17.02.1976
Sameinað þing: 51. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1929 í B-deild Alþingistíðinda. (1606)

136. mál, símaþjónusta

Oddur Ólafsson:

Herra forseti. Af þeim umr., sem hér hafa farið fram bæði nú og fyrir nokkrum dögum, skyldi maður halda að allt væri í hinu besta lagi þegar hér á Stór-Reykjavíkursvæðinu.

Mér fannst rétt að láta aðeins heyra í mér sem búanda í Reykjaneskjördæmi og finnst ég hafa þá sögu að segja, að fleiri gætu kvartað en þeir sem búa úti í hinum dreifðu byggðum. Það er nú þannig hjá okkur, sem búum í norðaustur frá höfuðstöðvunum, í Mosfellssveitinni, svona 10 km i norðaustur frá höfuðstöðvunum, að við verðum að borga 20 sinnum meira gjald fyrir hálftíma símtal, skulum við segja, heldur en þeir sem búa 10 km í suðvestur frá höfuðstöðvunum. Látum þetta nú vera. Það er ekki öll sagan sögð með því. Í okkar símtólum heyrast oft um miðjan daginn, þegar mest er að gera, sérkennileg hljóð og þessi hljóð eru mjög lík vissri elektrónískri tónlist sem við heyrum oft í útvarpinn, ýmist ískur eða öskur, og eru mjög óþægileg og áberandi. Á meðan þetta stendur yfir er vonlaust að ná sambandi. Þetta getur staðið mjög lengi. Gárungarnir í sveitinni okkar segja að ef það kviknaði í um miðjan dag uppi í Mosfellssveit, þá væri besta ráðið til að ná til okkar slökkviliðs, sem er slökkvilið Reykjavíkur, að hringja til Akureyrar og biðja um að ná sambandi fyrir okkur, því að það virðist vera greiðara að hringja áfram i norðaustur.

Þetta er okkar saga af þessu. Það er sem sagt eitt hörmungarástand og byggist vafalaust á tvennu:

Í fyrsta lagi eru þessar sveitir hér í nágrenni Reykjavíkur eitt atvinnusvæði, Reykjavík og nágrannasveitirnar. Þess vegna eru símtölin svo miklu fleiri en maður skyldi halda og gera það að verkum að línurnar eru allt of fáar.

Í öðru lagi eru einhverjir óskapa vankantar á stillingum. Segja sumir að þeir hjá símanum séu ekki búnir að læra á þau nýju tæki sem þeir eru búnir að fá og takist ekki enn þá að stilla þau sem skyldi. Eitt er víst, að það kemur alloft fyrir þegar að símnotandi A hringir, að þá er það síminn hjá B sem telur skrefin. Þetta er ekki bundið við okkar svæði, heldur mun þetta vera víðar, en getur komið sér mjög illa. Ég gæti haldið lengur svona áfram. En það er ekki eingöngu úti í dreifbýlinu sem ýmislegt getur verið að, þó að við látum ekki eins oft í okkur heyra og þeir sem þar eru.

En eitt vil ég þó segja um það sem kom hér fram fyrir nokkrum dögum. Það var varðandi þá annmarka landsmanna að ná til höfuðborgarinnar og þeirrar þjónustu sem hún hefur að bjóða. Því verður ekki neitað að það getur verið mjög erfitt og dýrt. Mér datt þess vegna í hug hvort ekki mætti til bráðabirgða, meðan beðið er eftir jöfnun á símgjöldum sem mér finnst vera sjálfsagt að stuðla að, hvort það væri ekki leið að viss númer, við skulum segja númerin hjá aðalþjónustustofnunum ríkisins, væru jafndýr fyrir alla landsmenn, þ.e.a.s. að frá Akureyri væri hægt að hringja í 25000, í stjórnarráðið, ekki í sjálfvirka símanum, heldur gegnum símstöðina, og það kostaði aldrei nema eitt skref, hvort sem það er á Austurlandi, Norðurlandi eða hér í nágrenninu. Þetta væri auðvelt að gera, hvort sem það er Vegagerð ríkisins, Húsnæðismálastofnun ríkisins, eða stjórnarráðið. Á þennan hátt mætti aðeins bæta ástandið frá því sem nú er.