12.02.1976
Efri deild: 52. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1859 í B-deild Alþingistíðinda. (1535)

148. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum

Sjútvrh. (Matthías Bjarnason) :

Herra forseti. Eins og kunnugt er óskuðu samninganefndir Sjómannasambands Íslands og Landssamband ísl. útvegsmanna eftir því í marsmánuði s. l. að ríkisstj. skipaði n. undir forustu Þjóðhagsstofnunarinnar til að endurskoða gildandi lög og reglur um sjóði sjávarútvegsins, auk þess sem samhengi milli sjóðanna og skiptaverðs sjávarafla og þar með aflahluta áhafna yrði tekið til rækilegrar endurskoðunar. Ríkisstj. fagnaði þessum tilmælum, og skipaði ég s. l. vor menn í umrædda n. samkv. tilnefningu Landssambands ísl. útvegsmanna, Sjómannasambands Íslands, Félags ísl. botnvörpuskipaeigenda, Farmanna- og fiskimannasambands Íslands, Alþýðusambands Austfjarða og Alþýðusambands Vestfjarða, en hagrannsóknastjóri var skipaður formaður n. Hlutverk n. auk fyrrgreinds verkefnis var að gera grein fyrir hugsanlegum samræmdum breytingum á starfsemi sjóðanna og gildandi hlutaskiptareglum.

Nefndin hefur lokið störfum og sent frá sér ítarlega skýrslu ásamt viðaukum og er þar gerð grein fyrir margvíslegum athugunum sem Þjóðhagsstofnunin hefur unnið fyrir n. Vil ég þakka öllum þeim, sem hlut eiga í hinu mikla starfi sem liggur að baki skýrslunnar, og þá alveg sérstaklega Jóni Sigurðssyni hagrannsóknastjóra sem unnið hefur gífurlega mikið starf í þessu sambandi ásamt fleiri starfsmönnum stofnunarinnar.

Umrædd skýrsla hefur verið afhent öllum þm. og var það gert daginn eftir að ríkisstj. fékk skýrsluna til umfjöllunar. Mun ég því ekki fjölyrða frekar um hana núna, en vitna í bréf n. frá 19. jan. og till. um sérstakt samkomulag aðila fyrir hönd sjómanna og útvegsmanna um breytingar á kjarasamningum í framhaldi af breytingum á lögum um útflutningsgjald og sjóði sjávarútvegsins. Forsendur þessa samkomulags var yfirlýsing ríkisstj. um breytingar á lögum um útflutningsgjald og sjóði sjávarútvegs. Ríkisstj. hefur gefið út slíka yfirlýsingu og jafnframt óskað þess að n. starfaði áfram til að auðvelda framgang þessa flókna máls.

Í framhaldi af því, sem ég hef sagt, flyt ég þetta frv. til l. um útflutningsgjald af sjávarafurðum sem hér er til umr., en það eru óbreytt drög till. n. um sjóði sjávarútvegs og hlutaskipti, að víðbættu ákvæði til bráðabirgða sem sett er til leiðréttingar á villu í lögum um framleiðslueftirlit sjávarafurða.

Í Nd. var gerð breyting á frv. á þann hátt að við bættist ákvæði til bráðabirgða, að þrátt fyrir ákvæði 14. gr. skuli ákvæði laga nr. 19 1973 um útflutningsgjald af lagmeti og söltuðum grásleppuhrognum halda gildi sinu, sbr. 3. málsl. 1. gr. l. nr. 69 1974, um breyt. á l. nr. 48 26. maí 1972, um Sölustofnun lagmetisiðnaðarins. Eins og kunnugt er gilda sérákvæði í sambandi við Sölustofnun lagmetisiðnaðarins, þannig að greitt er til hennar af útflutningi þeirra afurða, en ekki í sjóði sjávarútvegs. Hefði þetta frv. stangast á við þau lög ef þessi breyting hefði ekki verið gerð eða þá gerð sérstök breyting á lögum um útflutningsgjald af lagmeli. En þessi háttur var hafður á og um hann var enginn ágreiningur í hv. Nd.

