19.02.1976
Sameinað þing: 53. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2019 í B-deild Alþingistíðinda. (1673)

125. mál, fæðingarorlof bændakvenna

Ragnhildur Helgadóttir:

Herra forseti. Ég er mjög sammála ýmsu því sem fram kom í ræðu hv. síðasta ræðumanns, og ég minnist drengilegs stuðnings hans við lagafrv. sem samþ. var á s.l. vori um fæðingarorlof til handa þeim konum sem eru innan vébanda launþegasamtakanna, öðrum en þeim sem eru í samtökum opinberra starfsmanna. Hins vegar finnst mér dálítið undarleg röksemd sem fram kom í ræðu þessa sama hv. þm. Um íeið og hann tjáði sig mjög fylgjandi frambúðar- og heildarlausn þessa máls, fæðingarorlofs til handa öllum konum, kvað hann bað tefja fyrir frambúðarlausn að samþ. væru lög um þessi atriði — hvern áfangann af öðrum. Ég get satt að segja ekki séð öruggari leið til að koma málinu í höfn heldur en samþykkja lög um að leysa það, þótt í áföngum sé. Sú hefur verið raunin á um margar réttarbætur í okkar þjóðfélagi, að okkur hefur ekki reynst unnt að gleypa stóra bita í einu að því er fjárútlát varðar. Höfum við því þurft að koma ýmsum umbótum á í áföngum.

Ég kvaddi mér nú annars hljóðs undir ræðu hv. 4. þm. Austurl., og ástæðan til þess, að ég kvaddi mér hljóðs, var sú, að mér fannst orðið ástæða til, er hann hafði haldið alllanga ræðu, að útskýra fyrir hv. þm. hvaða mál væri á dagskrá. En eftir að ég hafði kvatt mér hljóðs gat hann þess að hann væri að tala um fæðingarorlof b;endakvenna. Hann var sem sé búinn að útlista fyrir hv. þm. í löngu máli þá staðreynd, að ef ákveðið er að leggja tiltekin útgjöld á sjóð, þá hlýtur fjármagn þess sjóðs til annarra hluta að verða að sama skapi minna. Þetta er auðvitað ákaflega viturlega mælt og ágætt að fá þetta vel útskýrt, eins og hv. þm. gerði. En hitt held ég að sé ofmælt, sem mátti skilja á ræðu hans, að greiðslur til fæðingarorlofs bændakvenna geti með nokkru móti orðið til þess að lama atvinnulíf landsmanna, hvorki í landbúnaði né öðrum greinum atvinnulífs. Ég held að það sé engin ástæða til þess að hafa af því þungar áhyggjur. Fremur ætti það að verða til að greiða fyrir því fólki sem við landbúnað starfar og þar með að efla landbúnaðinn, ef nokkuð væri.

Sömu sögu var að segja um það, er hann fjallaði um þau lög sem samþ. voru hér á s.l. vori um að fá þá lausn á fæðingarorlofsmáli margra kvenna í þjóðfélaginu að það fæðingarorlof yrði greitt úr Alvinnuleysistryggingasjóði. Það er alveg rétt, sem hv. þm. sagði, að Atvinnuleysistryggingasjóður hefur oft veitt lán til atvinnuuppbyggingar víða á landinu, og vitanlega minnkar fjármagn til slíks að sama skapi eða öllu heldur að því litla leyti sem þetta mál kostar. Það er alveg ljóst. En það gerir ekkert til þó að ég minni hv. þm. á það, að hann á nú talsverðan hlut að sjóði sem stofnaður var mörgum árum eftir að Atvinnuleysistryggingasjóður kom til sögunnar einmitt með það hlutverk efst á sinni verkefnaskrá að efla atvinnulíf víðs vegar um landið og lána til uppbyggingar atvinnufyrirtækja. Með þeim mun minni eftirsjá eða öllu heldur þeim mun meiri rausn ætti hv. þm. að geta horft á það, að fjármagni verði varið lögum samkv. úr þeim sjóði sem lögin frá því í vor um fæðingarorlofsgreiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði kváðu á um.

