27.10.1975
Neðri deild: 10. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 213 í B-deild Alþingistíðinda. (157)

2. mál, Framkvæmdastofnun ríkisins

Tómas Árnason:

Herra forseti. Það frv., sem hér er til umr., fjallar fyrst og fremst um þátt í stjórnkerfi Framkvæmdastofnunar ríkisins, þ. e. a. s. framkvæmdaráðið svonefnda. Frv. gerir ráð fyrir að það starfi áfram eins og verið hefur að öðru leyti en því að það verði skipað á annan veg, verði þannig skipað að í stað þriggja framkvæmdastjóra, eins og nú er, sem skipaðir eru af ríkisstj. með sérstökum hætti, verði skipaður einn framkvæmdastjóri sem ásamt forstöðumönnum þeirra tveggja deilda, sem Framkvæmdastofnunin skiptist í, myndi framkvæmdaráðið.

Við þessa umr. hefur hæstv. forsrh. lýst því yfir að ríkisstj. hyggist leggja fyrir þetta Alþ. frv. til l. um breyt. á lögum um Framkvæmdastofnun ríkisins. Eins og komið hefur fram, þá var í fyrrasumar seinni partinn sett n. 4 þm. Ríkisstj. skipaði þá n. til þess að gera athuganir á löggjöfinni um Framkvæmdastofnun ríkisins og gera till. um æskilegar breyt. á löggjöfinni. Ég var einn af þeim þm. sem áttu sæti í þessari n., en n. skilaði áliti seint í okt. 1974 og það álit hefur síðan verið til meðferðar hjá hæstv. ríkisstj. Þar koma að sjálfsögðu fram skoðanir mínar á þessu máli almennt séð. Þegar frv. þetta, sem ríkisstj. hefur boðað, verður lagt fyrir hæstv. Alþ., þá mun ég gera grein fyrir skoðunum mínum á þessu máli, en að þessu sinni ekki ræða sérstaklega um þá tilhögun sem þetta frv. gerir ráð fyrir. Að mínum dómi eru fleiri ákvæði í lögunum um Framkvæmdastofnunina, sem þarfnast endurskoðunar, heldur en þetta. Þess vegna sé ég ekki ástæðu til að ræða langt mál nú um þetta frv. efnislega, en víkja að ýmsu því sem fram hefur komið.

Í grg. fyrir frv. að lögum um Framkvæmdastofnun ríkisins var skýrum orðum tekið fram að vafalaust þarfnaðist löggjöfin endurbóta og fullkomnunar síðar, en þetta frv. var samþ. á Alþ. seinni partinn í des. 1971 og lögin öðluðust gildi 1. jan. 1972. Upphaflega starfaði Framkvæmdastofnunin í 3 deildum, hagrannsóknadeild, áætlanadeild og lánadeild, en hagrannsóknadeildin hafði þá sérstöðu frá upphafi að heyra beint undir ríkisstj., en ekki undir stjórn stofnunarinnar sem slíkrar. Framkvæmdaráðið tók þegar í upphafi þá afstöðu að hafa nánast engin afskipti af vinnubrögðum hagrannsóknadeildar. Allar tillögur forstöðumanns um vinnutilhögun, mannaráðningar og skipulag deildarinnar voru samþ. og deildin var efld og hafði nánast forgang um uppbyggingu í öndverðu. Ég er þeirrar skoðunar að hagrannsóknadeildin hafi starfað í reynd sem sjálfstæð stofnun meðan hún var og hét. Það þarf ekki að eyða að því orðum að stjórnmálaskoðanir eða pólitísk afstaða hafi nokkru sinni komið við sögu hagrannsóknadeildarinnar.

Á Alþ. 1974, um vorið, voru samþ. lög um Þjóðhagsstofnun og tóku gildi 1. ágúst á síðasta ári. Ég held að það rétta sé — og þekki ég vel til mála — að Þjóðhagsstofnunin starfi nákvæmlega eins og hagrannsóknadeildin gerði á sínum tíma. Eigi að síður tel ég að það hafi verið rétt ráðstöfun að gera hana að sjálfstæðri stofnun. Ég álít að hún njóti sín betur þannig heldur en í tengslum við Framkvæmdastofnunina, sem hefur með höndum ýmis sérverkefni sem eru allt annars eðlis heldur en þau verkefni sem heyra undir Þjóðhagsstofnunina.

Þessu næst langar mig til að víkja nokkrum orðum að stjórn framkvæmdaráðsins á Framkvæmdastofnun ríkisins, en ég hef verið framkvæmdaráðsmaður frá upphafi eða tæp 4 ár. Ég er að sjálfsögðu ekki hlutlaus aðili og vil því ekki dæma um störf þessa framkvæmdaráðs. Ég get hins vegar greint frá því hvernig störfum þess hefur verið háttað, og verða menn síðan að draga ályktanir af því hvort t. d. pólitískt siðleysi hafi komið fram í störfum ráðsins.

