29.10.1975
Neðri deild: 11. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 279 í B-deild Alþingistíðinda. (175)

23. mál, umferðarlög

Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson) :

Herra forseti. Þetta frv., sem hér er til umr., um breyt. á umferðarlögum er samið af umferðarlaganefnd að tilhlutan dómsmrn. Það var lagt fyrir þessa hv. d. á þingi í fyrra, en svo seint að það hlaut þá ekki afgreiðslu. Þá fylgdi ég því úr hlaði með allítarlegri framsögu. Ég veit að ég má ekki spara mér framsöguna hér með því að vísa til þeirrar framsögu þá, en ég vona að mér fyrirgefist þótt ég fari eitthvað örlítið fljótar yfir sögu með tilliti til þess að framsaga um þetta efni liggur fyrir frá síðasta alþingi.

Meginefni þessa frv. felur í sér þær breytingar á ákvæðum umferðarlaganna, að gert er ráð fyrir því að hætt verði að umskrá ökutæki vegna flutninga á milli lögsagnarumdæma svo og að Bifreiðaeftirlit ríkisins annist skráningu ökutækja í stað lögreglustjóra. Þetta eru þær tvær aðalbreytingar sem í þessu frv. felast.

Samkv. gildandi ákvæðum umferðarlaga skal skrá öll skráningarskyld ökutæki hjá lögreglustjóra þar sem eigandi ökutækisins er búsettur. Þá er eigendaskipti verða að skráðu ökutæki og hinn nýi eigandi er búsettur í öðru lögsagnarumdæmi skal tilkynna lögreglustjórum beggja umdæma eigendaskiptin. Skal ökutækið þá skráð að nýju, en afskráð í umdæminu sem það fluttist frá. Þegar eigandi ökutækis flyst búferlum eða ökutæki selt í annað lögsagnarumdæmi skal eigandi senda tilkynningu um flutninginn til lögreglustjóra beggja umdæmanna. Skal ökutækið þá afskráð í því umdæmi sem það fluttist frá, en skráð að nýju í umdæminu sem flutt er í. Gildir þetta þó ekki þegar um skamma dvöl er að ræða. Auk þess sem þannig hefur verið lögskylt að umskrá ökutæki vegna flutnings ökutækja milli umdæma hefur tíðkast að umskrá ökutæki að ósk eigenda þótt eigi hafi það verið skylt að lögum.

Þetta er talsvert umsvifamikið, að þurfa þannig í öllum þessum tilfellum að láta fara fram umskráningu ökutækis, og með auknum bifreiðafjölda hefur umskráningum farið geysilega mikið fjölgandi. Þau umsvif, sem því eru tengd hjá hinum ýmsu lögreglustjóraembættum, hafa aukist ár frá ári, eins og eðlilegt er, og einnig við Bifreiðaeftirlit ríkisins. Þannig voru umskráningar á árinu 1973 um 19 800, en á árinu 1974 voru þær 27340. En bifreiðafjöldi um síðustu áramót var talinn vera á öllu landinu 71 364 bifreiðar. Þessi auknu umsvif hafa kallað á fjölgun starfsliðs og aukinn rekstrarkostnað. Á undanförnum árum hefur því verið til athugunar á hvern hátt mætti draga úr kostnaði á þessu sviði og gera skráningarkerfið einfaldara, bæði fyrir hið opinbera og fyrir einstaklinga. Fór upphaflega fram rækileg athugun á þessu máli á vegum norsks hagræðingarfyrirtækis, Industri konsulent, og var þá lagt til að tekið yrði upp fast númerakerfi þar sem ökutæki haldi óbreyttum skráningarmerkjum frá því að það er fyrst skráð og þar til það er tekið af skrá sem ónýtt. Till. þessar hafa síðan verið til meðferðar hjá Bifreiðaeftirliti ríkisins og einnig reyndar í undirnefnd fjvn. á sínum tíma, sem lagði til að tilhögun ökutækjaskráningar yrði breytt á þann veg sem hér er lagt til.

