18.02.1976
Neðri deild: 60. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1972 í B-deild Alþingistíðinda. (1651)
113. mál, álbræðsla við Straumsvík
Páll Pétursson:
Herra forseti. í þessu frv. til laga um lagagildi viðaukasamnings milli ríkisstjórnar Íslands og Suisse Aluminium Ltd. um álbræðslu við Straumsvík sýnist mér sumt vera til bóta frá fyrra samkomulagi. Rafmagnsverð er fært nær raunveruleikanum en það hefur verið. Sem kunnugt er hafa 50% af tiltækri notkun raforku farið til álversins og fyrir það fengist tæp 10% af verði. Nú hækkar það úr 3 eða 21/2 mill í 31/3 eða 4 eða jafnvel 41/2 mill. gæti síðan lækkað niður í 31/2 mill eftir álverði eða hækkað ofurlítið ef lukkan væri með okkur. Þetta finnst mér nú ekki geysileg úrbót, en þó ber að þakka hana og fagna þeim árangri, þó að ég sé þeirrar skoðunar að þetta verð sé enn þá of lágt. En hagur Landsvirkjunar skánar væntanlega eitthvað í bili.
Það er rétt að geta þess, að Áburðarverksmiðjan og Sementsverksmiðjan knúðu fram á sínum tíma að komast undir sama orkuverð og ÍSAL. Þeim samningi hefur nú verið sagt upp við Áburðarverksmiðjuna. Hann hækkar og hækkar þar með áburðarverð fyrirsjáanlega talsvert vegna þess.
En það fylgja fleiri bögglar þessu skammrifi. Skattgjaldstekjur lækka, en verða þó með nokkrum hætti nærtækari íslendingum vegna breytinga á endurgreiðsluákvæðum. Endurgreiðsluákvæðin á framleiðslugjaldinu í gamla samningnum eru lærdómsríkur kapítuli og sýnishorn um það hvernig ekki eigi að gera samninga, eins og raunar margt fleira í álsamningnum gamla. Viðurkenningu á því sjónarmiði er að finna á bls. 11 í grg. 29.09:
„Ríkisstjórn Íslands skal færa ÍSAL til eignar miðað við 30. sept. 1975 fjárhæðina 4.4 millj. Bandaríkjadollara, er svarar til skattinneignar ÍSALs á þeim degi samkv. málsgrein 27.06 í aðalsamningnum, eins og sú málsgrein átti við áður en honum var breytt með öðrum víðauka við aðalsamninginn. Fjárhæð þessi flyst með ársvöxtum, er séu jafnháir forvöxtum Seðlabanka Bandaríkja Norður Ameríku, eins og þeir eru birtir á hverjum tíma, og ber að nota hana til greiðslu með skuldajöfnuði á framleiðslugjaldsskuldbindingum ÍSALs vegna almanaksára eftir 30. sept. 1975, að því leyti sem þær skuldbindingar eru umfram heildarfjárhæð framleiðslugjalds fyrir viðkomandi ár þegar gjaldið er reiknað á grunntaxta. Sérhverjar eftirstöðvar fjárhæðarinnar, sem ekki er unnt að nota með þessum hætti, skulu endurgreiddar ÍSAL þegar samningur þessi rennur út eða honum er slitið.“
Þarna kemur það sem sé fram, að Álfélagið á endurkröfurétt, sem hér er viðurkenndur af íslendingum, fyrir hátt í 700 millj.
Ég sakna þess að ekki er minnst á mengun í þessum samningi. Það vandamál hefur horfið í skuggann fyrir öðrum, en er þó enn þá til. Nál. meiri hl. fylgir bréf frá ÍSAL, þar sem þeir segja að þeir muni einhvern tíma setja upp hreinsitæki. „Já, margt er nú bréfið,“ sagði gamall maður úr Bláskógaheiðinni. Ég geri ekki mikið með þetta bréf. Bréf um þetta efni hafa gengið frá Heródesi til Pílatusar fram og til baka um árabil, en úrbæturnar eru jafnfjærri og þegar fabrikkan andaði sínu fyrsta pústi.
