17.02.1976
Sameinað þing: 51. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1930 í B-deild Alþingistíðinda. (1607)

136. mál, símaþjónusta

Stefán Jónsson:

Herra forseti. Ég mun nú í upphafi taka aðallega undir það sem hv. þm. Karvel Pálmason gerði fyrst og fremst að umræðuefni og tilgreindi sem ástæðuna fyrir því að hann sté upp í þennan stól. Ég skil ekki þessa samúð, þessa meðaumkun með Landssíma íslands í sambandi við fram komnar hugmyndir um jöfnun á símgjöldum á Íslandi, þetta muni leiða til óhæfilegs álags á veslings Landssímann eða jafnvel upplausnar. Ég hef samúð með fólkinu sem þarf að borga margföld gjöld fyrir afnot af þessu bráðnauðsynlega tæki, situr ekki við sama borð og helmingur landsmanna í þessu tilviki og þarf þó mest á þessu tæki að halda.

Ég vil vekja athygli á vandamáli sem hv. 1. þm. Suðurl. gerði hér að umtalsefni, þar sem er skortur á linum i sambandi við sjálfvirka kerfið sem komið hefur verið upp. Sannleikurinn er sá, að þetta sjálfvirka símstöðvakerfi, sem hv. þm, var að vissu leyti að hrósa sér af, ég get vel skilið það, það hefur ekki leitt til úrbóta, það hefur ekki verið framför í símamálum landsins. Það hefur vegna skorts á linum beinlínis leitt til afturfarar. Og af því að rætt var hér um öryggiskerfið, um öryggisþjónustu Landssímans, þá ber þess að geta í þessu sambandi, að þess eru dæmi að einmitt þar sem komnar eru sjálfvirkar stöðvar hefur verið eyðilagt eitt helsta og besta öryggiskerfi landsins, þar sem var sá möguleiki að hringja í alla síma samtímis á þjónustusvæði og kalla menn til hjálpar í neyð. Nú er svo komið á ýmsum stöðum, þar sem sjálfvirka kerfið er komið upp, að ef svo vill til að 3–4 menn á þessu þjónustusvæði þurfa að tala í síma samtímis, þá er ekki, þó að menn eigi lífið að leysa, hægt að ná sambandi, þá eru allar línur uppteknar.

Með þessum hætti hefur sjálfvirka kerfið, sem sóst hefur verið eftir, orðið beinlínis til bölvunar. Og ég vil beina þeirri spurningu til hæstv. samgmrh. hvort ekki hafi verið tekinn til athugunar möguleikinn á því að samstilla þetta átak, þannig að sjálfvirkar stöðvar komi ekki fyrr en línurnar, þannig að símasamband versni ekki stórlega við tilkomu sjálfvirku stöðvanna.