24.02.1976
Neðri deild: 63. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2131 í B-deild Alþingistíðinda. (1737)
140. mál, Líferyissjóður Íslands
Sjútvrh. (Matthías Bjarnason):
Herra forseti. Út af aths. hv. síðasta ræðumanns varðandi það atriði að þetta væri annar dagurinn í röð sem Alþ. væri óstarfhæft, fundir hefðu fallið niður í gær, þá minnist ég þess ekki að það hafi nokkurn tíma verið fundir í d. eða Sþ. þann dag sem útvarpsumr. fara fram, svo að þetta er ekkert nýtt atriði. Það hefur verið talið svo sjálfsagt að láta útvarpsumr. nægja þann daginn sem þær færu fram.
Í sambandi við það að einn ráðh. hafi dregið hálft þingið með sér, þá finnst mér þm. vera að gera heldur lítið úr þm. ef einn ráðh. getur dregið þá eins og hverja aðra skynlausa skepnu hvert sem hann ætlar sér. Mér sýnist að þessi þm. sé að verða fullrostafenginn. En hitt er alveg rétt, að hann var ekkert að skamma vitlausa menn, ef hann hefur talið að þeir, sem ráðh. dró með sér, væru þeir vitlausu. Ég er alveg sannfærður um að þeir hafa heyrt til þm. því að honum liggur ekki svo lágt rómur, sérstaklega ef mennirnir hafa ekki farið nema austur að Þorlákshöfn, þá er alveg öruggt að hann hefur komið þessum aths. sínum áleiðis, hann þarf ekki síma, þessi þm.
Annars temja sumir menn sér það að vera alltaf með rosta og belging, og þessi hv. þm. er að verða frægur fyrir það. En ég ætla ekki að hafa fleiri orð um þetta. Ég tel ekki svona framkomu svaraverða. Ég tel hana til minnkunar hverjum þeim þm. sem lætur sér slíkt um munn fara.
Ég minnist þess líka að hvert einasta ár, sem ég hef setið á þingi, hafa verið uppi aths. um það hvað nefndir störfuðu illa fyrri hluta þings og þangað til rétt að þingi er að ljúka. Það er alveg sama hverjir hafa verið í stjórn, þessar aths. hafa verið uppi á hverju einasta þingi. En látum þetta nægja.
Það frv., sem hér liggur fyrir um Lífeyrissjóð Íslands og flutt er af hv. 6. landsk. þm., er mjög veigamikið frv. sem ber að þakka hv. þm. fyrir að flytja hér. Þetta frv. er mjög mikið að efni og vandmeðfarið. Það er farið hér inn á nýjar brautir, — braut sem ég er sannfærður um að verður ekki farið inn á að öllu leyti þegar þessi mál verða afgreidd. Það verður að fara hér nokkuð bil beggja. En þetta er mjög mikilvægt frv. og mikilvægt innlegg í þessi mál öll.
Lífeyrissjóður fyrir alla landsmenn hefur verið til umr. um langan tíma. Það, sem hefur tafið fyrir ákvarðanatöku Alþ. og ríkisstj. á undanförnum árum er auðvitað hin mikla verðbólga sem hefur verið lengst af ríkjandi í okkar landi, hvernig eigi að sigrast á verðbólgunni til þess að verðtryggja lífeyríssjóð fyrir landsmenn alla.
Það er mjög oft minnt á verðtryggðan lífeyrissjóð opinberra starfsmanna. En það hefur verið eitt af því sem hefur verið bent á þegar opinberir starfsmenn kvarta undan launum sínum, að þau fylgi ekki alltaf hinum almenna launamarkaði og séu lægri en gengur og gerist hjá fjölmörgum öðrum stéttum, þá hefur verið á það minnst og það oftar en einu sinni af stjórnvöldum á hverjum tíma að þar njóti þeir fríðinda fram yfir aðra að eiga rétt á verðtryggðum lífeyrissjóði. En þetta breytir ekki þeirri staðreynd og þeirri sjálfsögðu ósk að hraða ákvarðanatöku í sambandi við verðtryggðan lífeyrissjóð fyrir alla landsmenn.