Með frv. þessu eru öll ákvæði um útflutningsgjald af sjávarafurðum numin úr gildandi lögum og felld inn í ein lög, en frv. gerir ráð fyrir að lagt verði eitt útflutningsgjald á sjávarafurðir, 6% af fob.-verði þeirra. Undantekningar frá þessari reglu eru selafurðir, en útflutningsgjald greiðist ekki af þeim, og sama gildir um niðursoðnar og niðurlagðar afurðir og söltuð grásleppuhrogn, en samkv. 6. gr. laga um Sölustofnun lagmetisiðnaðarins eru þessar afurðir undanþegnar almennum ákvæðum um útflutningsgjöld í 5 ár frá árinu 1972, en renna þess í stað í sérstakan sjóð til eflingar lagmetisiðnaðinum.

Eins og kunnugt er hafa útflutningsgjöld verið mjög mishá á hinum ýmsu afurðum, en með þessu frv. eru gjaldskylduákvæði samræmd og undanþágur og ívilnanir vegna einstakra afurða felldar niður og í staðinn sett ein almenn regla varðandi afurðir sem hafa mikla vinnsluviðbót.

Samkv. 3. gr. frv. er lagt til að sjútvrh sé heimilað að lækka útflutningsgjaldið um allt að 0.3% fyrir hvert 1% sem hlutfall hráefniskostnaðar er lægra en 30% af fob.-verði hinnar útfluttu vöru, enda sanni útflytjandi að hráefniskostnaður sé lægri. Þó skal útflutningsgjald aldrei vera lægra en 1% af fob.-verði.

Með þessu frv. er Olíusjóður fiskiskipa lagður niður og sömuleiðis sérstakt síldargjald. Aflatryggingasjóður mun starfa áfram með svipuðum tekjum, en Tryggingasjóður fiskiskipa er skertur um nálægt helming frá gildandi gjaldskrá útflutningsgjalda,og verða greiðslur iðgjaldastyrkja því skertar að sama skapi. Þá er gert ráð fyrir að tekjur af útflutningsgjaldi til Fiskveiðasjóðs og Fiskimálasjóðs verði sameinaðar, en ákveðnu hlutfalli af þeim tekjum verði varið til styrkveitinga til rannsókna, tilrauna og markaðsöflunar.

Samkv. 4. gr. frv. er gert ráð fyrir að innheimta útflutningsgjaldsins verði í höndum ríkissjóðs eins og verið hefur og skilgreind skipting gjaldsins, en miðað við áætlun um útflutningsverðmæti sjávarafurða á ári, miðað við gengi og verðlag í okt. 1975, er áætlað að skipting tekna af 6% útflutningsgjaldinu verði með eftirfarandi hætti og til hliðsjónar fylgja frv. tölur um tekjur samkv. núgildandi reglum í Aflatryggingasjóði er ætlað að fá 48% af þessu gjaldi, þar af 22% til almennu deildarinnar eða því sem næst 500 millj. kr., en það er eftir núgildandi reglum 7.7% eða 461 millj. kr. Áhafnadeild Aflatryggingasjóðs eru ætluð 26% eða 590 millj. kr., en miðað við núgildandi reglur er það 9.3%. og 554 millj. kr. M. ö. o.: framlagið, peningalega séð, til Aflatryggingasjóðs hækkar nokkuð frá gildandi reglum, bæði til almennu deildarinnar og sömuleiðis til áhafnadeildar.

Tryggingasjóði fiskiskipa er ætlað nú að fá 27% af gjaldinu eða 613 millj. kr., en hefur samkv. núgildandi reglum 19.8% eða 1182 millj. kr. Í sambandi við þá breytingu leggur n. til að tekjur Tryggingasjóðs verði skertar um nálega helming og verði tæpar 600 millj. kr. á ári, — greiðslur verði skertar þannig að tekjur nægi fyrir gjöldum. Til þess þarf að skerða greiðslureglur um meira en helming þar sem útgjöld vegna ársins 1976 mundu að óbreyttum greiðslum nema um 1700 millj. kr.

