12.02.1976
Efri deild: 54. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1894 í B-deild Alþingistíðinda. (1581)
151. mál, gjald af gas- og brennsluolíum
Forsrh. (Geir Hallgrímsson) :
Herra forseti. Það er engin launung á því, að endurskoðun sjóðakerfisins eykur rekstrarvanda stóru togaranna frá því sem áður var. Það er talið að minni skuttogararnir, undir 500 smál. að stærð, muni koma nokkurn veginn jafnir hvað afkomu snertir eftir endurskoðun sjóðakerfisins, en aftur á móti mun halli stóru togaranna aukast eftir þessa endurskoðun og eftir hækkun þá, sem verður á olíu til rekstrar þeirra.
Við lausn togaraverkfallsins á síðasta ári voru gerðar allvíðtækar ráðstafanir til þess að tryggja rekstur stóru togaranna þ. á m. var þeim veittur lengri lánstími af stofnlánum og enn fremur var svo fram tekið, að í stað 20% gjalds í Stofnfjársjóð fiskiskipa þyrftu þeir eingöngu að greiða 5%. Ég skal ekki tíunda allar þessar ráðstafanir.
Afstaða til þess, hvernig á að mæta hinum nýja vanda stóru togaranna, hefur ekki enn verið tekin, og þótt menn hafi reynt að gera sér grein fyrir hve stór hann er, vil ég á þessu stigi ekki fara með neinar tölur, því að nokkur von er í því fólgin að endurskoðun sjóðakerfisins sjálfs stuðli að hagkvæmari rekstri stóru togaranna eins og annarra fiskiskipa, þegar ábyrgð á rekstrarkostnaði, raunverulegum rekstrarkostnaði fiskiskipanna, fer yfir á þá sem þeim stjórna. Þá er einnig á það að líta, að sem betur fer hefur rekstrarafkoma stóru togaranna heldur skánað frá því sem gert var ráð fyrir á miðju síðasta ári, og veldur þar um að þeir hafa aflað meira og haft heldur stöðugra úthald en áður var. Byrjunarörðugleikar voru allmiklir á rekstri stóru skuttogaranna, eins og kunnugt er, bilanir tíðar og smíðagallar komu fram sem urðu til þess að togararnir hurfu frá veiðum. Það er varðandi stóru togarana sama sagan og var reyndar einnig um minni skuttogarana, að nokkur tími þurfti að líða eða reynsla að fást til þess að rekstur þeirra gengi bærilega. Hvort tveggja er því til að svara fsp. hv. þm., að vonir standa til þess að rekstrarafkoma stóru togaranna fari batnandi vegna aukinnar reynslu og þar af leiðandi aukins afla og stöðugra úthalds, en að öðru leyti er hér um óleystan vanda að ræða sem snúast verður við ef menn vilja á annað borð tryggja útgerð þeirra og atvinnu í þeim bæjum sem einkum byggja sjávarútveg sinn á útgerð stóru togaranna, þ. e. a. s. Akureyri, Akranesi, Reykjavík og Hafnarfirði.