11.02.1976
Neðri deild: 54. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1848 í B-deild Alþingistíðinda. (1521)

148. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum

Sjútvrh. (Matthías Bjarnason) :

Herra forseti. Út af þeim orðum, sem hv. 7. þm. Reykv. lét falla varðandi 6. lið 4. gr., en þar segir að varið verði til samtaka sjómanna samkv. reglum, sem sjútvrn. setur, 0.4% af útflutningsgjaldinu, þá er ætlað samkv. þessu frv. að verja til samtaka í útvegi, til samtaka útvegsmanna og sjómanna, 0.8%, og varð samkomulag í n. um að leggja til að því yrði skipt jafnt á milli útgerðarmanna og sjómanna, 0.4% til Landssambands ísl. útvegsmanna og 0.4% til samtaka sjómanna samkv. reglum sem rn. setur. Hins vegar leggur sjóðanefndin til og er sammála um að þetta gjald til sjómannasamtakanna skiptist á þann veg, að 42% renni til Sjómannasambands Íslands, 40% til Farmanna- og fiskimannasambands Íslands, 9% til Alþýðusambands Vestfjarða og 9% til Alþýðusambands Austurlands. Það er rétt hjá hv. 7. þm. Reykv., að hér er lagt til frá hendi sjóðanefndarinnar að taka af Alþýðusambandi Íslands þá hlutdeild sem sambandið hefur haft af þessum tekjum af útflutningsgjaldi. Ég fyrir mitt leyti sé ekkert athugavert við það og tel bæði sjálfsagt og skylt að ræða þessi mál við þá fjóra aðila sem hér eiga hlut að máli og Alþýðusamband Íslands. Ég tel að hlutur atvinnurekenda eða útgerðarmanna sé alveg afgreiddur. Þetta er mál sem varðar algerlega launþegasamtökin, og ég skal fúslega verða við þeirri ósk að ganga ekki frá þessum reglum nema halda fund með þessum aðilum eða fulltrúum þessara aðila.

Ég ætla ekki að fara að svara hér ítarlega ræðu hv. 2. þm. Austurl., en ég vil aðeins minna á það, að það er alveg hárrétt hjá honum, að það eru ekki nein lög til um Olíusjóð fyrr en seint á árinu 1974. En við þær olíuverðshækkanir, sem áttu sér stað síðast á árinu 1973 og ársbyrjun 1974, er gripið til þess ráðs að afla tekna af loðnuafurðum. En það er auðvitað ekki gert á kostnað verksmiðjanna einna, það er gert auðvitað á kostnað allra aðila sem framleiða þessa vöru, eins og allar aðrar sjávarafurðir til annarra sjóða. Það þótti þá nauðsyn og var talið að loðnuafurðirnar væru best settar miðað við verðlag til þess að standa undir slíkum niðurgreiðslum. Eftir að þetta er gert heldur olían áfram að hækka, og það er ekki gerð nein breyting á, niðurgreiðslan á sér stað á því ári miðað við 5.80 kr. á lítra, sem hefur haldist óbreytt síðan. Við þær miklu hækkanir, sem urðu á olíunni eftir að núv. ríkisstj. tók við, þótti auðvitað ekki fært annað en að leggja slíkan skatt á allar sjávarafurðir, því að það var þá sjáanlegt og í raun og veru löngu áður en fyrrv. ríkisstj. fór frá að loðnuafurðirnar gætu ekki staðið undir þessum niðurgreiðslum.

Hitt er svo annað mál, sem hefur ekki verið umdeilt, að hvorki ég né fyrrv. sjútvrh. eða aðrir höfum talið þetta æskilega leið. En á meðan hlutaskiptareglum var ekki breytt, var sjáanlegt, bæði við hækkun á olíunni, sem varð á heimsmarkaði, og þegar við bættust gengisbreytingarnar, að ekki var hægt að leggja þennan skatt á útgerðina eina. Það vissu allir menn. Hitt hefur gengið seint og silalega og er ekki séð fyrir endann á því enn þá, hvort verður samkomulag á milli aðila útgerðar og launþega um breytta hlutaskiptaprósentu. Það er það sem hefur staðið í veginum, að þegar verður slíkur ofboðslegur tilkostnaður eins og hefur sýnt sig hvað olíuna snertir, þá hefur ekki verið hægt að leggja það á einn aðila, en sleppa öllum öðrum. Þess vegna hefur auðvitað orðið að breyta og verður að breyta kostnaðarskiptingunni.

