17.02.1976
Sameinað þing: 51. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1938 í B-deild Alþingistíðinda. (1615)
104. mál, starfsemi IBM hér á landi
Fyrirspyrjandi (Vilborg Harðardóttir):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. viðskrh. fyrir svör hans, svo langt sem þau náðu. En ég verð að segja það sem mína meiningu og sjálfsagt fleiri, að ég tel það í hæsta máta óeðlilegt að Alþ. skyldi ekki þurfa á sínum tíma að staðfesta slíkan samning sem hann sagði hér frá að félmrn. hefði gert, — að Alþ. skyldi ekki þurfa að staðfesta slíkan samning við erlendan auðhring, einkum og sér í lagi þar sem kemur fram, eins og reyndar kom fram hjá mér áðan og allir vita, að samningar við þennan auðhring eru gerðir í erlendum gjaldeyri.
Í sambandi við gengisbreytingu hef ég aðrar upplýsingar frá leigjendum heldur en hæstv. ráðh. Þar er staðhæfing gegn staðhæfingu. Ég ætla ekki að halda minni til streytu. Það mætti kannske biðja um að það væri rannsakað betur. Það er áreiðanlegt, að það er í fyllsta máta óeðlilegt að miða leiguna við erlendan gjaldeyri.
Í svari sínu við þriðju spurningu, um flutning fjármagns frá útlöndum vegna fjárfestingar og annars stofnkostnaðar hérlendis, virðist ráðh. telja að þar sé allt með felldu, það sé ekki borgað annað út en það sem flutt er inn. En mér er spurn: Hver er það sem fylgist með þessu? Hver sér um að I.B.M. flytji ekki út meira fjármagn en markaðsverðmæti vélarinnar. Er þess gætt af hálfu gjaldeyrisyfirvalda að þeirri reglu sé fylgt að ekki sé flutt út meira en markaðsverðmæti vélarinnar? Ég tel að það geti verið mjög erfitt að fylgjast með þessu í raun vegna þess að hér er um leigusamning að ræða og það er ekki greitt fyrir vélina þegar hún kemur inn í landið, heldur löngu eftir á, jafnóðum og leigutekjur koma. Er kannske fylgst með að ekki sé borgað meira í leigutekjur en nemur því verðmæti, sem vélin er skráð fyrir?
Ég vildi beina því til ráðh. að svara á hvaða hátt þetta er tryggt.
Í svari sínu við fjórðu spurningunni telur ráðh. að komið hafi í ljós að hagkvæmara sé að leigja vélar heldur en að kaupa þær. Mér er aftur spurn. Hann svaraði því ekki, hvort það hefur verið rannsakað. Ég hef ekki orðíð vör við að það hafi verið rannsakað. Hann taldi hér upp ýmsa aðila, mjög marga og stóra aðila, einmitt þá aðila sem vinna lykilhlutverk á tölvur hér á landi, og staðfesti þar með það sem ég sagði áður, að þeir, sem nota I.B.M. tölvur og hafa þær á leigu miðaða við erlendan gjaldeyri, það eru þeir sem vinna stærstu verkefnin i tölvum. Ráðh. kvaðst þó ekki vita hlutdeildina. Það er mjög slæmt að hann skuli ekki vita hlutdeildina, en ætla má eftir þeim upplýsingum, sem ég hef fengið um hlutdeild LB.M. á tölvumarkaði hér á landi, að þar sé um að ræða um eða yfir 90%. En eins og ég benti á áðan er 60% hlutdeild sama aðila á tölvumarkaði erlendis nánast talin jafngilda einokun. Telur ráðh. að slíkt hlutfall sem hér um ræðir sé æskilegt og eðlilegt, ef ekki, er þá ekki kominn tími til að gera einhverjar ráðstafanir til að breyta þessu?