Við samdrátt í veltu Tryggingasjóðs kemur upp vandamál sem felst í skuld sjóðsins vegna fyrra árs. Sjóðurinn hefur frá upphafi verði rekinn þannig að liðlega helmingur af tekjum hans hvert ár hefur verið notaður til greiðslu íðgjalda ársins á undan, og í árslok hefur jafnan verið í skuld liðlega helmingur af iðgjöldum ársins. Þetta mætti orða svo, að sjóðurinn hafi jafnan velt á undan sér skuld að upphæð um helming ársveltu. Skuld sjóðsins við tryggingafélög í árslok 1975 er áætluð um 600 millj. kr. af um 1500 millj. kr. greiðslum vegna ársins 1975, þar við bætist yfirdráttur í Seðlabanka, 84 millj. kr. Á móti þessu mun sjóðurinn fá sinn hlut í útflutningsgjöldum af birgðum sjávarvöru í árslok 1975, lauslega áætlað 200 millj. kr. Þegar það hefur verið dregið frá er skuld sjóðsins tæplega 500 millj. kr. Auk þess er gert ráð fyrir, að sjóðurinn njóti tekna vegna framleiðslu í janúarmánuði á þessu ári og til 15. þ. m. og greiði iðgjöld fyrir þennan tíma með sama hætti og áður. Á því verður áreiðanlega töluverður halli, líklega á milli 50 og 100 millj. kr. Þegar sá halli er tekinn með getur skuld sjóðsins að frádregnum óinnheimtum tekjum orðið nálægt 550–600 millj. kr. eða svipuð upphæð og ráðgerðar árstekjur samkv. hinu nýja frv. Verði till. n. fylgt og engar sérstakar ráðstafanir gerðar til að mæta greiðslubyrði sjóðsins, þá er útlit fyrir að greiðsludráttur hans lengist skyndilega úr nálægt 6 mánuðum í 12 mánuði. Þetta er afar fráhrindandi útlit og fær tæplega staðist.

Sjóðanefnd bendir á nauðsyn þess, að tryggingarsjóður geri fyrir hönd ríkisstj. sérstakt samkomulag við tryggingafélögin um endanlegt uppgjör iðgjaldastyrks vegna ársins 1975 og þess tíma sem sjóðurinn starfar á þessu ári eða til 15. þ. m. Enn fremur segir í nál. að fulltrúar útvegsmanna leggi sérstaka áherslu á þetta atriði og bendi á að reynst geti nauðsynlegt að gera sérstakar ráðstafanir um umþóttunartíma til þess að greiða fyrir breytingum sem feli í sér röskun á fyrirkomulagi sem staðið hefur tengi. Í áliti sjóðanefndar felst þannig óbeinlínis ábending um að með einhverjum hætti þurfi að útvega fjármagn til að laga stöðu sjóðsins svo að breytingin verði möguleg, enda virðist ekki unnt að gera samkomulag við tryggingafélögin um greiðslu eftirstöðva iðgjaldastyrkja 1975 nema tryggt sé fjármagn til að standa við slíkt fyrirkomulag.

Ég tel það hiklaust skyldu ríkisvaldsins að ganga þannig frá þessu máli að skuldbindingar til útgerðarinnar verði inntar af hendi til þess tíma sem núgildandi reglur eiga að gilda eða til 15. febr. Á þessu stigi ætla ég ekki að fullyrða á hvern hátt þetta verður gert, en hér er um að ræða að gera sérstakt samkomulag við tryggingafélögin og greiða þá auðvitað verulegan hluta út á skömmum tíma til þess að ekki myndist eyða í starfsemi tryggingafélaganna og í viðskiptum þeirra við útgerðina í landinu. Enn fremur er nauðsynlegt að tryggja útgerðinni greiðslur upp í vátryggingagjöld þegar þetta nýja kerfi tekur gildi. Býst ég við að fram verði lagt fljótlega frv. um það efni, að viss hundraðshluti af fiskverði verði tekinn af útgerðinni og lagður á sérstakan reikning viðkomandi báts til þess að skuldahali myndist ekki um of og stöðvun verði í sambandi við viðgerðir skipa vegna skulda þeirra við vátryggingafélögin.