Ég er alveg sammála hv. þm. hvað það varðar, að það er mjög óæskileg leið að ríkisvaldið þurfi nokkru sinni að grípa inn í kjarasamninga. En það er þó sú leið sem oft hefur orðið að fara vegna þess hve kjarasamningar ganga seint og hvað viðhorf manna eru oft rígbundin og menn þurfa langan tíma til þess að skilja að það verður alltaf að endurskoða bæði þessa samninga og svo margt annað í ljósi fenginnar nýrrar reynslu. Það er það sem hefur á skort.

Í sambandi við framlagið til Fiskveiðasjóðs og Fiskimálasjóðs vil ég láta koma hér fram, að þegar sjóðanefndin ræddi við mig, þá lýsti ég yfir að ég væri reiðubúinn til að það færi fram endurskoðun á báðum þessum sjóðum, en ég væri persónulega mjög andvígur því að leggja Fiskimálasjóð niður sem slíkan og láta stjórn hans vera þá sömu og stjórn Fiskveiðasjóðs. Í grg. með þessu frv. er tekið fram að lagðar séu til grundvallar framlögum af útflutningsgjaldinu þær till. sem komu frá sjóðanefndinni. En það er ekki þar með sagt að við höfum fallist á að leggja niður stjórn Fiskimálasjóðs. Ég er þeirrar skoðunar að nauðsynlegt sé að það sé sjálfstæð stjórn hvað varðar styrkjastarfsemi, markaðsöflun, rannsóknastarfsemi og það eigi ekki heima undir stjórn hreins lánasjóðs eins og Fiskveiðasjóður er. Ég held að það sé óhætt að fullyrða, að Fiskimálasjóður hefur oft komið til hjálpar í mikilsverðum málum, og það er mikil nauðsyn fyrir sjútvrn. og sjútvrh., hver sem hann er á hverjum tíma, að hafa aðild að einhverjum slíkum sjóði til þess að geta leyst oft mjög aðkallandi verkefni sem ekki er hægt að bíða eftir að fjárlög leysi eða fjármálakerfi ríkisins. Ég er því hv. þm. alveg sammála hvað þetta snertir. En það sem sagt er hér að 0.9% af útflutningsgjaldinu verði varið til tilraunastyrktarstarfsemi, þá lít ég svo á að þar sé um algert lágmarksframlag að ræða, þær skuldbindingar fari aldrei niður fyrir 0.9%. Hitt er aftur á móti óskipt prósenta á milli Fiskveiðasjóðs og Fiskimálasjóðs. Ég hef ekki í hyggju að auka hlutfallið sem Fiskimálasjóður hefur núna, en ég hef mikinn áhuga á að skerða það ekki. Þetta vildi ég láta koma fram til þess að ekki væri um neinn misskilning að ræða.

Ég vil svo að síðustu benda á það, að þetta mál er flutt inn í þingið á þann hátt, að áður en frv. er lagt fram hafa allir þm. fengið málið á sitt borð á mjög ítarlegan hátt og sjútvn. hafði komið saman áður en frv. kemur hér til umr. En þetta gerði ég til þess að þm. gætu ekki sagt að þeir hefðu engan tíma haft til þess að kynna sér málið. Við sendum sjútvn.-mönnum öll þessi gögn, þessar grænu bækur þrjár, daginn eftir að ríkisstj. fékk þær í sínar hendur. Og ég veit að þm., sérstaklega þeir þm. sem áhuga hafa á þessum málum, hafa kynnt sér þessi mál vel og þess vegna er auðvelt að afgreiða þessi frv. En tíminn líður. Það stóð lengi á sjóðanefndinni, hún náði ekki samkomulagi. Henni var ætlað af hendi rn. að ljúka störfum fyrir 1. des. En ef rn. hefði sagt: Þið verðið að ljúka þessu fyrir 1. des., þá hefði aldrei neitt nál. komið frá sjóðanefndinni, svo að við urðum nauðugir viljugir að veita þessa fresti. Síðast náðist samkomulag um að ákveða óbreytt fiskverð til 15. febr. Nú er 11. febr. í dag. Þess vegna legg ég auðvitað svo þunga áherslu á það, að þessi mál verði afgreidd út úr þessari hv. þd. í dag, þannig að þau gætu legið fyrir Ed. á morgun, því að ég vil ekki að aðilar vinnumarkaðarins, hvorki útgerðarmenn né sjómenn, geti sagt að ríkisstj. eða Alþ. hafi látið standa á svari til þess að gera jafnveigamikla kerfisbreytingu og hér liggur fyrir.