12.02.1976
Neðri deild: 57. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1881 í B-deild Alþingistíðinda. (1548)

151. mál, gjald af gas- og brennsluolíum

Karvel Pálmason:

Virðulegi forseti. Það er nú komið í ljós að það mál, sem hér er til umr., virðist ekki vera stjfrv. nema að hálfu leyti, eftir því sem formaður þingflokks framsóknarmanna segir, hv. 4. þm. Reykv., enda veittu menn því athygli strax í því nál., sem sagt er að meiri hl. fjh.- og viðskn. hafi staðið að, að þar er í fyrsta lagi enginn meiri hl. n., þar eru ekki nema 3 af 7, og í öðru lagi er það ekki nema annar helmingur stjórnarinnar, þ. e. a. s. þm. Sjálfstfl., þannig að segja verður að það sé með nokkrum ólíkindum að staðið þegar slíkt á sér stað. En hv. 4. þm. Reykv. hefur nú gefið þá yfirlýsingu að hann fallist á að málið fari í gegnum þessa d. í trausti þess að um þetta náist samkomulag milli stjórnarflokkanna í Ed.

Þó að þetta sé allkynlegt fyrir okkur sem fyrir utan stöndum þá sem ráða, þá hefur það líklega þann framgang sem hér er gert ráð fyrir, og verður þá að láta sjá til hver endalok málið fær í hv. Ed. En ég skal ekki ræða um það meira.

Ég vil aðeins geta þess nú við 2. umr. þessa máls, að við þm. SF munum greiða atkv. gegn þessu frv. Við teljum að nú þegar sé nóg komið af skattlagningu af hálfu hæstv. ríkisstj. þó að ekki sé enn bætt við. Hæstv. fjmrh. segir að vísu að eins og stendur þoli ríkissjóður ekki það tekjutap sem hér er gerð grein fyrir að hann verði fyrir, en stjórnarandstaðan hefur áður bent á ýmsa möguleika til tekjuöflunar, tekjustofna sem nýta beri, en hæstv. ríkisstj. hefur ekki fallist á.

Ég vil sem sagt með þessu gera grein fyrir því, að við munum greiða atkv. með fulltrúum Alþb. og Alþfl. og teljum að þetta gjald eigi ekki rétt á sér eins og nú stendur, það sé eðlilegra að áframhald verði á því sem gert var ráð fyrir þegar söluskattur var felldur niður á olíu til húsakyndingar og þá gert ráð fyrir einnig að fella niður söluskatt af olíu til fiskiskipa. Við teljum eðlilegt að við það verði staðið.