Ég furða mig á því, að ekki einu sinni hvað varðar stækkunina skuli hafa verið sett skilyrði um mengunarvarnir sem hald er í. Mig undrar að Heilbrigðiseftirlitið, heilbrmrn. og þó sérstaklega hæstv. heiIbr.- og trmrh. skuli láta þetta óátalið. Ráðh. hl.ýtur með því að telja að einungis sé um meinlaus úrgangsefni að ræða í Straumsvík.
Þá kem ég að því atriði, sem mér finnst lakast í þessum samningi, heimildinni til stækkunar álversins. Ég er þess fullviss að lítils háttar leiðrétting á rafmagnsverðinu er dýru verði keypt þótt ekki kæmi annað til en þessi stækkun. Við höfum mjög slæma reynslu af þessu fyrirtæki og þeim atvinnuháttum og þeirri atvinnuuppbyggingu þjóðfélagsins sem þar var hafin. Þess vegna sé ég enga ástæðu til þess að fara að heimila stækkun þessa iðjuvers, jafnvel þótt nokkur hækkun raforkuverðs fengist fyrir það og það sé vissulega jákvætt að íslenskír raforkunotendur þurfi ekki að borga eins mikið með raforkusölunni til álversins á næstu árum og þeir hafa gert til þessa. Landsvirkjun hefur. sbr. bls. 27 í aths. við frv., reiknað út meðalverð viðbótarsölunnar árin 1978 og 1979 miðað við álverð 45 cent á pund, og það er 4.43 mill á kwst. Þetta fyrirtæki hefur alla tíð verið skorbíldur í þjóðarbúinu, sogað til sín meira en helminginn af tiltæku rafmagni og ekki goldið fyrir nema hluta af framleiðslukostnaðarverði þess. Framleiðslukostnaðarverð á raforku við Sigöldu er áætlað 180 aurar á kwst., og að vera nú að gera samninga um ráðstöfun á hluta þeirrar orku fyrir meðalverð viðbótarsölunnar á ca. 75.3 aura, það þykir mér ekki skynsamlegt. Þannig tel ég að ekki eigi að haga vinnubrögðum við uppbyggingu atvinnulífs á Íslandi og það er útilokað að selja raforkuna á verði sem er neðan við framleiðslukostnaðarverð á hverjum tíma, a.m.k. þegar ekki er um innlend þjóðþrifafyrirtæki að ræða.
Ég tel að reynslan hafi sannað okkur það rækilega, að sú uppbygging atvinnulífs á Íslandi að laða hingað erlend auðfélög til þess að koma á fót iðjuverum, sem eru ýmist alfarið í eigu útlendinga eða þá með snöru hringanna um hálsinn, sé röng, svo röng að fjarstæða sé að halda lengra á þeirri braut. Ég bið menn að hugleiða hvernig ástandið væri núna ef við hefðum hleypt útlendingum í fiskiðnað eða útgerð á Íslandi. Þetta er að mörgu leyti hliðstætt. Nú þegar áliðnaður dregst saman, þá losar álverið sig náttúrlega við drjúgan hluta af starfsmönnum sínum. Í Straumsvík hafa menn unnið erfiða og óholla vinnu, en þar hafa menn líka fengið hátt kaup. Starfsmenn annarra fyrirtækja hafa farið að miða sig við það og krafist sömu launa. Þegar ríkisstj. vildi ekki fallast á þessar kröfur í áburðarverksmiðjunni og sementsverksmiðjunni í fyrravor og setti brbl., þá neitaði verkalýðshreyfingin að hlýða þeim lögum og „þau fóru í bága við réttarvitund almennings“ að sögn forseta ASÍ. Og verkalýðshreyfingin braut á bak aftur rétt kjörin stjórnvöld í landinu og fyrirkom í eitt skipti fyrir öll úrræðum brbl. í vinnudeilum. Þarna kom fram enn einn þáttur í áhrifum álversins á íslenskt efnahagslíf.
