25.02.1976
Neðri deild: 64. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2171 í B-deild Alþingistíðinda. (1765)

Umræður utan dagskrár

Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti. Ég skal svara að nokkru leyti þeirri fsp. sem hv. þm. Lúðvík Jósepsson bar hér fram, en önnur atriði hennar standa nær öðrum ráðh. en mér.

Það er vissulega rétt sem hann sagði, að í gær var gerð mjög fólskuleg og allra fólskulegasta árásin á varðskip sem gerð hefur verið til þessa. Það er líka rétt sem hann sagði, að herskipin hafa fengið nýjar skipanir um að þyrma í engu varðskipunum. Þessu verður af landhelgisgæslunnar hálfu svarað á þann veg sem í hennar valdi stendur, að reyna að gera það sem unnt er áfram til að hindra veiðar togaranna, og verður í engu slakað til. Sem betur fer eru sárin á Þór ekki meiri en svo að hann verður ekki lengur óvígur. Ég geri ráð fyrir að hann geti farið aftur á vígstöðvarnar í dag. Þá verða fjögur varðskip á þessum slóðum og þau munu gera það sem hægt er. En hitt hefur líka heyrst, sem reyndar hefur alltaf verið vitað, að bretar hafa ráð á fleiri skipum en þeir hafa haft hingað til og ætla að bæta við einu herskipi, að því er þeir segja, einmitt af því að varðskipin séu nú fleiri á þessum slóðum en áður fyrr. Það er því mjög hætt við því að við verðum að horfast í augu við þá staðreynd, að þó að við fjölgum varðskipum, þá geta þeir sjálfsagt bætt við nýjum skipum.

En það verður áfram haldið og er í fullri athugun nú hvernig efla má gæsluna þannig, að hún geti mætt þeim nýju viðbrögðum sem koma fram af hálfu breta. Það eru, bretar sem þannig setja mun meiri hörku í þessa deilu en áður.

Það var spurt að því hvort ríkisstj. hefði rætt þetta eftir að þetta hefði átt sér stað. Svarið við því er nei af þeirri einföldu ástæðu að það hefur ekki verið ríkisstjórnarfundur síðan.

Ég ætla ekki að fara út í þær ábendingar sem hv. þm. setti hér fram varðandi önnur úrræði sem e.t.v. kynnu að vera tiltæk til þess að hafa áhrif í þessari deilu. En eins og ég sagði áðan, þá hafa bretar hert þessa deilu, og það er rétt að þeir beri ábyrgðina á því. Og ég verð að segja það, að ég tel þá menn blinda sem sjá ekki hvað skrifað er á vegginn sem afleiðing af þessu.