efnum, þá náist samkomulag þó að nú sé orðið skammt til stefnu. En þrátt fyrir það tel ég að Alþ. eigi og þurfi að hraða þessu máli. Þetta er mjög merkt og mikilvægt samkomulagsmál á milli sjómanna og útvegsmanna. Það eru gerðar hér veigamiklar breytingar sem mikið hefur verið talað um, og það er vilji þessara aðila að gera þessar breytingar. Þá finnst mér auðvitað að Alþ. geti ekki annað en stutt að því að þær breytingar nái fram að ganga.
Virðulegi forseti. Ég legg til að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til 2. umr. og hv. sjútvn.