Álverið hefur reynst okkur illa í flestu tilliti, svo sem framsóknarmenn bentu á við stofnun þess. Ég vísa til nál. 2. minni hl. álbræðslunefndar í Nd., þskj. 501, 1966, undirritaðs af Ingvari Gíslasyni og Þórarni Þórarinssyni, og nál. á þskj. 608 frá 1. minni hl. álbræðslunefndar: Ed., undirritaðs af Helga Bergs og Ólafi Jóhannessyni. Ingvar og Þórarinn gengu svo langt að leggja fram rökstudda dagskrá við frv. Hrakspár framsóknarmanna þegar viðreisnarstjórnin gerði álsamninginn hafa að öllu leyti reynst réttar. Í stað þess að álverið skyti sterkari stoðum undir afkomu þjóðarinnar hefur það reynst ómagi á þjóðarbúinu. Gjaldeyristekjum hefur starfsorka og heilsa starfsmanna í Straumsvík að vísu skilað, en gjaldeyrir hefði myndast eða sparast vegna starfsorku þeirra, hvort þeir hefðu unnið þjóð sinni til sjós eða lands, og hamingja þeirra vafalaust ekki orðið minni.
Frsm. meiri hl. iðnn, hv. 1. þm. Suðurl. Ingólfur Jónsson, fjölyrti mjög um gróðann af þessu álveri, bæði fyrr og þó sérstaklega í framtíðinni. Hann rakti dæmi, sem stóriðjunefnd hafði látið reikna út og prentuð eru á bls. 29 og 30 í aths. við frv. Bæði þessi dæmi gera ráð fyrir gróða íslendinga. Í ræðu hv. 1. þm. Suðurl., sem birt er í Morgunblaðinu, vil ég leyfa mér að rifja upp þessi orð: .,Í skýringum með frv. eru sett fram tvö dæmi, A og B. Ætla má að dæmi A gæti verið raunhæft, sem gerir ráð fyrir svipaðri verðþróun á áli og undanfarna tvo áratugi, en dæmi B gerir ráð fyrir örari verðhækkunum á áli eða um 5% á ári að meðaltali í dollurum. Einnig gerir dæmi B ráð fyrir mun meiri hagnaði. Dæmi B verður að teljast óraunhæft, enda sett af íslensku samninganefndinni í viðræðum við Alsuisse til stuðnings málstað Íslands.“ Ég verð að játa að upp í svona röksemdafærslu næ ég ekki. Ég vona bara að hæstv. fjmrh. og hans menn setji ekki fram algjörlega óraunhæf dæmi til að styrkja málstað íslands. Læðist nú ekki að einhverjum stjórnarþm. öðrum en mér lúmskur grunur um það, að dæmi A kunni að vera óraunhæft líka, eins og dæmi B og þau dæmi sem sett voru fram með álsamningnum gamla og járnblendisamningnum í fyrravetur og hafa rækilega sannast að voru óraunhæf? Þrátt fyrir það að formanni stóriðjunefndar hafi tekist að fá fram lítils háttar lagfæringu á orkusölusamningi fyrir formann Landsvirkjunar og bætt nokkuð úr mistökum þeim sem formaður viðræðunefndar um orkufrekan iðnað gerði 1966 og þar með ef til vill létt af seðlabankastjóra einhverjum áhyggjum vegna Landsvirkjunar, þá tel ég að sú leiðrétting sé of dýru verði keypt með því að heimila þessa stækkun og þvælast enn þá lengra út í ófæruna, út í stóriðjufenið. Ég mun samkvæmt því sjónarmiði mínu leggjast gegn samningi þessum.