24.02.1976
Neðri deild: 63. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2134 í B-deild Alþingistíðinda. (1738)
140. mál, Líferyissjóður Íslands
Ingvar Gíslason:
Herra forseti. Það er nú orðið áliðið dags og ég skal ekki m.a. af þeim ástæðum tefja ákaflega mikið þessa umr. En ég vil segja það einkum, að ég tei að hér sé hreyft ákaflega merkilegu og athyglisverðu máli, og ég vil, eins og menn hafa gert hér margir, lýsa stuðningi mínum við aðalhugsunina í frv. En þessi aðalhugsun er sú, að það verði stofnaður lífeyrissjóður fyrir alla landsmenn. Ég vil í því sambandi minnast þess, að þetta er fyllilega í samræmi við yfirlýsta stefnu Framsfl. nú mjög lengi. Það hefur verið ályktað um það á flokksþingum okkar bæði fyrr og siðar, a.m.k. svo lengi sem ég hef starfað í Framsfl., að rétta stefnan sé að það starfi einn lífeyrissjóður fyrir alla landsmenn og að lífeyrissjóðskjör manna séu nokkurn veginn jöfn eða að það ríki eðlilegt jafnræði í sambandi við lífeyriskjör allra lífeyrisþega. Að þessu leyti til get ég fyllilega tekið undir þá meginstefnu sem kemur fram í þessu frv.
Því miður hefur þessi stefna um almennan lífeyrissjóð eða um einn lífeyrissjóð fyrir alla landsmenn aldrei komist í framkvæmd. Ég hygg þó að hún eigi mikið fylgi þegar allt kemur til alls. En eigi að síður hefur hún í reyndinni af einhverjum ástæðum sætt andstöðu, a.m.k. hefur verið mjög erfitt að koma henni í framkvæmd. Ég minnist þess t.d. fyrir mörgum árum, nærri 10 árum, — þó er kannske ofsagt að það séu 10 ár, en það fer að nálgast það, — þá var ég í mþn., sem fjallaði um lífeyrissjóð fyrir alla landsmenn, ásamt mörgum öðrum ágætum þm. Sú n. lauk störfum sínum, — ég man ekki nákvæmlega ártalið hvenær þetta var, það kynni að hafa verið 1967, kannske 1968, — þá lauk þessi n. störfum sínum og að þá var verkalýðshreyfingin komin mjög á rekspöl með stofnun sinna lífeyrissjóða og vann að því máli í samningum við atvinnurekendur og ríkisstj. En ég held sem sagt að þó að þá hafi menn vonast til þess að þróun lífeyrissjóðanna upp úr þeim samningum, 1967 eða 1968 eða hvenær þetta var nú, — þó að menn hafi búist við því að þetta leiddi til eðlilegrar og góðrar þróunar, þá hygg ég að flestir muni einhuga um að þróun lífeyrissjóðanna hafi verið á annan veg og í rauninni sorgleg. Það hafa risið hér upp ákaflega margir sjóðir, einkum þó á síðustu árunum, í stað þess að hafa einn öflugan allsherjarlífeyrissjóð þar sem gætt er eðlilegs jafnræðis á milli lífeyrisþeganna.
Því miður hefur ekki verið nein heildarstefna í þessu máli, og auk þess verður það að segjast eins og er, að skilningurinn á því, hvert skuli vera hlutverk lífeyrissjóða og hvert sé gildi lífeyrissjóða, hefur oft verið nokkuð einkennilegur. Það hefur af fjölda fólks í landinu verið litið á lífeyrissjóði sem eins konar sparisjóði. En þetta hlýtur auðvitað að vera algert aukahlutverk slíkra sjóða. Þó að ljóst sé að sjóður ávaxtar sitt fé, þá má ekki eingöngu, eins og margir hafa gert, lita á þetta sem eins konar sparisjóði eða þá sem lánasjóði sérstaklega.
Ég held að menn verði að fara að átta sig á hvert er meginhlutverk lífeyrissjóðanna. Það er einfaldlega að tryggja því fólki, sem af ýmsum ástæðum telst óvinnufært, tryggja því tekjur. Það þarf að tryggja mönnum ellitekjur og það þarf að tryggja mönnum örorkulífeyri. Þetta er hlutvers lífeyrissjóða, og ég fagna mjög einmitt í sambandi við þetta frv., sem hér liggur fyrir, að þar er rækilega undirstrikað þetta meginhlutverk lífeyrissjóðanna.
Hins vegar er það svo, að nú á síðari missirunum, eftir að hin mikla óðaverðbólga varð til og hún hefur geisað nú um nokkurt skeið, hafa gallar þessa lífeyriskerfis orðið lýðum ljósir og sérstaklega þetta, að ranglæti gagnvart óverðtryggðu sjóðunum er mjög áberandi við þær aðstæður sem við nú búum við í sambandi við verðbólguna, þannig að sjóðirnir brenna upp í óðaverðbólgunni, eins og hæstv, ráðh. sagði áðan. Og þetta frv. er einmitt rækileg áminning um þetta ástand. Eins og ég segi, þá undirstrikar það líka hvert skuli vera meginhlutverk lífeyrissjóðanna, og ég tel að að því leyti til geri flm. mikið gagn með flutningi þessa máls. Þess vegna, herra forseti, ég skal ekki teygja lopann neitt um þetta, ég held að mín meginafstaða til þessa frv. sé komin nægilega skýrt fram um það að ég tel að hér sé um meginstefnu að ræða í þessu frv. sem sé ástæða til að taka undir og ég hygg að þetta frv. geti orðið til þess að umr. um þessi mál færist inn á nýjan grundvöll og leiði til þess að það verði tekið upp nýrra, betra og réttlátara skipulag á þessum lífeyrissjóðsmálum, því að óneitanlega er þetta eitthvert stærsta réttlætismál sem um er fjallað í okkar þjóðfélagi.