Liðurinn um Fiskveiðasjóð og Fiskimálasjóð er í einu lagi og er áætlaður um 477 millj. kr., en sérstaklega er afmarkað til styrkveitinga til rannsókna, tilrauna og markaðseflingar 0 9% eða 20 millj. kr. Sjóðanefnd leggur áherslu á það, að sameining þessara sjóða fari fram og þeir verði undir einni stjórn. Það mál er og verður til athugunar. En ég vil láta það koma hér fram sem mitt persónulegt álit, að ég tel að Fiskimálasjóður elgi að starfa áfram undir sérstakri stjórn eins og verið hefur. Hitt kemur vel til greina, að sameina starfsemi hans Fiskveiðasjóði eða öðrum. En ég held að það sé miklu betra að aðgreina þessa starfsemi. Styrkveitingar til rannsókna, tilrauna og markaðseflingar eiga að vera í höndum líkrar stjórnar og nú er, en ekki setja það undir hreina lánastofnun.

Til sjávarrannsókna og Framleiðslueftirlits sjávarafurða er ætlað að verja 2.3% eða 63 millj. kr., en núgildandi reglur gera ráð fyrir 1% eða 62 millj. kr.

Til samtaka sjómanna og útvegsmanna er ætlað 0.8% eða 18 millj. kr., en núgildandi reglur eru 0.2% eða 13 millj. kr. Það er fullt samkomulag um að þetta skiptist til helminga, þannig að Landssamband ísl. útvegsmanna fái 0.4%, en samtök sjómanna fái 0.4%. Aðilar sjómanna í sjóðanefnd hafa lagt fram till. um að skiptingin fari fram á þann hátt, að Sjómannasambandið fái 42%, Farmanna- og fiskimannasambandið 40%, Alþýðusamband Austfjarða 9% og Alþýðusamband Vestfjarða 9%. Með þessari till. þeirra er horfið frá því að Alþýðusamband Íslands fái beint framlag, en það hefur samkv. gildandi reglum 1/3 af þessu framlagi á móti 1/3 til Farmannasambandsins og 1/3 til Sjómannasambandsins. Ég varð var við það í umr. í Nd. að einn þm. var óánægður með að slík breyt. yrði gerð og óskaði eftir því að haldinn yrði fundur, áður en rn. tæki endanlega afstöðu til skiptingarinnar, með þeim aðilum sem hafa fengið þetta fjármagn. Lofaði ég að það yrði gert áður en nýjar reglur yrðu gefnar út.

Þá kem ég að síðasta atriði þessa sjóðakerfis, sem er það langstærsta, en það er Olíusjóðurinn sem miðað við núgildandi reglur fær 53.6% af öllu útflutningsgjaldinu eða 3196 millj. kr. Með þessu frv. er lagt til að Olíusjóðurinn verði lagður niður, m. ö. o. að sjóðakerfið, sem talið er nema, miðað við núgildandi reglur, tæplega 6 milljörðum, eða nákvæmlega 5965 millj. kr., það er áætlað að það lækki niður í 2271 millj. og þar af er langstærsti liðurinn til Aflatryggingasjóðs, beggja deilda, um 1 milljarður 90 þús. kr., og hinir liðirnir eru til Tryggingasjóðsins 613 millj. og til Fiskveiðasjóðs og Fiskimálasjóðs 477 millj. kr. Forsendurnar fyrir þessari breyt. eru þær, að samkomulag náist á milli sjómanna og útgerðarmanna um breytingu á hlutaskiptum eða þátttöku í olíukostnaði.

Þessi frv. bæði, þetta frv. og frv. um Stofnfjársjóðinn, eru samkomulagsfrv. eða samkomulag sem hefur orðið í sjóðanefnd um þessi atriði á þennan hátt. En það þýðir ekki að þeir menn, sem í sjóðanefnd hafa starfað, séu ánægðir með þessa tilhögun. Það fékk enginn allt sem hann vildi, heldur var reynt að ná samkomulagi á þessum grundvelli og á þessum forsendum. 8. febr. sendu félögin eða samtökin, sem eiga aðild að þessu samkomulagi, frá sér til sjútvrn. eftirfarandi samkomulag:

