19.02.1976
Sameinað þing: 53. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2005 í B-deild Alþingistíðinda. (1666)
Umræður utan dagskrár
Karvel Pálmason:
Herra forseti. Það er nú kannske ekki ástæða til að hafa mörg orð vegna þess sem hér hefur verið rætt í sambandi við tímasetningu á umr. um þá vantrauststill sem fram er komin. Sjálfsagt er það rétt hjá hæstv. forseta og öðrum, sem það hafa sagt hér, að þó að mánudagur yrði valinn, þá yrði það með styttri tíma sem slík till. lægi frá því að hún hefur komið fram og þangað til hún væri tekin til umr. Og ekki á ég von á því að hylli hæstv. ríkisstj. vaxi svo á þeim fáu dögum sem til mánudagsins eru að það sé nein ástæða til að ætla að hún standi betur að vígi á mánudag en á morgun. Ég held að þurfi kraftaverk til að hylli hæstv. ríkisstj. vaxi héðan af hjá almenningi á Íslandi (Gripið fram í.) Nei, ég held hún sé ekki mikil. Ég held því sé öfugt farið, hæstv. utanrrh. Og kannski hefur hæstv. utanrrh., sem greip fram í, orðið hvað mest var við það, að hylli hæstv. ríkisstj. er ekki mikil meðal almennings.
Hitt er auðvitað rétt, sem hér hefur komið fram, að vantrauststill. hefur líklega sjaldan, ef nokkurn tíma, verið borin fram við slíkar kringumstæður eins og nú eru. Það er slíkt ástand í þjóðfélaginu að það er ekki að ástæðulausu sem slík till. kemur fram. Það er því full ástæða til að ítreka það að till. verði tekin til umr. svo fljótt sem verða má. Og vel má vera að hæstv. ráðh., dómsmrh. og öðrum hæstv. ráðh., veiti ekki af tímanum fram til mánudags til þess að undirbúa varnarræður fyrir hæstv. ríkisstj. Ég get vel unnt þeim þess að hafa þann tíma til umráða.
En út af því sem hæstv. dómsmrh. sagði hér áðan, þá var á engan veg annan hægt að skilja hans ræðu, þegar hann talaði um hvort rætt hefði verið við Sjálfstfl. um aðra væntanlega ríkisstj., ekki hefði það verið gert við Framsfl., en að það gæti kannske oltið á því hver afstaða framsóknarforingjanna yrði til umræðu um þessa till., hvort bað væri von fyrir þá að komast í aðra ríkisstj. eftir að þessi væri fallin. Það mátti a.m.k. skilja orð hæstv. dómsmrh. á þann veg, að hann vildi hafa það tryggt hvort Framsókn ætti inngöngu í aðra ríkisstj. að þessari fallinni. Vonandi verður formaður Alþfl. til þess að svara honum um það, hvort hafi verið rætt við Sjálfstfl. um þetta. Það var greinilega ótti af hálfu hæstv. dómsmrh. að það hafi verið gengið fram hjá Framsókn og rætt beint við Sjálfstfl. Þetta vænti ég að form. Alþfl. upplýsi hér á eftir, þannig að dómsmrh. geti þá verið rólegri eftir en áður.
Ég skal ekki fara öllu fleiri orðum um þetta. En ástæðan fyrir því, að ég kvaddi mér hljóðs, voru fyrst og fremst þau orð hæstv. forsrh., sem hann lét falla áðan um afskipti eða sem ég vil kalla afskiptaleysi hæstv. ríkisstj. af þeim kjaradeilum sem nú standa yfir í þjóðfélaginu. Hann vildi láta í það skina a.m.k., að ríkisstj. hefði lagt sitt af mörkum til lausnar þessum deilum og ríkisstj. hefði átt viðræður bæði við launþegasamtökin sér og við aðila vinnumarkaðarins saman, og vildi gefa í skyn að þau ummæli, sem hv. 9. þm. Reykv. lét falla áðan um að ríkisstj. hefði verið aðgerðalítil, vægast sagt, í þessum málum, væru ekki á rökum reist.
Í Þjóðviljanum 17. febr., þ.e.a.s. daginn sem allsherjarverkfall skellur á hér á landi, viðtækasta verkfall sem átt hefur sér stað í sögu þjóðarinnar frá upphafi, er viðtal við forseta Alþýðusambands Íslands þar sem hann er m.a. spurður um marga þætti þeirra krafna, sem launþegasamtökin hafa sett fram, og hugsanleg viðbrögð og hugsanlega meðferð málsins að mörgu leyti. Í lok þessa viðtals við forseta Alþýðusambands Íslands þann dag sem verkfallið er skollið á segir hann orðrétt, með leyfi hæstv. forseta:
„Ríkisstj. hefur hundsað allar þær stjórnmálalegu aðgerðir sem við höfum bent á að gætu liðkað fyrir samningum og orðið gætu okkar umbjóðendum til bóta. Því eigum við nú ekki annars kost en leggja niður vinnu.“
Þetta eru ummæli forseta Alþýðusambands Íslands og ég væni hann ekki um að fara hér með rangt mál. Það liggur því a.m.k. ljóst fyrir í mínum augum og huga, að ríkisstj. hefur í þessum efnum sem og flestum, ef ekki öllum öðrum setið aðgerðalaus, ráðlaus og villt og hefur vart vitað sitt rjúkandi ráð. Og það er kannske alvarlegast að hún skuli vera svona ráðvillt í þessum efnum. Það kemur kannske þjóðarheildinni hvað verst. Ég taldi nauðsynlegt að þetta kæmi hér fram vegna ummæla hæstv. forsrh., að það er rangt að ríkisstj. hafi að neinu verulegu marki lagt fram till. til úrlausnar þessari yfirstandandi kjaradeilu, því miður. Það er ekki hægt að segja að það sé fyrst og fremst hægt að skamma hæstv. ríkisstj. fyrir rangar ákvarðanatökur. Það er fyrst og fremst hægt að skamma hana fyrir engar ákvarðanatökur, að hún geri bókstaflega ekki neitt, hún væflist sitt á hvað, viti oftast nær ekki í hvorn fótinn hún eigi að stiga.
Ég vil svo að lokum aðeins láta það koma hér fram, að það er ljóst að það er fyrst og fremst hæstv. forsrh. sem kemur í veg fyrir að umr. um vantrauststill., sem fram er komin, geti farið fram nú í þessari viku. Það er nauðsynlegt að öllum sé það ljóst, og það er nokkuð einkennilegt að hugsa til þess, að hæstv. forsrh., oddviti ríkisstj., sé ekki til þess reiðubúinn nánast hvenær sem er að hefja umr. og verja hæstv. ríkisstj. gegn ásókn, ef menn vilja hafa það orð um okkar stjórnarandstæðinga, með vantraustsumr. Það er furðulegt,
Ég skal ekki hafa þessi orð fleiri. Ég sem sagt legg ekki ýkjamikið upp úr því hvort þessar umr. færu fram annað kvöld, þó að ég teldi það miklum mun æskilegra vegna þess ástands sem í þjóðfélaginu ríkir. En ég held að það breyti sáralitlu, kannske engu um það, að vinsældir hæstv. ríkisstj. verða vart meiri á mánudagskvöld en þær verða á föstudagskvöldi n.k.