12.02.1976
Efri deild: 52. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1864 í B-deild Alþingistíðinda. (1536)
148. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum
Stefán Jónsson:
Herra forseti. Af hálfu Alþb. verður afgreiðsla þessa máls ekki tafin. Hér er um að ræða frv. sem stefnir í rétta átt. Eins og hæstv. sjútvrh. sagði eru menn e. t. v. ekki á einu máli um það, hvort nógu langt sé gengið í þessu frv., en að okkar dómi er hér stefnt greinilega í rétta átt. Þar sem hér er um að ræða frv., er raunverulega varðar að verulegu leyti undirstöðuatriði í kjarasamningum sjómanna og útvegsmanna sem nú standa yfir og eru raunverulega komnir á fremstu nöf, þá teljum við æskilegt að meðferð málsins verði hraðað.
Aftur á móti er ég ekki sammála hæstv. sjútvrh. um að þetta frv. hafi komið nægilega snemma fram, heldur tel ég að það hefði átt að koma fram mun fyrr. Raunar er það ekki nema með líkindum af hálfu þessarar ríkisstj. sem lætur nú flatreka upp á boða allsherjarverkfalla, treystir á guðsmildina sem leiðarljós. Hún er ekki forkastanleg sem slík, síður en svo. Þar er um að ræða miskunn fáráðlinganna þakkarverða, sem aftur á móti hefur ekki flokkast undir vandaða „navigasjón“ fram að þessu. Annars verður sjálfsagt erfitt að velja íslensk lýsingarorð sem hæfa með öllu frammístöðu ríkisstj. í kjaramálunum og hæfa í senn viðkvæmu taugakerfi ráðh. sem þrátt fyrir allt hafa nú óljósan grun um það, að þeir hefðu e. t. v. getað gert betur.
Frv. mun ég ræða ítarlegar þegar n. skilar áliti.