Hv. 4. þm. Austurl., svo og margir aðrir þm. og raunar ákaflega margir sem tjá sig um þessi mál, bæði utan þings og innan, eru óþreytandi að lýsa því yfir, hversu sjálfsagt þeim finnist að greiða konum fæðingarorlof. Í fyrsta lagi sé sjálfsagt að sjá svo um að konur missi ekki af launum við það að verða forfallaðar vegna barnsburðar, svo og sé sjálfsagt að greiða konum yfirleitt fæðingarorlof, hvort sem þær missa af beinum launatekjum eða ekki. Um leið og þessar yfirlýsingar hafa verið uppi hafðar benda menn á sjóði, sem þeir vita að ekki er nokkur skapaður hlutur aukreitis til i, og minna á að svo einfalt sé það, að fylgismenn ríkisstj. geti nú veitt sinni ríkisstj. aðhald um einfaldlega að endurskoða lögin um almannatryggingar á þann veg að öll þessi mál verði leyst í einu lagi. Ég hef satt að segja leitt það hjá mér að taka þátt í umr. um þetta mál eftir að lögin um fæðingarorlofsgreiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði voru samþ. á s.l. vori. Ég sá þá að málið mundi verða framkvæmt, og ég hygg raunar að andstöðuraddir muni fljótlega hljóðna. En ég get samt ekki á mér setið að benda á hversu fráleitt það er að menn séu ævinlega að tala um þetta mál eins og vandinn sé leystur með endurskoðun laga um almannatryggingar. Þetta er ekki spurning um endurskoðun laga. Þetta er einfaldlega spurning um fjármagn. Það gagnar ekkert að endurskoða lög og segja að þessi mál skuli leyst með einum eða öðrum hætti sem þar greinir ef ekki er til fjármagn til að standa undir greiðslum. Það kann vel að vera að einhvern tíma komist menn að þeirri niðurstöðu að einhver annar háttur sé enn heppilegri. Aðalatriðið er þó að til séu peningar til að greiða það sem um er að ræða.

Hv. 4. þm. Suðurl. gat þess í sambandi við þá þáltill., sem hér liggur fyrir til umr. um fæðingarorlof bændakvenna, að það geti ekki verið að ríkisstj. telji að þessi leið sé æskileg til að standa undir þessum greiðslum vegna þess að hún hafi ekki bent á þessa leið fyrir áramót, eins og lög frá því í vor gerðu þó ráð fyrir. Hann á þá við það bráðabirgðaákvæði sem samþ. var í lögum um fæðingarorlof úr Atvinnuleysistryggingasjóði, að ríkisstj. skyldi leita leiða til þess að greiða öllum konum á landinu sams konar fæðingarorlof. Ég efast ekkert um að ríkisstj. hafi framkvæmt þá lagaskyldu sina að leita þessara íeiða. En það vildi bara svo til, að það fór fyrir ríkisstj. eins og okkur mörgum öðrum nú á tímum í þessu þjóðfélagi, að það var erfitt að finna fjármagnið. Hins vegar datt hv. 9. landsk. þm. það snjallræði í hug að leysa þennan hluta málsins með þeim hætti sem bent er á í þessari þáltill. Sú er ástæðan fyrir því að þetta mál liggur hér fyrir, en ekki önnur afstaða ríkisstj. sérstaklega.

Aðalatriði málsins er það, sem hv. 7. landsk. þm. sagði raunar í sinni ræðu og ég tek fyllilega undir og ætti að verða til þess að menn geti fylgt þessu máli, jafnvel þótt þeim finnist að ýmsar aðrar leiðir kæmu til greina ef færar væru, — aðalatriðið, sem hann nefndi, var að þetta hlutverk er sannarlega ekki síðra en sum önnur hlutverk sem þessi sjóður hefur tekið að sér. Svo er og um aðra sjóði sem hafa tekið að sér sams konar hlutverk, að hlutverk sem þetta er svo sannarlega ekki síðra og í raun og veru fyllilega tímabært, ef menn vilja ekki láta það ástand vara sem raunar var orðið hér, að Ísland var eitt landa norðan Alpafjalla sem hafði ekki sett slík ákvæði í sina löggjöf, að konum, sem misstu af tekjum vegna barnsburðar, væru tryggð laun í fæðingarfríi sínu.