17.02.1976
Sameinað þing: 51. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1921 í B-deild Alþingistíðinda. (1597)
111. mál, sjóefnavinnsla á Reykjanesi
Iðnrh. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Rannsóknir til undirbúnings sjóefnaverksmiðju á Reykjanesi hafa staðið yfir í fullan áratug.
Rannsóknaráð ríkisins ákvað á árinu 1966 að beita sér fyrir könnun á þessu máli, en áður höfðu nokkrar byrjunarathuganir á saltvinnslu verið gerðar á vegum Raforkumálaskrifstofunnar, en aðallega í sambandi við önnur jarðhitasvæði en Reykjanes.
Fyrsta athugunin, sem Rannsóknaráð ríkisins lét gera, var almennt yfirlit um möguleika til framleiðslu salts og annarra efna úr sjó og skeljasandi. Á þeim grundvelli voru lagðar fram till. um nánari rannsóknir á einstökum þáttum. Á árinu 1968 hófust boranir og jarðfræðilegar rannsóknir á Reykjanesi. Árið 1970 var boruð þar um 1800 m djúp hola. Hún var talin gefa svo góðan árangur að hinar jarðfræðilegu forsendur saltverksmiðju væru traustar. Jafnframt þessum jarðfræðilegu athugunum hafa verið gerðar tæknilegar tilraunir og áætlanir um stofnkostnað og rekstur fyrirtækja sem gætu hagnýtt þessi verðmæti og framleitt ýmiss konar efni úr þeim. Um þessa möguleika er notað samheitið „sjóefnavinnsla“, en með því hugtaki er átt við fjölþætta vinnslu úr sjó og heitum, söltum hveralegi frá jarðhitasvæðinu á Reykjanesi.
Aðalfrumkvöðull þessa máls hefur verið Baldur Líndal efnaverkfræðingur sem hefur unnið að því að staðaldri.
Haustið 1972 skilaði Rannsóknaráð ríkisins skýrslu til ríkisstj. um fyrsta stig vinnslunnar, saltverksmiðju á Reykjanesi, með áætlun um stofnkostnað og rekstur sem benti til þess að starfsemi verksmiðjunnar gæti orðið arðbær.
Iðnrn. fól þá Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsens og hagrannsóknadeild Framkvæmdastofnunar að gera könnun á rekstrargrundvelli saltverksmiðjunnar. Verkfræðistofan fékk sér til fulltingis bandarískt verkfræðifyrirtæki til að kanna málið. Þessar umsagnir lágu fyrir í febr. 1974 og skömmu síðar gaf iðnru. út yfirlitsskýrslu um málið. Umsagnir voru jákvæðar og áætluð arðsemi fyrirtækisins talin jafnvel betri en niðurstöður Rannsóknaráðs höfðu gefið til kynna.
Að beiðni þáv. iðnrh. lagði Iðuþróunarnefnd fram till. um meðferð málsins og áætlun um kostnað við nauðsynlegar undirbúningsframkvæmdir. Voru þær till. sendar rn. í apríl 1974. Samkv. till. n. fól iðnrn. viðræðunefnd um orkufrekan iðnað að gera till. um hvernig staðið skyldi að frekari undirbúningsframkvæmdum.
Afurðir verksmiðjunnar mundu verða fínsalt og fisksalt, kalí til áburðar, kalsíum-klóríð, bróm til notkunar i iðnaði. Gert er ráð fyrir, að til mundi falla verulegt magn af kísil, gipsi og koldioxíði sem úrgangsefni. Líklegt er að sum eða öll þessi efni gætu skilað hagnaði ef þau væru nýtt á réttan hátt.
Talið er nauðsynlegt að gerðar séu frekari rannsóknir áður en endanleg ákvörðun verður tekin um byggingu sjóefnaverksmiðjunnar. Hafa því verið gerðar till. um rekstur tilraunaverksmiðju á Reykjanesi í þessu skyni. Stóriðjunefnd hefur lagt til að stofnað verði sérstakt könnunarfélag í þessu skyni.
Í iðnrn. er nú tilbúið frv. til l. um saltverksmiðju á Reykjanesi sem felur það í sér að stofnað verði hlutafélag sem hafi það markmið að kanna aðstæður til að reisa og reka saltverksmiðju og annast undirbúning að því að koma slíku fyrirtæki á fót. Ríkisstj. hefur samþ. að frv. verði lagt fyrir Alþ. og verður það gert einhvern næstu daga.