Ég er sannfærður um að flutningur þessa máls hér inn á Alþingi verður mjög mikilvægur fyrir það sem nú er verið að vinna að. Ég tei rétt að sú n., sem fær þetta frv. til meðferðar, væntanlega heilbr.- og trn. eða fjh.- og viðskn. jafnvel, ég held að flm. hafi ekki gert neina till. í málinu, ég man ekki betur en hann hafi ekki lagt til neina ákveðna n., — þessi n., sem fær málið til meðferðar, kanni alla þætti þess, hún kynni sér það samkomulag, sem þegar liggur fyrir eða menn vita um og ákveðnir þm. hafa gert hér að umræðuefni, — þó að ekki sé gengið frú því opinberlega, þá er samkomulag á milli aðila vinnumarkaðarins, á milli vinnuveitenda og launþega, og fyrir liggur yfirlýsing ríkisstj., — og verði þessi mál öll skoðuð og þá jafnframt breytingar á almannatryggingalögunum sem auðvitað fylgja í kjölfar þessa. Þess vegna getur þetta frv. orðið mjög mikilvægt í þessum undirbúningi öllum og geta fulltrúar flokkanna komið aths. sínum fram í þessari n., þó að ég reikni ekki með að þetta frv. eða frv. um framtíðarheildarlausn fyrir lífeyrissjóð allra landsmanna verði afgreitt á þessu þingi og ég hygg að enginn þm. reikni með að þetta þing afgreiði. Þetta mál er miklu stærra og veigameira en það.
Ég ætla ekki að eyða tíma í ræða efnislega um þetta frv. Ég tel að sú stefna, sem það markar, sé í meginatriðum mjög mikils virði. Ég er ekki samþykkur henni að öllu leyti, vegna þess, eins og ég sagði áðan, að ég vil stíga minna skref hvað snertir þetta gegnumstreymiskerfi, þannig að lífeyrissjóðirnir almennt eigi einnig eftir fé til ráðstöfunar til lánastarfsemi. Hitt er aftur hárrétt hjá flm., að það, sem nú er við að eiga, er löngu orðið úrelt og launþegar almenni geta ekki sætt sig við að lífeyrisfé þeirra brenni á báli verðbólgunnar eins og verið hefur á undanförnum árum.
Eitt er það líka sem ég tel mjög mikils virði. Þegar frv. um lífeyrissjóð fyrir alla landsmenn verður lagt fram að fengnum öllum þessum athugunum, þá er ólikt betra að leggja fram slíkt frv. á tímum, þegar er uppgangur í atvinnulífi og góðæri í fjármálum, heldur en þegar jafnmiklir erfiðleikar eru eins og núna. En þá höfum við yfirleitt alltaf farið fram hjá því að leggja fram slík frv. En þó að ástandið sé ekki og verði ekki upp á það besta þegar frv.liggur fyrir, þá held ég að við eigum ekki að setja það fyrir okkur. Við verðum auðvitað að taka mið af því, hvað hægt er að ganga langt í þessum efnum, og þá er alltaf hægt að bæta við, gera þetta kerfi fullkomnara eftir því sem þjóðarheildinni og atvinnuvegunum vex ásmegin. Það eigum við að gera, en ekki að stiga of stórt skref og þá á þann veg að við þurfum jafnvel fljótlega að stiga skref aftur á bak.
Það hafa verið samþykkt lög í tryggingamálum og fjölmörgum öðrum málaflokkum sem ekki var byrjað að framkvæma þegar syrti yfir í atvinnulífi, og það eru miklir erfiðleikar á því að afla fjár til margra þessara hluta. Það er ekki nóg að eiga hugsjónir og það er ekki nóg að sýna áhuga á hverju framfaramáli, hverju öryggismáli fyrir þá sem minnst mega sin og geta síst tekið skakkaföllum. Það verður einnig að hvíla sú ábyrgð og skylda á þm. almennt að þeir standi þá að fjáröflun með skynsamlegum hætti til þess að framkvæma hugðarefni sin. Það er ekki nóg að vera bara annars vegar með auknum útgjöldum úr ríkissjóði, auknum álögum á atvinnulífið, á skattborgarana í landinu. Það verður líka að hugsa um fjáröflun hverju sinni, taka mið af því, sem er að gerast í kringum okkur og hvað hægt er að ganga langt í hverju máli fyrir sig. Þetta er það sem ég álít að sú n., sem fær þetta mál til athugunar, verði einnig að gera upp við sig.
Ég skal svo ekki hafa þessi orð fleiri nú við þessa umr., en ég endurtek ánægju mína með að þetta mál er hér flutt og tel, að hv. þm , sem málið flytur, hv. 6. landsk. þm., eigi þakkir skilið fyrir að hafa flutt málið hér inn á Alþingi.