Hv. frsm. þessa máls, hv. 9. þm. Reykv., tók sér í munn ýmis orð þegar hann mælti fyrir frv. Hann talaði um spillingarbæli, hann talaði um pólitískt siðleysi, hann talaði um að núv. kommissarar væru bræður úr sama kjördæmi og bætti því við: sem væri eitt af minnstu kjördæmum landsins. Þeir sem hlýddu á framsöguræðuna — (Gripið fram í.) hljóta að álíta að frsm. telji spillingu á ferðinni í Framkvæmdastofnuninni og hana megi uppræta með einu pennastriki, þ. e. a. s. með því að skipa fastan framkvæmdastjóra, en halda þó framkvæmdaráðinu áfram. Þó að hv. þm. vitni til ummæla, sem höfð voru áður en Framkvæmdastofnunin varð til. vil ég leyfa mér að skora á hv. þm. að gera grein fyrir því, hvort hann vilji nú gera þau ummæli að sínum, eftir að Framkvæmdastofnunin hefur starfað í 4 ár. Að sjálfsögðu má gagnrýna störf framkvæmdaráðsins eins og öll mannanna verk, en hvort þau störf hafa einkennst — (Gripið fram í.) Já, þess vegna bið ég um að hv. þm. geri grein fyrir því hvort hann vilji gera þessi orð að sínum ef hann talar aftur í málinu. En hvort störf framkvæmdaráðsins hafi einkennst af pólitískri hlutdrægni, það er auðvitað allt annað mál. Haldi menn slíku fram verður að gera þá kröfu að slíkt sé rökstutt með ákveðnum dæmum, en ekki hálfkveðnum vísum.

Það hefur oft verið um það deilt, bæði í ræðu og riti, réttilega að menn séu ráðnir eða skipaðir til starfa af pólitískum ástæðum eða eftir stjórnmálaskoðunum. Það er því þess virði að athuga hvernig mannaráðningum hefur verið hagað í Framkvæmdastofnuninni, því að það er eitt af þeim atriðum sem koma til greina þegar menn ræða um það hvort þarna kunni að vera um pólitískt siðleysi að ræða.

Eitt af fyrstu verkum framkvæmdaráðsins var að ráða 35 starfsmenn til stofnunarinnar. Og hvernig var þetta gert? Í aðalatriðum var það gert þannig að öllu fastráðnu starfsfólki þeirra þriggja stofnana, sem voru sameinaðar í eina í Framkvæmdastofnun ríkisins, var gefinn kostur á að halda áfram störfum, og ég hygg að hver einasti fastráðinn starfsmaður hafi gert það. Þetta starfsfólk var flest ráðið til starfa í 15 ára ráðherratíð hv. 9. þm. Reykv., svo að ég þykist viss um að hann telji ekki að þarna hafi verið á ferðinni pólitísk misnotkun í sambandi við ráðningu langflestra starfsmanna Framkvæmdastofnunarinnar. Varðandi aðrar ráðningar til starfa í Framkvæmdastofnuninni vil ég upplýsa það að í öllum tilfellum, hverju og einu einasta tilfelli, hefur framkvæmdaráðið samþ. till. forstöðumanna deilda um ráðningar, og það hefur aldrei komið til ágreinings um ráðningar á starfsfólki til Framkvæmdastofnunarinnar þau 4 ár sem ég hef starfað þar.

Þessu næst vildi ég koma að þeim þætti mála, þar sem mest hætta er á að koma við misnotkun og þá pólitískri misnotkun, þ. e. a. s. lánamála. Það eru tveir stórir lánasjóðir sem Framkvæmdastofnunin hefur með að gera, eins og kunnugt er: annars vegar Framkvæmdasjóður Íslands sem lánar út á þessu ári um 3.5 milljarða til fjárfestingarlánasjóða nær eingöngu og hins vegar Byggðasjóður sem sennilega mun lána út á þessu ári einhvers staðar á bilinu 900 millj. —1 milljarður. Það er fróðlegt að athuga hvernig unnið hefur verið að þessum málum, hvort það hefur verið gert með þeim aðferðum sem hæfa ef menn vilja koma við pólitískri misnotkun eða hvort menn hafa hagað málum á annan veg. Ef ég vík fyrst að því hvernig hagað hefur verið vinnubrögðum og undirbúningi að útlánum og ákvörðunum um lán Framkvæmdasjóðs Íslands, þá hefur það verið gert þannig að lánadeildin hefur fyrst samband við alla þá fjárfestingarsjóði, sem Framkvæmdasjóður lánar, til þess að ganga úr skugga um hve mikið ráðstöfunarfé hver sjóður hefur úr að spila til lánveitinga á næsta ári ég hver þörf lánasjóðanna er að hví er menn telja. Síðan ræðir framkvæmdaráðið ásamt forstöðumönnum í Framkvæmdastofnuninni við formann og framkvæmdastjóra hvers fjárfestingarlánasjóðs um sig sérstaklega um málefni þess sjóðs. Það eru náttúrlega langmest umsvif hjá tveimur sjóðum, þ. e. Fiskveiðasjóði og Stofnlánadeild landbúnaðarins. Hinir sjóðirnir hafa notið miklu minni lánafyrirgreiðslu frá Framkvæmdasjóði á undanförnum árum, en næstir í röðinni koma Iðnlánasjóður og Lánasjóður sveitarfélaga. Byggðasjóði var lánað úr Framkvæmdasjóði fyrstu árin, en á þessu ári, 1975, hefur Byggðasjóður ekki fengið nein vilyrði fyrir lánveitingum úr Framkvæmdasjóði og ekki er gert ráð fyrir því í fjáröflunar- og útlánaáætlun Framkvæmdasjóðs.