Með þessu frv. er lagður grundvöllur að því að skráningu ökutækja verði breytt í það horf að tekið verði upp fast númerakerfi fyrir allt landið. Kostur við þessa breytingu er fyrst og fremst sparnaður í vinnu og aðstöðu þar sem hætt yrði að umskrá ökutæki vegna flutnings á milli umdæma eða annarra ástæðna. Jafnframt mundu falla niður þær skoðanir sem nú er skylt að framkvæma við umskráningu. Sparnaður þessi mundi ekki einungis koma fram hjá þeim opinberu stofnunum, sem hlut eiga að máli, lögreglustjórum, Bifreiðaeftirliti og þinglýsingardómurum, heldur einnig hjá eigendum ökutækjanna og einnig reyndar öðrum, t.d. vátryggingarfélögum. Breytt skráningarkerfi mundi og auðvelda viðhald ökutækjaskrár og skýrsluvélavinnu og draga úr hættu á misskráningu.

Langsamlega flest ökutæki eru nú í dag skráð í Reykjavík þar sem þau eru flutt inn, annað hvort af lögreglustjóranum í Reykjavík eða Bifreiðaeftirlitinu í umboði viðkomandi lögreglustjóra. Með breyttu skráningarkerfi mun þeim ökutækjum fjölga að mun sem þar verða skráð, án tillits til þess hvar eigandi er búsettur. Þegar þessa er gætt svo og þess að hægt verður að umskrá ökutæki vegna flutnings milli umdæma þykir eðlilegt að Bifreiðaeftirlitið, sem ekki er bundið við einstakt lögsagnarumdæmi, taki við skráningarhlutverki lögreglustjóranna. Hefur verulegur hluti skráningarstarfa hvort eð er farið um hendur bifreiðaeftirlitsmanna í umboði lögreglustjóranna.

Með þessari breytingu mundu falla niður þau auðkenni á ökutækjum sem leiðir af umdæmaskiptingu landsins. Eftir sem áður er gert ráð fyrir því að hver lögreglustjóri haldi skrá yfir ökutæki í umdæmi sínu samkv. reglum frá Bifreiðaeftirlitinu þar sem halda verður allsherjarspjaldskrá sem embættin að öðru leyti hafa aðgang að. Ég tel, að þetta verkefni sé af ýmsum ástæðum best komið hjá Bifreiðaeftirlitinu.

Hitt er rétt, að það hefur ekki verið búið að Bifreiðaeftirlitinu sem skyldi, og menn þekkja margir að aðstaða þess hér í Reykjavík, t.d. til skoðunar og skráningarstarfa, hefur ekki verið eins og skyldi. Það hefur lengi staðið til að ráða bót á þessu með byggingu skoðunarstöðvar í líkingu við það sem annars staðar tíðkast. Af ýmsum ástæðum er nú sýnt að það mun dragast nokkuð að hægt verði að byrja á byggingu slíkrar skoðunarstöðvar. En mér þykir rétt að upplýsa það í sambandi við þetta mál, að það hefur verið horfið að því ráði að taka á leigu húsnæði hér í Reykjavík sem með nokkrum breytingum og að ég held ekki ýkjamiklum tilkostnaði má breyta á þann veg að þar geti farið fram skoðun innanhúss, jafnframt því sem þar væru skrifstofur Bifreiðaeftirlitsins til húsa. Ég vona að með þessari bráðabirgðaúrlausn verði nokkuð bætt úr aðstöðu Bifreiðaeftirlitsins. En fullnaðarlausn á þessum vandamálum er það engan veginn.

