12.02.1976
Efri deild: 53. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1889 í B-deild Alþingistíðinda. (1564)

148. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum

Frsm. minni hl. (Jón Árm. Héðinsson) :

Herra forseti. Það var rétt að hluta sem hann drap á, síðasti ræðumaður, Stefán Jónsson. Það var tekin, ef ég man rétt, ákveðin upphæð, föst upphæð til bjargar fyrst, en síðan var stofnað til Olíusjóðsins og urðu um það miklar deilur við verðákvörðun um áramótin 1973–1974. Um það þarf ekkert að deila. Það er langbest að fletta upp í skjölum Alþ. og sjá hvernig umr. áttu sér stað þá. Og það var byggt á þeirri von að loðnuaturðir og loðnuafli í heild gæfu um það bil 1 000 millj. í nettóágóða fyrir þjóðarbúið. Ég var því samþykkur að taka hluta af þessari upphæð, það kemur skýrt fram í nál. mínu og ræðu, en ég taldi fásinnu að reikna með svona stórri tölu og skipta henni upp í þjóðarbúinu. Og af því að deilur standa nú um kjaramál má minnast þessara útreikninga, hverjum sem um er að kenna, en eðlilega hafði þáv. sjútvrh. forgöngu um málið sem slíkur hér á hv. Alþ., þar sem það heyrði undir hann. Kannske má segja að öll hv. vinstri stjórn hafi borið ábyrgð á því, sameiginlega a. m. k., og kannske hefur núv. hæstv. forsrh. verið nokkurs konar guðfaðir að gjaldinu, því að hann studdi það eindregið til þess að hjálpa úr tímabundnum erfiðleikum togaraflotans, eins og var sagt. En gjaldið var myndað og kjarasamningar voru gerðir á bjartsýni þeirra talna sem lagðar voru á borðið um afkomu á loðnuveiðum og um loðnusölu. En eins og allir muna reyndist það pappírsplagg eitt og þessi ímyndaði gróði varð aldrei til. En það var búið að gera kjarasamninga um hann, það var búið að stofna til Olíusjóðs, það var búið að stofna til breytingar með millifærslukerfi vegna þessarar ímynduðu tölu. Það ætla ég ekki að fara að rekja hér, þótt það væri kannske ástæða til, til varnaðar og upprifjunar. En þetta tókst mjög illa allt saman.

Mín skoðun var þá sú, að slíkt kerfi gæfi tilefni til þess, eins og ég man að ég orðaði það nokkurn veginn orðrétt, að t. d. járniðnaðarmenn, sem voru þá í kjarabaráttu og voru illa settir miðað við byggingariðnaðarmenn, þeir fengju sendan ákveðinn hluta til sín úr launaumslögum þeirra er voru í Breiðholti, uppmælingarmanna. Og kannske muna einhverjir þm., sem sátu hér í salnum, jafnvel deilu á milli okkar félaganna innbyrðis í Alþfl. þar sem annar var talsmaður uppmælingarmanna, en ég talsmaður tímamælingarmanna. En út í það ætla ég nú ekki að fara, en kannske muna einhverjir eftir þeirri deilu þegar ég tók þetta dæmi.

En það, sem ég átti við og allir eru í raun og veru sammála um, er að það getur orðið óheilbrigt ef slík millifærsla, sem dregur úr hvöt manna til að bjarga sér, á sér stað í of ríkum mæli. Því miður þróuðust þessir sjóðir upp í stóra tölu, og það var ekki verk eins eða neins manns. Það var alveg rétt hjá síðasta ræðumanni, að þetta kom stig af stigi, og kannske óþarfi af mér að vera að nefna nafn eins manns í því efni. En ég deildi á þetta kerfi mjög eindregið og það gerðu ýmsir fleiri, en við vorum bara ofurliði bornir. Það er staðreyndin í málinu. Um framgöngu þessa máls höfðu ákveðnir aðilar hlutverki að gegna, og fremstur í flokki var hæstv. þáv. sjútvrh. og núv. alþm., Lúðvík Jósepsson. Það var gert til þess að bjarga frá verðhækkuninni á olíunni, og gífurleg millifærsla átti sér stað og svo mikil að Olíusjóðurinn einn sér er langstærsti þátturinn í þessu kerfi. En áætlað er að Olíusjóður og Tryggingasjóður gæfi samtals á árinu 1976 4.6 milljarða kr., svo að við sjáum um hve gífurlegar upphæðir er hér að ræða í millifærslu.

Það, sem er ósanngjarnast í þessu, er að sumir menn hafa orðið að borga tugfalt gjald fyrir olíulítrann. Og einnig, eins og hv. ræðumaður Stefán Jónsson drap á, hafa komið fram misgerðir í sambandi við Tryggingasjóðinn. Þess vegna eru menn sammála um að velta ofan af þessu kerfi og reyna að hafa það á hreinu. Hinir sjóðirnir, sem bæði Alþfl.-ráðh. og líklega allra flokka ráðh. stóðu að því að mynda með árunum, hafa eilítið öðru hlutverki að gegna, og það hefur verið talið eðlilegra og rökréttara, þar sem hver útgerð nýtur þá að mestu þess er hún leggur fram, og skapar það áhuga og aukið aðhald til að hafa þá hluti fremur í lagi.

Ég skal svo ekki vera að elta ólar við tinnur atriði í þessu sambandi, en fagna því að þessum áfanga er náð í þessu efni. Ég vona að það hafi þau jákvæðu áhrif sem menn eru sammála um að eigi að koma fram við þessa breytingu.