17.02.1976
Sameinað þing: 52. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1969 í B-deild Alþingistíðinda. (1642)

114. mál, sjónvarp á sveitabæi

Páll Pétursson:

Herra forseti. Það er út af þessu með steikina. Hún kostar 3000 kr., frétti ég, og hv. 12. þm. Reykv. lagði til að þeir, sem framleiddu svona steikur, byggðu sínar sjónvarpsstöðvar sjálfir, endurvarpsstöðvar sjálfir. Ég vil upplýsa hv. 12. þm. Reykv. um það, að fyrir eitt kg af 1. flokks dilkakjöti á bóndinn samkv. verðlagsgrundvelli frá 1. des. 1975, þ.e.a.s. þeim verðlagsgrundvelli sem gildir í dag, að fá kr. 402.70. Af þessari 3000 kr. steikarmáltíð fær bóndinn sem sagt kr. 402.70 fyrir hvert kg. Og svo geta menn reiknað hvað drjúgdeilt verður þessu kjötkílói. Það er sem sagt töluvert sem ber á milli, og kannske væri þá ekki óeðlilegt að ekki einasta framleiðendur, sem fá einungis 402.70 fyrir kg af þessum dýra málsverði, heldur einnig steikarkaupandi og matreiðslumenn, þjónar og allir þeir aðrir sem ábata hafa af þessum viðskiptum öllum, legðu nú saman í púkkið, þannig að hægt væri að sýna öðrum kjötframleiðendum, sem fá 402 kr. gjald fyrir hvert kg dilkakjöts, ofurlítið sjónvarp.