26.02.1976
Neðri deild: 69. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2249 í B-deild Alþingistíðinda. (1831)

118. mál, ráðstafanir til að draga úr áhrifum olíuverðhækkana á hitunarkostnað íbúða

Ellert B. Schram:

Ég hef ekki á móti framlengingu þess gjalds, sem um er rætt í frv. né heldur skiptingu þess til einstaklinga, rafveitna og Orkusjóðs. Ég er fylgjandi skynsamlegri verðjöfnunarstefnu og vil stuðla að henni. En ég tel þá aðferð, sem viðhafa á um úthlutun þessa fjár, bjóða upp á ranglæti og misnotkun og stríða gegn tilgangi frv. Til að undirstrika þessa skoðun mína greiði ég atkv. gegn þessu frv. og segi því nei.