„Sjómannasamband Íslands, Alþýðusamband Vestfjarða, Alþýðusamband Austurlands og Farmanna- og fiskimannasamband Íslands fyrir hönd sjómanna og Landssamband ísl. útvegsmanna og Félag ísl. botnvörpuskipaeigenda fyrir hönd útvegsmanna gera með sér samkomulag um eftirgreind atriði:

1. Þar sem ríkisstj. hefur lýst því yfir, að hún muni beita sér fyrir setningu laga og reglugerðar í samræmi við till. og ábendingar tillögunefndar um sjóði sjávarútvegs og hlutaskipti, lýsa aðilar því yfir að þeir muni gera þá samninga sín á milli, sem nú eru lausir um kjör sjómanna, á grundvelli tillagna og ábendinga sem fram koma í skýrslu n„ dags. 19. jan. 1976.

2. Aðilar lýsa því enn fremur yfir, að þeir muni beita sér fyrir því að heimildir verði veittar til að taka þegar upp samninga á þessum grundvelli um breytingu á þeim kjarasamningum aðila, sem ekki hefur verið sagt upp, með sama hætti og væru þeir lausir.

3. Aðilar þessa samkomulags gera ráð fyrir að ríkisstj. láti fara fram sérstaka athugun á kjörum áhafna og afkomu útgerðar á stærri togurunum, þ.e. 500 brúttólestir og yfir, við þessar breytingar. Athugun þessi verði gerð í samráði við samtök sjómanna og útvegsmanna og fulltrúa þeirra byggðarlaga, sem sérstakra hagsmuna eiga að gæta, með það fyrir augum að tryggja atvinnu sjómanna og rekstur sjávarútvegsfyrirtækja á þessum stöðum, sbr. og bréf sjútvrn. til Félags ísl. botnvörpuskipaeigenda, dags. 3. júlí 1975.“

Undir þetta bréf skrifa fulltrúar Sjómannasambands Íslands, Farmanna- og fiskimannasambands Íslands, Alþýðusambands Austurlands, Alþýðusambands Vestfjarða, Landssambands ísl. útvegsmanna og Félags ísl. botnvörpuskipaeigenda.

Þegar sjóðanefnd hafði lokið störfum og gengið frá sínu ítarlega nál., þá fannst mér rétt að senda það tafarlaust til allra nm. í sjútvn. beggja þd. og tveimur dögum síðar til allra alþm. til þess að þeir gætu kynnt sér efni þessa máls alls áður en frv. yrði formlega flutt. Því má segja að þm. hafi haft allgóðan tíma til að kynna sér þessi mál, þó að ég að sjálfsögðu leggi mikla áherslu á að frv., eftir að þau voru flutt, fái skjóta afgreiðslu. Það hafa verið haldnir að ég hygg tveir fundir sameiginlega með sjútvn. beggja d. Ég geri ráð fyrir því, að allir þm. geri sér grein fyrir að þetta nál., sem fyrir liggur frá sjóðanefnd, er samkomulagsmál sem ekki má breyta í neinum höfuðatriðum, samkomulagið sé þá niður fallið. Á þessum grundvelli hef ég lagt þessi mál fyrir í báðum þd. og óska mjög eindregið eftir því, að afgreiðslan geti farið fram helst í dag, því að fresturinn er að renna út þar sem gildistaka laganna á að eiga sér stað 15. febr. Hins vegar væri ekki neinn stór skaði þó að afgr. málsins biði til morguns, ef d. vill frekar koma saman aftur á morgun til afgreiðslunnar, þá tel ég að séu síðustu forvöð að afgr. málið. Málið hefur farið mjög fljótt í gegn frá því að það var sent síðustu dagana í janúar, en hér er um mjög stórt og mikið mál að ræða. Það getur verið og vafalaust hafa menn sínar skoðanir á því, sumir telja að skammt sé gengið í því, aðrir að í sumum tilfellum sé gengið of langt. En ég hygg líka að allir séu sammála um að langstærsta breytingin, niðurfelling Olíusjóðs, sé mjög æskileg og nauðsynleg, og menn fagna henni, enda eru það 53% af heildarútflutningsgjaldinu eins og það er nú.

Ég legg svo til, herra forseti, að að lokinni þessari umr. verði málinn vísað til 2. umr. og hv. sjútvn.