Þegar fyrir liggur ljós mynd af þörfum sjóðanna ræða þessir sömu aðilar frá Framkvæmdastofnuninni við bankastjóra Seðlabankans og aðstoðarmenn þeirra, ekki síst með hliðsjón af krónískri og sífellt vaxandi fjárvöntun Framkvæmdasjóðs og þarf ekki að taka fram að formaður stjórnar Framkvæmdastofnunarinnar fylgist náið með öllu sem fram fer í þessum efnum. Þegar fullmótuð mynd er fengin af stöðunni er málið nánar rætt við hæstv. forsrh. og stundum við alla hæstv. ríkisstj. Þegar svo kemur í ljós hver möguleg fjáröflun er gerir framkvæmdaráðið till. til stjórnar Framkvæmdastofnunarinnar, en það er hún sem að lokum samþ. öll útlán Framkvæmdasjóðs. Þessar till. eru lengi að mótast og þróast og það eru margir aðilar, sem þarna koma við sögu, eins og ég hef gert grein fyrir. Þó að framkvæmdaráðið beri ábyrgð á þeim till. að lokum, þá er það þó í raun og veru þannig að með þessum vinnubrögðum, sem ég hygg að séu ákaflega lík þeim vinnubrögðum sem höfð voru þegar Seðlabankinn hafði Framkvæmdasjóð á sínum tíma, nema það eru kannske enn þá meiri samráð núna við fjárfestingarlánasjóðina en þá var, — þá held ég að augljóst sé af þessum vinnubrögðum að það er ekki auðhlaupið að því að koma við pólitískri misnotkun í sambandi við útlán Framkvæmdasjóðs.

Í sambandi við þetta atriði vil ég aðeins minnast á það að einn af bankastjórum þjóðbankann, Jónas Haralz, ritaði í eitt af dagblöðum bæjarins grein fyrir nokkrum dögum sem hann nefnir: „Þekking eða mannþekking.“ Í þessari grein ræðir bankastjórinn um að Framkvæmdasjóður Íslands og Byggðasjóður hafi verið færðir frá Seðlabankanum og Landsbankanum til Framkvæmdastofnunarinnar og síðan segir orðrétt, með leyfi hæstv. forseta:

„Það þarf engum blöðum um það að fletta, hvaða afleiðingar þessi breyting hefur haft í för með sér og lítill vafi á því, hvaða þátt hún hefur átt í þróun lánamála og efnahagsmála að undanförnu. Með þessu er ég ekki að segja að rétt sé að hverfa aftur til fyrra skipulags.“

Þetta voru orð bankastjórans. En hann segir einnig að slík breyting sem gerð hafi verið dragi úr yfirsýn og aðhaldi. Ég sá ástæðu til þess af þessu gefna tilefni, með tilliti til þess að bankastjórinn segir að það dragi úr aðhaldi að breyta þessu á þann veg, að gera sérstaka athugun á því hvernig lánamálum innlánsstofnana annars vegar og Framkvæmdasjóðs hefur verið háttað á síðustu árum. Ég lét athuga hvernig þessi mál hefðu staðið á árunum 1973 og 1974. Það kemur í ljós að á árunum 1973–1974 hefur nettóaukning útlána innlánsstofnana verið 7 milljarðar 526 millj. kr., þar af hjá Landsbankanum 4 maljarðar 440 millj. Það er hækkunin milli áranna 1973 og 1974. Hjá Framkvæmdasjóði hefur þetta aftur á móti verið þannig að nettó-útlánaaukning fjárfestingarlánasjóðanna — og á ég þá bæði við íbúðarlánasjóðina og Framkvæmdasjóð eða fjárfestingarlánasjóðina — að útlánaaukningin á milli áranna 1973 og 1974 hefur numið 1183 millj. og þar af 427 millj. hjá fjárfestingarlánasjóðunum. Á sama tíma sem útlánaaukningin hjá Landsbankanum hefur numið 4 milljörðum 440 millj., þá hefur aukningin numið 427 millj. hjá fjárfestingarlánasjóðunum eða 10 sinnum minni. Ég vildi aðeins minnast á þetta að gefnu tilefni, en þetta er raunar utan við þá umr. sem hér fer fram um Framkvæmdastofnunina. (Forseti: Mig langar að spyrja hv. þm. hvort hann eigi mikið eftir af ræðu sinni.) Ég á nokkuð mikið eftir, já. (Forseti: Það er ætlunin að ljúka þessum fundi núna kl. 4, svo að ég verð að biðja hv. þm. að bíða með ræðu sína þangað til á næsta fundi deildarinnar.) [Frh.]