25.02.1976
Neðri deild: 64. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2172 í B-deild Alþingistíðinda. (1766)
Umræður utan dagskrár
Forsrh. (Geir Hallgrímsson):
Herra forseti. Ég var ekki viðstaddur þegar hv. 2. þm. Austurl. kvaddi sér hljóðs og hlýddi því ekki nema á lokaorð hans, en hann beindi til ríkisstj. þeirri fsp., sem reyndar hefur verið svarað af hæstv. dómsmrh., hvort ríkisstj. hefði fjallað um síðustu atburði, Svarið er neitandi. En ríkisstj. mun vitaskuld ræða þau atvik og þá atburði, sem áttu sér stað á miðunum í gær og í morgun, og fjalla þá um þær ráðstafanir sem tiltækilegt er að gripa til nú þegar í tilefni þeirra. Ég tel sjálfsagt að taka þá atburði upp af hálfu okkar og kynna þá og kæra gagnvart öðrum aðildarríkjum í Atlantshafsbandalaginu og tel sjálfsagt að fastafulltrúi okkar flytji það mál. Það eru tímamót að þessu leyti ef bretar eru með nýjum fyrirskipunum að koma af stað orrustu sem er á alvarlegra og hættulegra stigi en hún þó hefur verið, og hefur okkur þó fundist nóg um.
Ég vil þá líka svara þeirri fsp. að ríkisstj. hefur ekki fjallað um hugmyndir Frydenlunds utanrrh. norðmanna. Það, sem við viljum best um þær, er að það sé e.t.v. of sterkt að tala um að um till. sé að ræða á þessu stigi málsins, heldur hugmyndir sem leitað er undirtekta við innan Atlantshafsbandalagsins og því að mínu viti ekki tilefni af okkar hálfu að svara þeim nú þegar. Þar af leiðandi hefur ekki sérstakur ríkisstjórnarfundur verið haldinn til að fjalla um þær, en vitaskuld verður um þær rætt á ríkisstjórnarfundi og í framhaldi af því, ef þetta verður eitthvað annað en hugmyndir, einnig í utanrmn. og e.t.v. landhelgisnefnd.
Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða um þessa atburði frekar á þessu stigi málsins. Ég vil þó taka það fram að atburðir slíkir sem þessir gátu ávallt átt sér stað. Okkur hefur verið ljós sú hætta sem er á miðunum. Þau þáttaskil, sem hér er um að ræða, eru hins vegar fólgin í beinum fyrirskipunum breskra stjórnvalda sem við höfum e.t.v. ekki sönnur á aðrar en þær blaðafregnir sem birst hafa og verið gerðar opinberar í fjölmiðlum.
Það er sjálfsagt að kynna þátttökuríkjum Atlantshafsbandalagsins og e.t.v. fleiri alþjóðasamtökum þetta viðhorf breta sem lýsir fádæma virðingarleysi fyrir mannslífum, — slíku virðingarleysi sem verður kröftuglega að mótmæla og mæta á alþjóðavettvangi svo að þeir láti af slíkri ósvinnu.