Viðvíkjandi því nýja skráningarkerfi, sem gert er ráð fyrir samkv. frv. að upp verði tekið, er það að segja að það hefur þegar verið hafinn nokkur undirbúningur að því, m. a. með kaupum á skráningarvél sem skráir upplýsingar um ökutæki vegna spjaldskrár og á skráningarskírteini, auk þess sem hún gatar á strimil upplýsingar til úrvinnslu í skýrsluvélum. Þar er gert ráð fyrir því að hvert ökutæki verði auðkennt með tveimur bókstöfum og þremur tölustöfum. Það er rétt að taka fram að þessi undirbúningur er í sjálfu sér óháður því hvort skráningarmerkjum verði breytt eða ekki, en kemur að notum ef horfið verður að því ráði að breyta þeim, en ekki nauðsynlegt að skipta um merki á öllum ökutækjum samtímis.

Það eru sjálfsagt skiptar skoðanir um þetta nýja skipulag sem hér er gert ráð fyrir að upp verði tekið, og það hefur komið fram að svo sé. Sjálfsagt hafa þeir, sem á móti því mæla, eitthvað til síns máls. En ég fyrir mitt leyti tel þó, samkv. því sem ég hef getað kynnt mér það, kostina vera yfirgnæfandi.

Með tilliti til breytts hlutverks Bifreiðaeftirlitsins, er það tekur við ökutækjaskráningunni, eru lagðar til nokkrar breytingar á ákvæðum umferðarlaganna að því er Bifreiðaeftirlítið varðar.

Frv. þetta hefur auk breytingar á skráningarkerfi ökutækja að geyma nokkur önnur ákvæði. Þar ber fyrst að nefna ákvæði um skráningu og notkun beltabifhjóla sem svo eru nefnd í frv., en þar er einkum átt við vélsleða eða snjósleða. Á undanförnum árum hafa verið flutt til landsins allmörg þess háttar ökutæki. Er talið, að fluttir hafi verið til landsins a. m. k. 1200 vélsleðar, og má þó vel vera að þeir séu orðnir eitthvað fleiri. Þessir vélsleðar eru margir hverjir mjög hraðskreiðir. Vélsleðarnir hafa ekki verið skráðir og er þess vegna nokkur óvissa ríkjandi um, hvaða reglur skuli um þá gilda. En hér er lagt til að tekin verði upp sérstök skilgreining fyrir ökutæki þessi og önnur skyld og þau nefnd beltabifhjól. Jafnframt er gert ráð fyrir sérstökum reglum um þessi svokölluðu beltabifhjól, svo sem skráningu, vátryggingu og ökuréttindi. Skilgreining frv. er í samræmi við hliðstæða skilgreiningu í norskri og sænskri umferðarlöggjöf.

Vélsleðarnir eru að sjálfsögðu til margra hluta nytsamleg samgöngutæki þar sem snjóalög eru mikil og umferð annarra ökutækja teppist af þeim sökum. Hafa þeir án efa breytt til muna aðstöðu margs bónda. Vélsleðarnir eru einnig hentugir til ýmiss konar þjónustu, svo sem vegna viðgerða og ýmiss konar hjálparstarfs. Hinu er ekki að leyna, að það hefur þótt bera á því að af notkun þeirra víðs vegar um landið leiddi ýmis vandkvæði, bæði í þéttbýli og eins t. d. í skíðalöndum vegna hávaða og vegna slysahættu. Hafa um þetta borist nokkrar kvartanir. Að nokkru hefur verið reynt að takmarka notkun vélsleða með ákvörðun lögreglustjóra skv. heimild í umferðarlögum, en þær ráðstafanir hafa ekki reynst fullnægjandi. Ég geri ekki ráð fyrir að lögfesting þeirra ákvæða, sem í þessu frv. felast, muni leysa öll vandamál í því sambandi, en ég held að þær reglur, ef lögfestar verða, séu til bóta.

Ég sé ekki ástæðu til þess að fara nánar út í önnur ákvæði frv. þó að þar sé um að ræða nokkur fleiri sérstök ákvæði, eins og um lengd ökutækja og eins og um fjárhæðir í sambandi við tryggingar. Ég held að ákvæði frv. þar um og aths., sem fylgja þeim gr., skýri það nægilega sem þar er um að tefla.

Ég leyfi mér svo, herra forseti, að leggja til að málinu verði vísað til 2. umr. og til hv. allshn.