19.02.1976
Sameinað þing: 53. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2000 í B-deild Alþingistíðinda. (1661)
Umræður utan dagskrár
Forseti (Ásgeir Bjarnason):
Út af ummælum hv. 2. þm. Austurl. vil ég taka það fram, að enda þótt umr. um vantrauststill. fari fram á mánudag, þá er sá tími, sem líður frá útbýtingu till. til mánudags, með þeim skemmsta tíma sem dæmi eru til um, því að venjulega hefur umræða farið fram innan vikutíma frá því að till. hefur komið fram um vantraust, þannig að hér er ekki um neitt óeðlilegan langan tíma að ræða. Og dæmi eru þess líka, að það hafi liðið nokkrar vikur. Hitt er rétt hjá hv. þm., að yfirleitt hefur náðst samkomulag um það, hvenær umr. skuli fram fara. Hins vegar er það ekki nú, eins og þegar hefur komið fram. Hæstv. ríkisstj. hefur talið að það yrði heppilegast að hafa umr. á mánudag, og ég fyrir mitt leyti hef ekkert við það að athuga. Hins vegar, ef einhverjir möguleikar væru á því að það gæti fundist annar tími, þá skal ég gera mitt í því, en ég reikna ekkert frekar með því að það geti orðið. Þegar þessi mál voru rædd í gær og einnig í morgun, þá virtist mánudagskvöldið vera heppilegasti tíminn. Mér finnst eðlilegt að taka tillit til hæstv. ríkisstj. þegar umr. um vantraust á hana kemur fram.