24.02.1976
Neðri deild: 63. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2135 í B-deild Alþingistíðinda. (1739)
140. mál, Líferyissjóður Íslands
Karvel Pálmason:
Herra forseti. Út af því, sem hæstv. heilbr.- og trmrh. sagði áðan, vil ég aðeins segja það, að það er út af fyrir sig ánægjulegt að hæstv. ráðh. hefur rumskað. Það er orðið æðilangt síðan hann hefur tekið fjörkipp hér í þinginu. Það var nokkuð títt meðan hann var í stjórnarandstöðu að um hann færu fjörkippir hér í ræðustól, og ég hef að verulegu leyti saknað þess nokkuð síðan hann náði þeirri upphefð sem hann hefur nú haft í um hálft annað ár. En vel má vera að hann sé enn í þeirri sæluvímu eftir þá upphefð að hann sjái ekkert athugavert við það sem hér hefur veríð að gerast á þessum tíma og þá kannske fyrst og fremst nú hinar síðustu vikur. Þó að ekki sé langur tími síðan hann settist í ráðherrastól hefur oft á þeim tíma hvarflað að mér, þegar mér er hugsað til hans, sagan um Palla sem var einn í heiminum. Mér hefur fundist þessi hæstv. ráðh. allt of oft láta í — (Gripið fram í: Þú átt þá bókina.) Ég hef lesið hana a.m.k. Þess vegna segi ég nú þetta: Mér hefur oft fundist þessi hæstv. ráðh. vera með því marki brenndur að telja kannske oftast það eitt satt og rétt sem hann hefur sjálfur viljað fram halda. En þetta er sem betur fer ekki svona einfalt. Það hefur verið æðioft sem þessum hæstv. ráðh. hefur skjátlast. Hann er eins og hver annar mannlegur og getur skjátlast, og þess vegna er ástæðulaust og ég ræð honum heilt þegar ég ráðlegg honum að breyta nú um og fara svolítið vægar í sakir í þessum efnum.
Hæstv. ráðh. sagði hér áðan að hann mundi ekki til þess að fundir hefðu verið í d. eða Sþ. þann dag sem útvarpsumr. væru haldnar. Ég er að vísu ekki búinn að vera lengi hér á hv. Alþ., en ég held að ég minnist þess þó að slíkt hefur gerst. Og ekki finnst mér slíkt vera óeðlilegt, a.m.k. þegar það er haft í huga að ákvörðun um útvarpsumr, er tekin á föstudegi, en umr. á að fara fram á mánudegi, þannig að menn hafa laugardag og sunnudag til þess að undirbúa sig. Ég þykist vita að hæstv. ráðh, hefði nægt sá tími til þess að undirbúa sig þó að þingfundir hefðu verið haldnir á mánudeginum. Ég held að það sé ekki rétt hjá hæstv, ráðh. að undantekningarlaust hafi það verið svo að þingfundir hafi ekki verið haldnir þann dag sem útvarpsumr. eru.
Hann taldi að ég hefði verið hér með rosta og belging. Það má vel vera að hæstv. ráðh. finnist þau vinnubrögð, sem viðhöfð hafa verið hér í þinginu á undanförnum vikum, vera ósköp eðlileg. Ég er bara allt annarrar skoðunar. Og það er ekki bara ég, sem er þessarar skoðunar, heldur og fjöldinn af þm., meira að segja inn í raðir stjórnarflokkanna. Og ef hann telur það rosta og belging af mér að vekja máls á þessu hér, þá er hann jafnframt að hirta hæstv. dómsmrh. sem fann sig til þess knúinn að gera þetta að umræðuefni í hv. Ed. áðan, þannig að ég held að þetta sé rangt einnig hjá hæstv. ráðh. Hér er ekki um neinn rosta eða belging að ræða. Hér er verið að vekja máls á óeðlilegum vinnubrögðum sem verða að skoðast á reikning hæstv. ríkisstj. Og hvort sem hæstv. ráðh. telur þetta svaravert eða ekki, þá a.m.k. féll hann í þá gryfju að svara þessu og með talsvert miklum myndugleika.
Hann sagði líka, að hann minntist þess að það hefði alltaf verið kvartað undan litlu starfi í nefndum nema þá í lok þinghalds. Vel má vera að þetta sé rétt. En það er ekki til fyrirmyndar eigi að síður þó að það hafi verið svo. Og ég hef sagt það hér áður, að það er ekki að búast við bótum í þessum efnum ef þeir, sem ráða ferðinni, eins og hæstv. ráðh., nú siðast hæstv. heilbr.- og trmrh., eru þeirrar skoðunar að hér sé allt með felldu, hér sé allt eins og það eigi að vera. Ef það er sannfæring þeirra sem ráða, þá er ekki við því að búast að það verði komið umbótum á.
Ég held samt sem áður að það finnist líklega fá dæmi þess að þingstörf hafi gengið eins og þau hafa gengið nú og þá kannske fyrst og fremst nefndarstörf, því að það eru dæmi þess að í nefnd, kannske nefndum innan þingsins, þar sem liggja tugir mála og hafa legið, hefur verið haldinn aðeins einn fundur frá því að þing kom saman s.l. haust. Þetta eru kannske þau vinnubrögð sem hæstv. heilbr: og trmrh. vill viðhafa. En þetta eru a.m.k. ekki að mínu viti hin æskilegu vinnubrögð. Og það er þetta sem er verið að benda á. Hæstv. ráðh. er svo sjálfráður um það, hvort hann metur þetta sem rosta og belging. Það verður hann að gera upp við sig sjálfan. En þetta eru staðreyndir sem hægt er að sýna hæstv. ráðh. hvenær sem er og hann getur gengið úr skugga um. Ég sé svo ekki ástæðu til að fara fleiri orðum hér um.
Um það, að ég hafi hátt í eyrum hæstv. ráðh., þá má það vel vera. En hann er nú ýmsu vanur í baráttu sinni vestra. Það hefur ekki alltaf verið blæjalogn og ládeyða í kringum hans baráttu þar, þannig að hann ætti að vera því vanur þó að hátt láti í sumum, enda held ég að það verði vart talinn mikill ljóður á einum eða neinum að hann komi því, sem hann vill á framfæri koma, með þeim hætti að þeir, sem ætlast er til að heyri það, heyri það, þannig að það sé þá a.m.k. öruggt að hvorki hæstv. ráðh. né þm. dotti undir umr. Mér hefur satt að segja fundist, — það er rétt að bæta því við hér nú, — mér hefur satt að segja fundist það nokkuð sammerkt með allt of mörgum hæstv. ráðh. að það er varla að maður heyri orðaskil í ræðum þeirra hér úr þessum stól á hv. Alþ., og ég tel það miklu meiri ljóð heldur en hitt, þó að menn haldist þó vakandi á meðan ræður eru haldnar.