26.02.1976
Neðri deild: 67. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2215 í B-deild Alþingistíðinda. (1798)

181. mál, námslán og námsstyrkir

Svava Jakobsdóttir:

Herra forseti. Þetta frv. er fram komið vegna þess að enn er komið í óefni með úthlutun námslána. Eins og kom fram í máli hæstv. menntmrh., kom nýtt frv. um námslánasjóð og endurskoðun á reglum um endurgreiðslu ekki fyrir Alþ. fyrr en fyrir nokkrum dögum og hafði þó verið boðað fyrir jól. Menntmn. beggja d. hafa á tveim fundum fjallað um þetta frv., og það er sýnt að það mun kosta mikla vinnu og vitaskuld algerlega ókleift að afgreiða það fyrir 1. mars, en við þá dagsetningu hefur hæstv. menntmrh. miðað úthlutun vorlána. Það er því að mínum dómi mjög skynsamlegt af hæstv. menntmrh. að hann skyldi falla frá þeirri beiðni að það frv. yrði afgreitt fyrir 1. mars. Það var vitanlega ókleift. En með þessu frv., sem hér liggur fyrir, er ljóst að koma á aftan að námsmönnum varðandi vorlánin. Í stað þess að greiða vorlánin samkv. gildandi reglum og lögum, þá á nú að fara nýja leið. Í þessu frv. felst fyrst og fremst það að veita á lánin gegn almennum útlánsvöxtum bankanna og síðan á lánþegum að gefast kostur á að greiða bréfin með því að gangast undir skuldbindingu um endurgreiðslu samkv. reglum sem enginn og allra síst lánþegar sjálfir vita hverjar verða. Hér er sem sagt ætlast til að menn taki lán án þess að hafa hugmynd um endurgreiðslukjör. Það er raunar sagt við námsmenn: Gerið þið svo vel, hér eru lánin, en um endurgreiðslukjör getum við ekkert sagt. — Þetta er algjört einsdæmi í lánaviðskiptum og jaðrar við siðleysi. Það er að mínum dómi frumskilyrði, að menn viti að hverju þeir ganga, þegar þeir taka lán.

Við alþb.-menn erum andvígir þessu frv. og treystum okkur ekki til að standa að samþykkt þess. Við sáum þó ekki ástæðu til að tefja framgang frv. á þingi, því að við erum vissulega þeirrar skoðunar að óhjákvæmilegt sé að úthluta námslánum nú þegar. En úr því að ríkisstj. var ekki tilbúin með endurskoðun námslánakerfisins í heild í tæka tíð, þá teljum við eðlilegt að úthluta nú vorlánum samkvæmt gildandi lögum, í stað þess að fara þá leið sem hér er lögð til. Við teljum að hér sé námsmönnum ætlað að kaupa köttinn í sekknum og það sé óverjandi að Alþ. ætlist til slíks.

Störfin í menntmn. d. við námslánafrv. eru ekki það langt komin að við alþb.- menn getum metið hvort okkar sjónarmið verða þar tekin til greina. Af þeirri ástæðu og öðrum, sem ég hef hér tilgreint, munum við greiða atkvæði gegn þessu frv.