12.02.1976
Efri deild: 53. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1891 í B-deild Alþingistíðinda. (1568)
147. mál, Stofnfjársjóður fiskiskipa
Stefán Jónsson:
Herra forseti. Ég þakka okkar ágæta formanni sjútvn. fyrir leiðréttinguna. Þetta var rétt, ég hugðist skrifa undir nál. með fyrirvara. Þessi fyrirvari varðar fyrst og fremst lækkunina sem ráð er fyrir gert. Þegar til kastanna kemur reynist fyrirhuguð lækkun hér ekki vera um 5%. Til þess að um raunverulega 5% lækkun væri að ræða þyrfti að standa 8% í staðinn fyrir 10%. Þetta er ekki nema liðlega 2.5% sem þarna er um að ræða. Ég tel sem sagt að lækkunin sé of lítil. En það sama gildir um þetta frv. eins og hið fyrra frv., sem við fjölluðum um nú fyrir nokkrum mínútum, það er stefnt í rétta átt. Þess vegna mæli ég með samþykkt þessa frv. og mun greiða atkv. með því, en sem sagt með þessum fyrirvara.